David Caruso

David Stephen Caruso (fæddur 7. janúar 1956) er bandarískur leikari sem er þekktastur fyrir að leika Horatio Caine í CSI: Miami.

David Caruso
David Caruso
David Caruso
Upplýsingar
FæddurDavid Stephen Caruso
7. janúar 1956 (1956-01-07) (68 ára)
Ár virkur1976 -
Helstu hlutverk
Horatio Caine í CSI: Miami

Einkalíf

Caruso fæddist í Forest Hills Gardens, Queens, New York.[1] Hann er af ítölskum og írskum uppruna.[2] og var alinn upp kaþólskri trú.[3] Caruso stundaði nám við Our Lady Queen of Martyrs Catholic School, í Forest Hills. Seinna meir þá stundaði hann nám við Archbishop Molloy High School nálægt Briarwood og útskrifaðist þaðan árið 1974.[4]

Caruso er stofnandi DavidCarusoTelevision.tv og LexiconDigital.tv, ásamt því að vera meðstofnandi að Steam, sem er fatarbúð í S-Miami.

Hann á dóttur, Greta, með seinni eiginkonu sinni, Rachel Ticotin. Síðan á hann tvö börn með fyrrverandi kærustu sinni Liza Marquez: Marquez Anthony og Paloma Raquel. Í apríl 2009, fór Marquez í mál við Caruso vegna fjársvika, brota á skiptasamningum og tilfinningalegrar þjáningar.[5]

Í dag þá býr hann í Los Angeles og Miami ásamt kærustu sinni, Amina Islam.

Í mars 2009 var austurrísk kona sett í gæsluvarðhald í Tyrol, Austria vegna kæru um að hafa ofsótt Caruso; hafði hún tvisvar sinnum misst tíma í dómssal áður en hún flúði til Mexíkó.[6]

Ferill

Níundi áratugurinn

Fyrsta hlutverk hans var árið 1980 í kvikmyndinni Getting Wasted sem Danny. Caruso eyddi mesta áratugnum í aukahlutverkum í kvikmyndum á borð við, First Blood, An Officer and a Gentleman, Blue City, Thief of Hearts, og China Girl. Caruso kom einnig fram í myndunum Twins og Hudson Hawk.

Í sjónvarpi þá var hann í aukahlutverki sem Tommy Mann, leiðtogi klíkunnar "The Shamrocks", í Hill Street Blues í byrjun 1980s. Þá kom hann fram í tveimur þáttum í seríunni Crime Story sem var sýnt frá 1986 til 1988.

Tíundi áratugurinn

Caruso kom fram í aukahlutverkum í myndum á borð við King of New York og Mad Dog and Glory. Þegar hann var að taka upp kvikmyndina '[Hudson Hawk frá 1991, þá notaði Caruso ákveðna aðferð þar sem hann neitaði að tala við fólk þar sem persóna hans, Kit-Kat, var mállaus sem hafði bitið tunguna sína af.[7]

Fyrsta stóra hlutverk hans var árið 1993 sem rannsóknarfulltrúinn John Kelly í NYPD Blue sem Caruso vann Golden Globe verðlaun fyrir. Ásamt því að TV Guide nefndi Caruso sem einn af sex nýju stjörnum 1993-94 tímabilsins.

Komst hann í fréttirnar þegar hann ákvað yfirgefa þáttinn til þess að vinna að kvikmyndaferli sínum (þá aðeins fjórum þáttum inn í aðra seríu), en átti erfitt með að sýna sig sem aðalleikara í glæpamyndinni Kiss of Death, sem fékk góða dóma en gekk ekki vel fjárhagslega. Kom hann einnig fram í myndinni Jade (1995), sem gekk mjög illa. Árið 1997 sneri hann aftur í sjónvarpið þegar hann lék í lögfræðiseríunni Michael Hayes, þar sem hann lék New York lögfræðinginn og var serían aðeins sýnd í eitt tímabil.

21. öldin

Caruso kom aftur fram í aukahlutverki í myndinni Proof of Life með Russell Crowe, frá árinu 2000. Árið 2001 lék hann titil hlutverkið í hryllingsmyndinni, Session 9.

Frá 2002-2012, lék hann Lt. Horatio Caine í hinum vinsæla sjónvarpsþætti CSI: Miami. Í CSI: Miami, var Caruso þekktur fyrir að nota einnar setninga línur sem passa þegar á við í senum og notkun sólgleraugna hans. Sólgleraugu Carusos og einnar setningar línur hans, hafa verið gert mikið grín af grínustum og á netinu.

