EV6 Fljótaleiðin

EV6 Fljótaleiðin eða Atlantshaf-Svartahaf er 3.653 km EuroVelo-hjólaleið sem liggur frá Saint-Nazaire við ósa árinnar Loire í Frakklandi að Constanța við Svartahafsströnd Rúmeníu. Leiðin fylgir nokkrum stórum ám eftir. Hún liggur meðfram stórum hluta Loire, hluta af Saône og Rínarfljóti og nær allri Dóná. Leiðin fer í gegnum 10 lönd, Frakkland, Sviss, Þýskaland, Austurríki, Slóveníu, Ungverjaland, Serbíu, Króatíu, Búlgaríu og Rúmeníu.

Kort sem sýnir EV6.

Hluti leiðarinnar er á vinsælustu hjólaleið Evrópu, Dónárhjólastígnum, sem liggur milli Donaueschingen og Passau í Þýskalandi og heldur áfram til Vínarborgar, Novi Sad og BelgradDónárósum. Víða er hægt að velja tvær leiðir eftir því hvorum bakka árinnar farið er eftir.

Leiðin

  • Frakkland: Leiðin liggur meðfram Loire frá Saint-Nazaire um Nantes, Tours, Blois, Orléans og Nevers þar sem hún fer meðfram Canal du Centre að Saône þar sem hún fer um Besançon, Baume-les-Dames, Montbéliard að Mulhouse í Elsass.
  • Sviss: Leiðin fer yfir landamærin við Basel og fylgir Rínarfljóti að Bodensee.
  • Þýskaland: Frá Bodensee fylgir leiðin Hohenzollernleiðinni til Tuttlingen og heldur svo áfram eftir Dónárleiðinni (Radnetz Deutschland-leið D6) um Sigmaringen, Scheer, Ulm, Leipheim, Günzburg, Donauwörth, Ingolstadt, Regensburg til Passau.
  • Austurríki: Í Austurríki fylgir leiðin Dóná beggja vegna árinnar og fer í gegnum Linz og Vínarborg.
  • Slóvakía: Leiðin fer um Bratislava.
  • Ungverjaland: Leiðin fer um Győr, Esztergom, Visegrád, Búdapest, Kalocsa, Baja og Mohács.
  • Króatía (hjáleið): Leiðin fer um Kneževi Vinogradi, Lug, Osijek og Vukovar.
  • Serbía: Leiðin fer um Apatin, Novi Sad, Belgrad og Pančevo.
  • Búlgaría (hjáleið): Leiðin liggur um Vidin, Lom, Belene, Ruse og Silistra.
  • Rúmenía: Leiðin fer um Drobeta-Turnu Severin, Cernavodă, Brăila, Tulcea, Sulina, Babadag að Constanța.

Myndir

Tenglar