Eldgosið við Fagradalsfjall 2021

eldsgos á Suðurnesjum árið 2021

Eldgos við Fagradalsfjall hófst þann 19. mars 2021 kl. 20:45 í kjölfar jarðskjálftahrinu sem stóð í meira en 3 vikur. Öflugasti skjálftinn var 5.8 stig. Gosið kom úr kvikugangi sem náði frá Keili að Fagradalsfjalli. Kvikan fann sér fyrst leið til yfirborðs í Geldingadölum við austanvert Fagradalsfjall nærri Stóra-Hrúti.[1] Eldgosið hefur einnig verið kallað Geldingadalagos eða Geldingadalsgos (þó í raun sé örnefnið Geldingadalir). Eldgosið var flokkað sem dyngjugos en slík gos eru fátíð. Kvikan var frumstæð og kom úr 17-20 kílómetra dýpi.[2] Tegund hraunsins er helluhraun og apalhraun. Fleiri gígar opnuðust á upphafsvikum gossins en þegar á leið einangraðist virknin við einn gíg. Hundruð þúsunda skoðuðu gosið. Eldgosið jók virkni sína eftir því sem á leið sem er óvanalegt.[3] Nýr fasi hófst í gosinu snemma í júlí 2021 þegar órói lækkaði eða hætti skyndilega og hófst svo að nýju hægt og bítandi. Hraunið flæddi upp úr gígnum í reglubundnum takti með pásum í nokkra mánuði þar til það hætti.[4]

Eldgosið þann 24. mars 2021.

Nær 800 ár voru síðan gaus síðast á Reykjanesskaga þegar Reykjaneseldar geisuðu.[5] Og 6000 ár eru síðan gaus í Fagradalsfjalli. Þá rann Beinavörðuhraun.

Frá 18. september hætti hraunflæði frá gígnum. Gosið stóð í um hálft ár og er 4. lengsta gosið á 20. og 21. öld.[6] Settar voru upp vefmyndavélar af helstu miðlum og gat fólk fylgst með gosinu allan sólarhringinn.

Þróun

Sprunga var metin í byrjun um 200 metrar á lengd þegar þyrla Landhelgisgæslunnar náði fyrstu myndum en síðar 500 metrar. Þann 20. mars mat svo Páll Einarsson sprunguna sem 200 metrar en ofmat var á stærð hennar. Syðri endi tungunnar var nokkra km frá Suðurstrandarvegi. Hrauntungur runnu í suðsuðvestur og vestur í Geldingadali. Geldingadalir eru lokaðir og hraunstreymið varð að fylla dalinn til að komast áleiðis. Upphafi gossins er líkt við Fimmvörðuhálsgosið.[7] Krísuvíkurvegi og Fagradalsvegi var lokað. Degi fyrir gosið var búið að loka Suðurstrandarvegi vegna skemmda sem urðu á veginum í kjölfar jarðskjálftahrinunnar.[8] Mengunarviðvörun var send til Árnessýslu þar sem vindáttin liggur í austur frá gosstaðnum, í átt að Hveragerði.[9]

Nokkurn fjölda fólks dreif að og voru sumir vanbúnir, í slæmu skyggni[10] og þurftu björgunarsveitir að bjarga týndu og hröktu fólki. Sumir fóru fullnálægt gígnum en tilmæli voru um. Þann 21. mars var brekka upp að gígnum lokuð. En Almannavarnir og löggæsla bentu á að hrunið gæti úr gígnum og nýjar sprungur gætu opnast.[11] Varað var við að hættulegt gas gæti safnast saman í lægðum í stilltu veðri.

Fólk gekk frá Svartsengi þar sem Suðurstrandarvegur var lokaður vegna viðgerða sökum skjálftanna. En ákveðið var að stika leið frá Suðurstrandarvegi þar sem það var öruggara og styttra.[12]

