Stefán Karl Stefánsson

Stefán Karl Stefánsson (fæddur 10. júlí 1975 í Hafnarfirði, látinn 21. ágúst 2018 í Reykjavík) var íslenskur leikari. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sín sem Glanni glæpur í Latabæ og sem Trölli (The Grinch) í söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum víða í Bandaríkjunum og Kanada.

Stefán Karl Stefánsson
FæddurStefán Karl Stefánsson
10. júlí 1975
Hafnarfjörður,
Fáni Íslands Íslandi
Dáinn21. ágúst 2018 (43 ára) Reykjavík, Íslandi
Ár virkur1994 – 2018

Stefán Karl útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1999 en áður hafði hann verið í Leikfélagi Hafnarfjarðar frá 13 ára aldri. Hann starfaði í Þjóðleikhúsinu um árabil. Ein þekktasta sýning hans var með Hilmi Snæ Guðnasyni í uppsetningu á írska leikritinu Með fulla vasa af grjóti . Stefán Karl og Hilmir Snær skiptust þar á að leika 14 hlutverk og urðu sýningar nærri 200.[1]

Hann stofnaði samtök gegn einelti; Regnbogabörn, en sjálfur hafði hann lent í einelti.[2]

Árið 2016 var Stefán Karl greindur með krabbamein í gallrásum.[3][4] Hann lést í ágúst árið 2018. Hann lét eftir sig eiginkonuna Steinunn Ólínu Þorsteinsdóttur, leikkonu, tvö börn og tvö stjúpbörn.

Árið 2018 var Stefán Karl sæmdur riddarkrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar leiklistar og samfélags.

Kvikmynda- og sjónvarpsþáttaferill

ÁrKvikmynd/ÞátturHlutverkAthugasemdir og verðlaun
1994Áramótaskaupið 1994
1995EinkalífNemandi
1999Áramótaskaupið 1999
2001EilífðinSalamandran
RegínaLögregluþjónn
Áramótaskaupið 2001
2002Áramótaskaupið 2002
Litla lirfan ljótaOrmurinn
Stella í framboðiIngimundur
2004-2007, 2013-2014Latibær (e. LazyTown)Glanni Glæpur (e. Robbie Rotten)
2007Anna and the MoodsMargir
2009JóhannesDiddi
2011Thor
2011Kurteist fólkLárus Skjaldarson
2014Harry og HeimirSímon

Leiklistarferill

ÁrVerkHlutverkAthugasemdir og verðlaun
1997-1998Frumskógarbókin (Rudyard Kipling)
1998-1999Krákuhöllin ( Einar Örn Gunnarsson)
1998-1999Ivanov (Anton Chekhov)
1999-2000Litla hryllingsbúðin
1999-2000Draumur á Jónsmessunótt (Shakespeare)
1999-2000100 eyja sósa (Hallgrímur Helgason)
2000-2001, 2012-2013, 2017Með fulla vasa af grjóti (Marie Jones)Ýmis
2000-2001Singin' in the Rain
2000-2002Kirsuberjagarðurinn (Anton Chekhov)
2001-2002Cyrano de Bergerac (Edmond Rostand)
2002-2003Allir á svið! (Noises off) (Michael Frayn)
2002-2003(Þrjú tilbrigði við lífið (Trois versions de la vie) (Yasmina Reza)
2008-2015Dr. Seuss' How the Grinch Stole Christmas! The MusicalGrinch

Tenglar

Tilvísanir

  Þetta æviágrip sem tengist leikurum og Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.