Jefferson Airplane

Jefferson Airplane var bandarísk rokkhljómsveit frá San Francisco í Kaliforníu sem starfaði aðallega frá 1965 til 1973. Hljómsveitin var í fararbroddi sýrurokksins við San Francisco-flóa á hippatímabilinu. Hljómsveitin var ein af aðalhljómsveitum tónlistarhátíðanna Monterey Pop Festival 1967, Woodstock 1969, Altamont Free Concert 1969 og Isle of Wight-hátíðarinnar 1968. Platan Surrealistic Pillow var ein af þekktustu plötum ástarsumarsins 1967. Tvö lög af þeirri plötu, „Somebody to Love“ og „White Rabbit“ hafa verið tilnefnd á lista Rolling Stone yfir „500 bestu lög allra tíma“.

Jefferson Airplane árið 1966.

Frá október 1966 til febrúar 1970 var hljómsveitin skipuð Marty Balin (söngur), Paul Kantner (gítar, söngur), Grace Slick (söngur, hljómborð), Jorma Kaukonen (sólógítar, söngur), Jack Casady (bassi) og Spencer Dryden (trommur). Balin hætti árið 1971 og Kaukonen og Casady stofnuðu hljómsveitina Hot Tuna árið 1972. Kantner, Slick og aðrir meðlimir stofnuðu hljómsveitina Jefferson Starship árið 1974. Balin gekk síðan til liðs við þá hljómsveit. Jefferson Airplane kom einu sinni saman á ný árið 1989. Meðlimir hljómsveitarinnar hafa tekið þátt í gerð heimildarmynda og gefið út aukaefni.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.