Beda prestur

Beda prestur (fæddur um 672, dáinn 26. maí 735), einnig þekktur sem heilagur Beda eða Beda hinn æruverðugi var engilsaxneskur klerkur og fræðimaður við klaustrið að Jarrow í Norðymbralandi. Hann var víðfrægur fræðimaður á sinni tíð og raunar langt fram eftir miðöldum. Hann er stundum nefndur faðir enskrar sagnfræði. Meðal þekktra rita hans eru Kirkjusaga Englendinga (Historia ecclesiastica gentis Anglorum) og aldarfarsbók hans (Chronica maiora).

Málverk af Beda presti að þýða Jóhannesarguðspjall eftir J. D. Penrose.
De natura rerum, 1529

Í Landnámabók er frásögn af eylandinu Týli höfð eftir aldarfarsbók Beda og tekin til vitnis um að Ísland hafi verið þekkt fyrir landnám, en Ari fróði virðist hafa haldið Beda í miklum metum.[1]

Heimildir

Tenglar