478
ár
Árið 478 (CDLXXIII í rómverskum tölum)
Árþúsund: | 1. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: |
|
Ár: |
Atburðir
- Austrómverski keisarinn Zenon reynir að etja austgotnesku keppinautunum Þjóðreki og Þeódórik Strabo gegn hvorum öðrum. Þjóðrekur var konungur Austgota en Þeódórik Strabo var hershöfðingi sem hafði verið yfirmaður herafla Austrómverja en lýstur óvinur ríkisins árið áður af Zenon. Austgotarnir semja um frið sín á milli og snúast gegn Zenon. Á endanum semur Zenon svo um frið við Þeódórik Strabo á meðan Þjóðrekur verður óvinur Austrómverja og hefur hernað gegn þeim árið eftir, 479.
- Verína, tengdamóðir Zenons keisara, reynir að fá hershöfðingjann Illus myrtan. Illus hafði staðið með Zenon gegn bróður Verínu (og fyrrum keisaranum) Basiliskosi. Illus sleppur frá samsærinu og bjargar svo keisaranum frá samsæri árið eftir, 479, sem Verína kom einnig að.
- Kínverska Norður Wei veldið viðurkennir keisaradæmið í Japan.
Fædd
- Narses - austrómverskur hershöfðingi (d. 573)
Dáin
- Lupus af Troyes - biskup í Troyes
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt