Snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði

Snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði í Esju þykir vera ábending um tíðarfar og loftslagsbreytingar. Páll Bergþórsson fyrrum veðurstofustjóri hefur fylgst með fönninni um langt skeið.

Glittir í Gunnlaugsskarð milli tveggja tinda Esju.

Snjókaflinn í Gunnlaugsskarði

ÁrÁstand
2023Skaflinn hvarf
2022Skaflinn hélt
2019Skaflinn hvarf
2013-2018Snjófönn hélt [1]
2012Horfinn í byrjun september.
2011Skaflinn hélt: Minnstur 4 metra á breidd og 10-20 cm þykkur. [2]
2001-2010Skaflinn hvarf. [3]
1999-2000Fannir halda.
1998Horfnar fannir 6. ágúst. [4]
1965-199733ja ára skeið þegar fannir hverfa ekki.
1932Esja snjólaus með öllu í byrjun ágústmánaðar
1929-1964...leysti fannirnar 19 sinnum, oftast á 4. áratugnum. ( Hurfu 1929, 1932, 1933, 1934, 1935, 1936, 1939, 1941, 1942, 1945, 1946, 1947, 1950, 1953, 1957, 1959, 1960, 1961, 1964 )
1928Lítil fönn eftir í Esju.
1847/1852- 1929Fannir í suðurhlíðum Esju héldu.

Ítarefni

Fannir í Esju mæla lofthita. Vedur.is


Tilvísanir