Samsíða sjónarhorn
Samsíða sjónarhorn eða japanskt sjónarhorn er aðferð við að sýna þrívídd í tvívíðri mynd. Aðferðin á uppruna sinn í Kína og einkennir bæði kínverska og japanska myndlist, en ástæða nafnsins er að það voru japanskar prentmyndir sem höfðu áhrif á evrópska myndlist á 19. öld. Einkenni samsíða sjónarhorns er að það skortir fjarvídd þannig að ef t.d. er horft framan á eitt horn kubbs eru skálínur hliða hans samsíða. Allt það sem er samsíða í því þrívíða rými sem myndað er verður einnig samsíða í myndinni og hlutir minnka ekki eftir því sem fjær dregur. Samsíða sjónarhorn er oft notað í þrívíddarhönnun með aðstoð tölvu.
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt