Fara í innihald

Þorsti (kvikmynd)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Þorsti er íslensk kvikmynd frá árinu 2019 sem Gaukur Úlfarsson og Steinþór Hróar Steinþórsson leikstýrðu. Björn Leó Brynjarsson skrifaði handritið [1]. Leikarar eru meðlimir í Leikhópnum X sem hefur verið að setja inn sketsa á YouTube síðu sína.

Þorsti
Þorsti
LeikstjóriGaukur Úlfarsson, Steinþór Hróar Steinþórsson
HandritshöfundurBjörn Leó Brynjarsson
FramleiðandiObbosí ehf.
LeikararHjörtur Sævar Steinason,

Hulda Lind Kristinsdóttir, Jens Jensson,Ester Sveinbjarnardóttir,Birgitta Sigursteinsdóttir,

Birna Halldórsdóttir
KvikmyndagerðHakon Sverrison
KlippingÁgúst Bent
TónlistBerndsen
Frumsýning25. Október 2019
LandÍsland
Tungumálíslenska

Kvikmyndin Þorsti gerist í litlum bæ, ekki ólíkum Reykjavík þar sem óöld liggur í loftinu og undarlegir glæpir og hrottaskapur virðast vera daglegt brauð. Myndin Fjallar um Huldu sem er grunuð um að hafa orðið valdur að andláti bróður síns og er því til rannsóknar hjá Jens rannsóknarlögreglu. Móðir Huldu, sem skolar niður pillum með bláum Smirnoff á morgnana trúir því einnig að hún hafi orðið bróður sínum að bana. Eftir að hafa verið sleppt úr varðhaldi vegna ónógra sannana hefur hún í engin hús að venda og þvælist um þar til hún rekst á Hjört, mörg þúsund ára gamla, einmanna og samkynhneigða vampíru sem hjálpar henni að vekja Steinda bróður hennar til lífs aftur með hræðilegum afleiðingum á sama tíma og þau þurfa að verjast ágangi Esterar og Birgittu og sértrúarsöfnuði þeirra, sem virðist elta þau á röndum. [2]

Leikendurbreyta frumkóða

Aðalhlutverk

  • Hjörtur Sævar Steinason leikur Hjört, einmana samkynhneigða vampíru.
  • Hulda Lind Kristinsdóttir leikur Huldu, dópista sem býr á götunni.
  • Jens Jensson leikur Jens, rannsóknarlögreglumann.
  • Ester Sveinbjarnardóttir leikur Ester, leiðtoga sértrúarsöfnuðs.
  • Birgitta Sigursteinsdóttir leikur Birgittu, dóttir Jens og Ester.
  • Birna Halldórstóttir leikur Birnu, pillufíkil.

Undirbúningurbreyta frumkóða

Kvikmyndin var framleidd í kjölfarið af þáttunum Góðir Landsmenn sem sýndir voru á Stöð 2, 19. september 2019 til 24. október 2019. Þar má sjá undirbúningsferli myndarinnar.

Hönnun

Kitty von-Sometime hannaði settið. María Guðjohnsen hannaði búningana.[3]

Eftirvinnslabreyta frumkóða

Klipping

Ágúst Bent sá um klippingu myndarinnar. [4]


Tónlist

Davíð Berndsen gerði tónlistina fyrir kvikmyndina og hlaut myndin tilnefningu til Eddunnar 2020 fyrir Tónlist Ársins.

Tilvísanirbreyta frumkóða

🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:LeitArnar Þór JónssonForsetakosningar á Íslandi 2024Carles PuigdemontHvítasunnudagurKerfissíða:Nýlegar breytingarXXX RottweilerhundarHalla TómasdóttirHalla Hrund LogadóttirListi yfir íslensk póstnúmerFiann PaulViktor TraustasonListi yfir skammstafanir í íslenskuÁsdís Rán GunnarsdóttirÁstþór MagnússonListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaÍslenska karlalandsliðið í knattspyrnuListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSeinni heimsstyrjöldinBaldur ÞórhallssonBrúðkaupsafmæliJón GnarrListi yfir íslensk mannanöfnDanmörkKatrín JakobsdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016ViðtengingarhátturBubbi MorthensGene SimmonsÍslenska stafrófiðVigdís FinnbogadóttirÍslandAdolf HitlerGylfi Þór SigurðssonMynd:Landspitali logo.PNGSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirForsetakosningar á ÍslandiEiríkur Ingi Jóhannsson