Dúkkuhaus David Caruso

Bobble Head DC (B-HED)

Í byrjun ársins 2007, varð til Horatio Caine dúkkuhausinn, hann er circa 6 tommur á hæð og er fullur af sælgæti, ásamt því að sýna vel útlit Carusos. Síðan dúkkuhausinn var gefinnn út þá hefur hann orðið mjög vinsæll á tökustað þáttarins og á meðal aðdáenda Carusos. Eftir að hafa heimsótt tökustað í október 2009 fékk hópur aðdáenda sem hafði ferðast allaleiðina frá Toronto, Kanada, dúkkuhausinn gefins sem þakkargjöf eftir nær 2200 mílna ferð til Kaliforníu.

Núna nefnt „Bobble Head David Caruso“ (þ.e. B-HED), þá hefur hann ferðast um margar borgir í Bandaríkjunum (LA, Las Vegas, Chicago, Buffalo, Miami), Ástralíu (Melbourne), Kúbu (Holguin) og Kanada (Toronto, Windsor, Niagara Falls). B-HED hefur eignast mikinn fjölda aðdáenda í fjölmiðlum og á netinu. Sjá B'HED's Blog


Kvikmyndir og sjónvarp

Kvikmyndir
ÁrKvikmyndHlutverkAthugasemd
1980Getting WatedDanny
1980Without a WarningTom
1980Falling in Love AgainUngur nágrannadrenguróskráður
1981Crazy TimesBobby SheaSjónvarpsmynd
1982An Officer and a GentlemanTopper Daniels
1982First BloodLögreglufulltrúinn Mitch
1983For Love and HonorRustySjónvarpsmynd
1984The First Olympics: Athens 1896James ConnollySjónvarpsmynd
1986Thief of HeartsBuddy Calamara
1986Blue CityJoey Rayford
1986Crime StoryJohnny O´DonnelSjónvarpsmynd
1987China GirlJohnny Mercury
1987Into the HomelandRyderSjónvarpsmynd
1988TwinsAl Greco
1990King of New YorkDennis Gilley
1990Parker KaneJoey TorregrossaSjónvarpsmynd
1990Rainbow DriveLarry HammondSjónvarpsmynd
1991Mission of the Shark: The Saga of the U.S.S. IndianapolisWilkesSjónvarpsmynd
1993Judgment Day: The John List StoryLögreglustjórinn Bob RichlandSjónvarpsmynd
1993Mad Dog and GloryMike
1995Kiss of DeathJimmy Kilmartin
1995JadeDavid Corelli
1997Gold CoastMaguireSjónvarpsmynd
1997Cold Around the HeartNed Tash
1998Body CountHobbs
2000SwirleeHerbergisfélagi Mr. Softy´s
2000Proof of LifeDino
2000Black PointJohn Hawkins
2001Session 9Phil
2004CSI: MiamiHoratio CaineTölvuleikur – Talaði inn á
Sjónvarp
ÁrTitillHlutverkAthugasemd
1976Ryan´s HopeBjöllustrákurÞáttur: #1.378
óskráður
1981Palmertown, U.S.A.ónefnt hlutverkÞáttur: The Suitor
1983CHiPsCharlieÞáttur: Hot Date
1983T.J. HookerRuss JenningsÞáttur: Requiem for a Cop
1983The Paper Chase: The Third YearBennettÞáttur: Commitments
1983For Love and HonorPvt. Rusty BurgerÞáttur: For Love and Honor
1981-1983Hill Stree BluesShamrock Leiðtoginn Tommy Mann8 þættir
1986-1988Crime StoryJohnny O´Donnell3 þættir
1990H.E.L.P.Lögreglumaðurinn Frank Sordoniónefndir þættir
1993-1994NYPD BlueRannsóknarfulltrúinn John Kelly26 þættir
2002CSI: Crime Scene InvestigationHoratio CaineÞáttur: Cross-Jurisdictions
2005CSI: NYHoratio CaineÞáttur: Manhattan Manhunt
2002-2012CSI: MiamiHoratio Caine232 þættir

Verðlaun og tilnefningar

Blockbuster Entertainment verðlaunin

  • 2001: Tilnefndur sem besti aukaleikari fyrir Proof of Life.

Emmy verðlaunin

  • 1994: Tilnefndur sem besti leikari í dramaseríu fyrir NYPD Blue.

Golden Globe

  • 1994: Verðlaun sem besti leikari í dramaseríu fyrir NYPD Blue.

Razzie verðlaunin

  • 1996: Tilnefndur sem versta nýja stjarnan fyrir Kiss of Death og Jade.

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar