Basísk kvika

Basísk kvika er frumstæð kvika úr möttlinum.[1]

Streckeisen línurit: basískt djúpberg
Díórít silla efst, Glacier National Park, Montana
Eystrahorn: Gabbró innskot
Gabbró, Italia
Basísk kvika, Masaya eldfjall, Nicaragua

Jarðfræði

Myndun

Möttullinn er misheitur[2] og vegna mismunandi efnismassa[3] rís efnið sums staðar og sekkur annars staðar í þessum hluta jarðar. Bergið lendir þá á svæðum þar sem sumar steindir byrja að bráðna, basíska efnið fyrst. Svo er það léttara en umhverfið og berst upp úr möttlinum.[2]

Basísk bergbráð inniheldur minni kísil (SO2) en aðrar kvikutegundir og myndar basalt eða djúpbergið gabbró við storknun. "Þegar kvika er flokkuð í súra, ísúra og basíska er fyrst og fremst litið til efnasamsetningar hennar og þá hversu kísilrík hún er." [4]Basaltkvika: <52% SiO2.[3]Þessi kvika rís í flestum tilvikum beint til yfirborðs eða stendur stutt við í jarðskorpunni í kvikuhólfi áður en hún nær yfirborði.[4]

Eldgos

Eldgos þar sem basísk kvika fer með aðalhlutverk framleiðir oftast seigfljótandi hraun og byggir upp gíga eins og gjallgíga eða eldborgir, en líka dyngjur eins og Mauna Loa eldjall á Hawaii. "Alla jafna myndast lítil aska í slíkum eldgosum, þar sem kvikan inniheldur hlutfallslega lítið vatn og er mjög fljótandi og heit (1050-1250°C). Undantekningar frá þessari reglu eru tengdar utanaðkomandi vatni og óvenju háu vatnsmagni kvikunnar, en hvorutveggja hefur þau áhrif að sprengivirkni kvikunnar eykst og gjóskumyndun margfaldast." [4]

Dæmi um basísk eldgos á Íslandi eru eldgosin í Kröflu á árunum 1975-1984[4]en líka Grímsvatnagosið 2011.

"Þegar basaltísk bráð storknar fer það eftir aðstæðum hvaða bergtegund myndast; grófkristallað gabbró myndast við hæga kristöllun djúpt í jörðu, fínkornótt grágrýti (dólerít) í grunnstæðum innskotum eða þykkum hraunum, dulkornótt basalt í hraunum á yfirborði og basaltgler (túff) við hraðkólnun í vatni." [5]

Á Íslandi

Meginhluti alls bergs á Íslandi er basískt storkuberg, sbr. blágrýtismyndunin [6] og það er 79% nútímajarðmyndunar síðan landið byggðist. [7]

Í miðju rekbeltisins er þóleít en á jaðarsvæðum alkalíbasalt.[8]

Lýsingarorðið basískt

Lýsingarorðið basískt er afleitt orð. Basar eru efnafræðileg andstæða sýrna. [9]

Hins vegar væri kannski "í stað hinna (...) lýsingarorða basískur – ísúr – súr (...) því réttara að nota kísilrýr (basaltískur) – kísiljafn (andesískur) – kísilríkur (ríólískur) þótt sannlega séu þau risminni." [10]

Tilvísanir