Austurríkiskeisari

Austurríkiskeisari var keisari Austurríska keisaradæmisins og síðar Austurrísk-ungverska keisaradæmisins frá 1804 til 1918. Titillinn var búinn til af Frans 2. keisara Heilaga rómverska ríkisins, rétt áður en það var leyst upp. Frans varð eftir það Frans 1. Austurríkiskeisari. Titillinn gekk í arf innan Habsburg-Lorraine-ættar þar til Karl 1. Austurríkiskeisari sagði af sér 1918.

Karl 1. var síðasti Austurríkiskeisarinn.
RöðKeisariTímabilAth.
1Frans I1804-1835Var síðasti keisari hins heilaga rómverska keisaradæmis
2Ferdinand I1835-1848Sonur Frans I og Maríu Teresíu
3Frans Jósef I1848-1916Bróðursonur Ferdinands I
4Karl I1916-1918Frændi ofangreindra keisara