Destiny's Child

Destiny's Child var bandarísk stúlknahljómsveit sem samanstóð endanlega af Beyoncé Knowles, Kelly Rowland og Michelle Williams. Hljómsveitin var stofnuð árið 1990 í Houston, Texas í Bandaríkjunum undir nafninu Girl's Tyme.[1] Eftir nokkur ár af takmörkuðum árangri fékk upprunalegi hópurinn, sem samanstóð af Knowles, Roland, LaTavia Roberson og LeToya Luckett, útgáfusamning hjá Columbia Records árið 1997 undir nafninu Destiny's Child. Hljómsveitin varð þekkt í kjölfar útgáfu á laginu „No, No, No“ sem kom af fyrstu plötunni þeirra, Destiny's Child (1998). Önnur plata hljómsveitarinnar, The Writing's on the Wall (1999), naut mikilla vinsælda og varð mest selda plata þeirra. Af henni komu út smáskífurnar „Bills, Bills, Bills“ og „Say My Name“ sem komust í efsta sæti vinslædalista. Þrátt fyrir mikla velgengni var hljómsveitin þjökuð af innri átökum og lagalegum vandræðum, þar sem Roberson og Luckett reyndu að segja sig skilið frá umboðsmanni hópsins, Mathew Knowles, og vísuðu þær til þess að Knowles of Rowland væru í uppáhaldi hjá honum og fengu betri meðferð en þær.

Destiny's Child
Destiny's Child á hálfleikssýningu Super Bowl árið 2013 (frá vinstri: Kelly Rowland, Beyoncé Knowles, Michelle Williams)
Destiny's Child á hálfleikssýningu Super Bowl árið 2013 (frá vinstri: Kelly Rowland, Beyoncé Knowles, Michelle Williams)
Upplýsingar
Önnur nöfnGirl's Tyme
UppruniHouston, Texas, Bandaríkin
Ár1990–2006
Stefnur
Útgefandi
Fyrri meðlimir
  • Beyoncé Knowles
  • Kelly Rowland
  • Michelle Williams
  • LaTavia Roberson
  • LeToya Luckett
  • Farrah Franklin
Vefsíðadestinyschild.com

Snemma árs 2000 var Roberson og Luckett skipt út fyrir Williams of Farrah Franklin. Franklin hætti þó eftir nokkra mánuði og varð hljómsveitin þess vegna þríeyki. Þriðja plata þeirra, Survivor (2001), sem almenningur túlkaði sem leið hópsins til að syngja um reynslu sína, gaf af sér lögin, „Independent Women, „Survivor“ og „Bootylicious“ sem urðu vinsæl um allan heim. Árið 2001 tilkynnti hljómsveitin um hlé fyrir meðlimi hennar að eltast við sólóferil.[2] Hljómsveitin sameinaðist á ný tveimur árum síðar fyrir útgáfuna á fimmtu og síðustu breiðskífunni þeirra, Destiny Fulfilled (2004). Af henni komu lögin „Lose My Breath“ og „Soldier“ sem nutu mikilla vinsælda á heimsvísu. Frá því að hljómsveitin hætti formlega árið 2006 hafa Knowles, Rowland og Williams komið fram saman sem Destiny's Child nokkrum sinnum, þar á meðal á hálfleikssýningunni á Super Bowl 2013 og á Coachella tónlistarhátíðinni 2018.

Destiny's Child hefur selt meira en 60 milljónir platna til og með 2013.[3] Billboard hefur útnefnt hljómsveitina sem eitt af bestu tónlistartríóum allra tíma, níunda farsælasta flytjanda fyrsta áratugar 21. aldar og sett hljómsveitina í 68. sæti á All-Time Hot 100 Artists listanum sínum árið 2008.[4][5][6] Í desember 2016 nefndi tímaritið hljómsveitina sem 90. farsælasta dansklúbbs-flytjanda allra tíma.[7] Hljómsveitin hefur hlotið 14 tilnefningar til Grammy-verðlauna og unnið tvö verðlaun fyrir Best R&B Performance by a Duo or Group with Vicals og ein verðlaun fyrir Best R&B Song.

Útgefið efni

  • Destiny's Child (1998)
  • The Writing's on the Wall (1999)
  • Survivor (2001)
  • 8 Days of Christmas (2001)
  • Destiny Fulfilled (2004)

Meðlimir

  • Beyoncé Knowles (1997-2006)
  • LeToya Luckett (1997-2000)
  • LaTavia Roberson (1997-2000)
  • Kelly Rowland (1997-2006)
  • Farrah Franklin (2000)
  • Michelle Williams (2000-2006)

Verðlaun og tilnefningar

Destiny's Child hefur unnið þrjú Grammy-verðlaun af fjórtán tilnefningum. Hljómsveitin hefur einnig unnið BRIT verðlaun, Guinness heimsmet, tvö BET-verðlaun, tvö MTV Video Music-verðlaun og fimm American Music Awards.

Heimildir

Fyrirmynd greinarinnar var „Destiny's Child“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. júní 2023.

Tilvísanir