Elfdælska

Elfdælska (övdalsk eða övdalską, sænska: älvdalska eða älvdalsmål) er austurnorrænt tungumál talað í Älvdalen, í héraðinu Dölum í Svíþjóð. Um það bil 2.000-3.000 manns tala elfdælsku (2018). Eins og önnur norræn tungumál á elfdælska rætur sínar að rekja til fornnorrænu, en hún þróaðist frekar einangruð frá miðöldum og telst nánari fornnorrænu en hin skandinavísku málin. Elfdælsk málfræði er nokkuð svipuð þeirri íslensku, til dæmis hafa föll varðveist og sagnbeygingar eru flóknari en á sænsku. Þó að elfdælskan hafi haldið við mörgum gömlum málfræðilegum fyrirbærum hafa nýjungar í málinu líka skapast.

Elfdælska
övdalsk, övdalską
MálsvæðiSvíþjóð
HeimshlutiDalir, Svíþjóð
Fjöldi málhafasirka 3.000
Sætiekki meðal 100 efstu
ÆttIndóevrópskt

 Germanskt
  Norrænt
   Austurnorrænt
    Dalamál
     Elfdælska

SkrifleturLatneskt stafróf
Opinber staða
Stýrt afSænskri málstöð
Tungumálakóðar
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Frá hljóðfræðilegu sjónarhorni er elfdælska frekar svipuð sænsku og norsku hvað varðar fjölda og eiginleika sérhljóða, en nefmælt sérhljóð eru líka til í málinu. Tannbergsmælt önghljóð /ð/ hefur líka varðveist, en það er horfið frá öllum öðrum norrænum málum nema dönsku og íslensku. Áherslan er yfirleitt á fyrsta atkvæði orðs.

Einu sinni var elfdælskan talin mállýska sænsku, en í dag er hún talin sér tungumál. Munurinn á elfdælsku og sænsku er meiri en á sænsku og norsku.[1]

Heimildir

  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.