Arabíuskaginn
skagi í Suðvestur-Asíu
Arabíuskaginn eða einfaldlega Arabía er skagi í Suðvestur-Asíu á mörkum Asíu og Afríku. Skaginn teygist út í Indlandshaf og markast af Rauðahafi að Akabaflóa í vestri, Arabíuhafi í suðri og Ómanflóa og Persaflóa í norðaustri.
Eftirfarandi ríki eru á Arabíuskaga:
Norðurmörk Arabíuskagans eru við Sagrosfjöll þar sem Arabíuflekinn rekst á Asíuflekann. Af þessari ástæðu eru eftirfarandi ríki einnig á Arabíuskaganum að hluta:
Arabíuskaginn liggur á eigin jarðfleka, Arabíuflekanum.
Sádi-Arabía nær yfir stærstan hluta skagans og flestir íbúanna búa þar og í Jemen. Á skaganum eru miklar olíulindir og þar eru helgustu borgir múslima, Mekka og Medína, báðar í Sádi-Arabíu.
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt