Eldgosið við Meradali 2022

eldsgos á Suðurnesjum árið 2022

Þann 3. ágúst árið 2022, rúmu ári eftir að eldgosinu við Fagradalsfjall lauk opnaðist um 300 metra löng sprunga við norðanverða Meradali, við norðurenda hrauns sem rann 2021, og nálægt Meradalahnjúkum. Jarðskjálftahrina var vikurnar áður og 3 dögum áður var skjálfti upp á 5,5 nálægt Grindavík. Sprungan sem opnaðist var lengri og gosið öflugra en í síðasta gosi þegar það hófst. [1][2] Hún þéttist í nokkur gosop og einn aðalgíg fyrstu vikuna. Gosið stóð í um 18 daga. Það var 8% rúmmáls gossins í Geldingadölum og fjórðungur flatarmáls þess.[3]

Gosið 4. ágúst.
Gosið 11. ágúst.

Þróun

  • 6. ágúst: Sprungan hefur dregist saman og virkni er í 3 gosopum/gígum. Hættusvæði hefur verið skilgreint og möguleiki er á nýjum sprungum. [4]
  • 9. ágúst: Yfirvöld ákváðu að meina börnum undir 12 ára að fara að gosstöðvunum en ferðamenn höfðu virt lokanir vegna veðurs að vettugi dagana áður og lent í hrakningum. [5]
  • 16. ágúst: Dregið hefur úr hraunflæði og var það þriðjungur þess sem var fyrstu viku gossins. [6]
  • 20. ágúst: Engin kvika er sjáanleg en rýkur úr gígnum. [7]
  • 21. ágúst: Engin virkni sjáanleg.

Tenglar

Tilvísanir