Ísafjörður

(Endurbeint frá Ísafjörður (þéttbýli))
Fyrir fjörðinn má sjá Ísafjörður (Ísafjarðardjúpi) og sveitarfélagið Ísafjarðarbær. Fyrir aðrar merkingar orðsins má sjá aðgreiningarsíðuna.

66°04′N 23°07′V / 66.067°N 23.117°V / 66.067; -23.117

Reykjavík is on Ísland.
Reykjavík is on Ísland.
Ísafjörður
Ísafjörður 2019.

Ísafjörður er þéttbýlisstaður á Eyri við Skutulsfjörð í Ísafjarðardjúpi. Hann er þjónustumiðstöð sveitarfélagsins Ísafjarðarbæjar og er stærsti byggðakjarninn innan þess. Íbúar voru um 2.736 árið 2020.

Ísafjörður var einn þeirra 6 verslunarstaða á Íslandi sem fengu kaupstaðarréttindi árið 1786 (hinir voru Reykjavík, Akureyri, Eskifjörður, Grundarfjörður og Vestmannaeyjar) en missti þau árið 1816 til Grundarfjarðar (sem hafði verið sviptur þeim árið 1807). Bærinn endurheimti kaupstaðarréttindin árið 1866. Þá náði land kaupstaðarins yfir Eyrina og stóran hluta Eyrarhlíðar. Áður hafði það heyrt undir Eyrarhrepp. Kaupstaðurinn og hreppurinn sameinuðust aftur 3. október 1971, þá undir nafni Ísafjarðarkaupstaður[1].

Í júní 1994 bættist Snæfjallahreppur við sveitarfélagið[2] og í desember 1995 Sléttuhreppur[3][4] sem hafði þá verið í eyði í meira en fjóra áratugi.

Hinn 1. júní 1996 sameinaðist Ísafjarðarkaupstaður 5 öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum: Flateyrarhreppi, Mosvallahreppi, Mýrahreppi, Suðureyrarhreppi og Þingeyrarhreppi, undir nafninu Ísafjarðarbær[5][6].

Myndir

Tilvísanir

Tengt efni

Tenglar

  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt