Afturbeygt fornafn

undirflokkur fornafna
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu

Afturbeygða fornafnið (skammstafað sem a.fn. eða ab.fn.) er fornafn sem er ekki til í nefnifalli[1] heldur beygist það bara í aukaföllum (þolfalli, þágufalli og eignarfalli) og vísar það til frumlagsins í setningunni.

Afturbeygða fornafnið í mörgum tungumálum

Í íslensku

Aðeins er til eitt afturbeygt fornafn í íslensku eða orðið sig. Beygist það eins í öllum kynjum (hún elskar sig, hann elskar sig, það elskar sig) og báðum tölum (hann stöðvaði sig, þeir stöðvuðu sig).

Afturbeygðu fornöfnin eru stundum flokkuð svona:[2]

Eintala og fleirtala
karlkyn (kk.)kvenkyn (kvk.)hvorugkyn (hk.)
Nefnifall(hann/hún/það/þeir/þær/þau)
Þolfallsig
Þágufallsér
Eignarfallsín

Dæmi

Afturbeygða fornafnið vísar aftur til þriðju persónu sem áður hefur verið tiltekin og af því er nafn þess dregið;

„Afturbeygða eignarfornafnið“

Sumir málfræðingar telja eignarfornafnið sinn eiga heima í flokki afturbeygðra fornafna þar eð það vísar aftur til þriðju persónu. Þessi skilgreining er umdeild og á sér ekki hefð í íslenskri málfræði. Sinn er þó stundum kallað „afturbeygt eignarfornafn“.

EintalaFleirtala
karlkyn (kk.)kvenkyn (kvk.)hvorugkyn (hk.)karlkyn (kk.)kvenkyn (kvk.)hvorugkyn (hk.)
nefnifallsinnsínsittsínirsínarsín
þolfallsinnsínasittsínasínarsín
þágufallsínumsinnisínusínumsínumsínum
eignarfallsínssinnarsínssinnasinnasinna

Í latínu

Aðeins er til eitt afturbeygt fornafn í latínu og er það orðið se. Beygist það í öllum föllum nema nefnifalli og ávarpsfalli.

Eintala og fleirtala
karlkyn (kk.)kvenkyn (kvk.)hvorugkyn (hk.)
Nefnifall(is/ea/id/eī/iī/eae/ea)
Ávarpsfall(is/ea/id/eī/iī/eae/ea)
Þolfall, sēsē
Eignarfallsuī
Þágufallsibi
Sviptifall, sēsē
Staðarfall, sēsē

Dæmi

  • per se (í sjálfu sér, út af fyrir sig)

Tengt efni

Tilvísanir