  • 21. mars: Hraunið var metið 0,15 ferkílómetrar (Magnús Tumi Guðmundsson).[13]
  • 22. mars: Almannavarnir lokuðu svæðinu við eldgosið vegna gasmengunar.
  • 24. mars: Tveir aðalgígar gjósa og eru samvaxnir. Hraunið fyllir nánast dalinn. Ferðamenn flykkjast á staðinn.
  • 26. mars: Allt að tíu milljónir króna framlag var ákveðið af ríkinu til að bæta aðgengi fyrir þá sem vilja skoða gosstöðvarnar.[14]
  • 27. mars: Lokað var eftir hádegi vegna versnandi veðurs. Fylgst var með ferðamönnum með tilliti til sóttkvíarbrota.[15]
  • 28. mars: Hraunið þekur Geldingadalina. Vegagerðin býr til bílastæði þar sem gönguleiðin við Suðurstrandarveg byrjar.[16]
  • 31. mars: Flúormengun mælist í regnvatni við eldstöðvarnar.[17] Ákveðið var að hafa opið frá 6-18 og rýma kl. 22 á svæðinu um páskana.[18] Þekja hraunsins var um 0,3 ferkílómetrar.
  • 2. apríl: Vart varð við fyrstu gjósku gossins eða ljósleitan vikur. Nornahár fannst einnig.
  • 5. apríl: Nýjar sprungur opnuðust, 100-200 metrar að lengd, hálfum kílómetra norðaustan við gígana sem fyrir voru. Hraunelfur tók að renna niður í Meradali. Yfir 500 manns voru á gosstöðvunum og var svæðið rýmt. Virkni gíganna í Geldingadölum minnkaði og var talið að nýju sprungurnar væru hluti af sama kvikuinnskoti.[19]
  • 7. apríl: Ný sprunga, um 150 metra löng, opnast á milli hinna tveggja og rennur hraun í Geldingadali.[20]
  • 8. apríl: Flatarmál hrauns er 0,62 ferkílómetrar samkvæmt Jarðvísindastofnun og hefur hraunflæði aukist með nýjum gígum.
  • 10. apríl: Fjórða sprungan opnaðist milli tveggja nýjustu. Svæði var afmarkað sem hættusvæði á gosstöðvunum þar sem líklegast er að sprungur opnist.[21]
  • 13. apríl: Enn fleiri sprungur eða gígar opnast og rennur hraunið í suðurátt frá þeim.[22]
  • 16. apríl: Hraun tekur að renna austur úr Geldingadölum[23] Um fjórðungur landsmanna gerði sér ferð að gosinu, um 90 þúsund manns.[24]
  • 19. apríl: Nyrsti gígurinn sem var öflugur rétt eftir páska er kulnaður.[25] Hraunið þekur alls tæpa 0,9 ferkílómetra.
  • 27. apríl: Flatarmál hrauns er 1,13 ferkílómetrar. Virkni mest í syðsta gígnum þar sem strókarnir ná allt að 50 metrum. Virkni í elstu samliggjandi gígunum nær engin.
  • 4. maí: Virknin í þessum eina gíg gengur með hléum og er kröftug inn á milli. Hraun hefur þeyst meira en 200 metra í loft. Rignt hefur gjósku og eru hættur á hraunbombum. Hættusvæði var endurskilgreint.
  • 10. maí: Lokað var fyrir aðgengi að gosstöðvunum vegna gróðurelda og óhagstæðrar vindáttar. Hæstu strókar hafa náð um 460 metra sem er hærra en Empire State-byggingin. [26]
  • 11 maí: Hraunrennsli er tvöfalt öflugra en það hefur alla jafnan verið. Flatarmál er 1,8 ferkílómetrar (á við Elliðavatn) og hefur hraun fyllt Syðri-Meradal ( þó kallaður Nafnlausi dalurinn af sumum) suðaustur af gígnum.
  • 14. maí: Hafist var handa að reisa varnargarða norður af Nátthaga til að hindra flæði hrauns niður dal í átt að Suðurstrandarvegi.
  • 22. maí: Hraunið fór yfir eystri varnargarðanna og tók að flæða niður að Nátthaga.
  • 1. júní: Hrauntungur ógna útsýnishólnum sem er nálægt gígnum og vestari varnargarðinum.
  • 4. júní: Hraunrennsli lokar fyrir Gónhól og vestari varnargarðar rofna. Stærð hraunsins er nær 3 ferkílómetrar.
  • 10. júní: Virkni gossins hefur breyst. Í stað reglulegra gosstróka fossar stöðugt úr gígnum.
  • 13. júní: Hrauntaumur rennur frá Geldingadölum og niður í Nátthaga og rýfur þar með gönguleið A.
  • 18. júní: Hraun fyllir Nátthaga og nálgast haft suðvestan við hann. Hraunið nálgast Suðurstrandarveg. Ákveðið er að byggja ekki varnargarða til að vernda veginn.[27]
  • 26. júní: Varnargarður er byggður við suðvesturenda Nátthaga. Bandarískur ferðamaður týndist við gosstöðvarnar og sást síðast norður af Stóra Hrúti. Hann fannst meira en sólarhring seinna og hafði slasast og týnst. Gönguleið C meðfram Langahrygg er orðin aðalleiðin til að sjá gíginn.
  • 7. júlí: Í byrjun júlí minnkaði virkni í gígnum og tók hann löng hlé. 7. júlí hafði verið hlé í nær 2 sólarhringa en loks sást í glóð í gígnum þó kvika ylli ekki upp úr honum.[28]
  • 23. júlí: Gosið hefur runnið í Meradali síðustu 3 vikur. Hraunflæði hefur minnkað og telur Magnús Tumi jarðeðlisfræðingur að gosið sé að fjara út á næstu vikum eða 2 mánuðum.[29] Hraunið þekur 4 ferkílómetra.
  • 16. ágúst: Nýr gígur opnast tímabundið við hliðina á aðalgígnum.[30]
  • 5. september: Rýkur úr gígnum en sést ekki í kviku. Gosið er í næstlengsta hléi frá upphafi.[31]
  • 11. september: Gosið heldur áfram en gosrás gígsins hafði verið stífluð. Hraun flæðir utan í gígnum eða í göngum.
  • 15. september: Hraun tekur að flæða niður í Nátthaga úr mismunandi áttum úr hrauntjörn í Geldingadölum þar sem er yfirflæði. Svæðið á gönguleið A var rýmt og lokað tímabundið.[32] Eldgosið er 6 mánaða og er gígurinn orðinn 334 metra hár.
  • 14. október: Ekki hefur gosið í rúman mánuð eða frá 18. september. Rýkur þó úr gígnum. Flatarmál hrauns er tæpir 5 ferkílómetrar.
  • 18. desember: Gosinu er formlega lokið, 3 mánuðum eftir síðasta hraunflæði. Enn er þó vart við þenslu og kvikusöfnun neðanjarðar.[33]

Tengdir atburðir

Eldgos við Meradali 2022

Tæpu ári eftir að gosinu í Fagradalsfjalli lauk opnaðist sprunga við norðanverða Meradali við hraunjaðar gossins 2021.

Eldgos við Litla-Hrút 2023

Eldgos hófst við Litla-Hrút í júlí 2023, norður af Meradölum.

Myndagallerí

Tenglar

  • „Hversu stórt var gosið í Geldingadölum?“. Vísindavefurinn.

Tilvísanir

Tengt efni

Tenglar