Framsöguháttur

Framsöguháttur (skammstafað sem fsh. eða fh.) flokkast undir hætti sagna (nánar til tekið persónuhátt). Framsöguhátturinn lætur oftast í ljós hlutlausa frásögn, beinar fullyrðingar (hvort sem þær eru sannar eða ósannar) og beinar spurningar („ég fer á morgun“, „ferðu á morgun?“). Framsöguháttur er til í persónum, tölum, tíðum og myndum.

Framsöguháttur í íslensku

Sem dæmi má taka sagnbeyging sagnarinnar að „njóta“ eftir persónum í nútíð og þátíð:

Nútíð (nt.)Þátíð (þt.)
Eintala (et.)Fleirtala (ft.)Eintala (et.)Fleirtala (ft.)
1. persóna (1.p.)Ég nýtVið njótumÉg nautVið nutum
2. persóna (2.p.)Þú nýturÞið njótiðÞú naustÞið nutuð
3. persóna (3.p.)Hann/hún/það nýturÞeir/þær/þau njótaHann/hún/það nautÞeir/þær/þau nutu

Dæmi

  • Ég fer í bíó í hverri viku.
  • Hann leikur mann sem kemst að því að heimurinn er lygi.
  • Hefur þú lesið nýju bókina?


  Þessi málfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.