Rafrás
Rafrás er samtenging rásaeininga eða íhluta eins og rafviðnáma, spanspóla, þétta og rofa. Rafrás hefur lokaða hringrás sem rafstraumur gengur um.
Lögmál rásafræðinnar
Allar rafrásir lúta eðlisfræðilegum lögmálum. Nokkur þeirra eru
- Straumlögmál Kirchhoffs (KCL): summa strauma sem koma að hnútpunkti er jöfn summu strauma sem fara frá hnútpunkti.
- Spennulögmál Kirchhoffs (KVL): summa spennufalla eða -risa um lokaða lykkju í rafrás er alltaf núll.
- Lögmál Ohms: spenna yfir viðnám er jöfn margfeldi viðnámsins og straumsins sem rennur í gegnum það.
- Lögmál Nortons: hvaða rás sem inniheldur aðeins samviðnám og spennulindir og hefur tvær ytri tengingar er hægt að umbreyta í jafngilda rás sem inniheldur eingöngu straumlind tengda samhliða við samviðnám.
- Lögmál Thevenins: hvaða rás sem inniheldur aðeins samviðnám og spennulindir og hefur tvær ytri tengingar er hægt að umbreyta í jafngilda rás sem inniheldur eingöngu spennulind raðtengda við samviðnám.
Heimildir
- Fyrirmynd greinarinnar var „Electrical Network“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. desember 2006.
Tenglar
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Rafrásum.
- Ítarefni um rafrásir
- Electronic Circuits & Tutorials: Safn af rafrásum og leiðbeiningum.
- Forrit sem hermir rafrás
- Circuit simulator applet: sýnir vel hvernig spenna og straumur haga sér.
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt