Enron

bandarískt orku- og hrávörusölufyrirtæki

Enron Corporation var bandarískt orku-, hrávöru- og þjónustufyrirtæki með aðsetur í Houston, Texas. Það var stofnað af Kenneth Lay árið 1985 við samruna fyrirtækjanna Lay's Houston Natural Gas og InterNorth, tveggja tiltölulega lítilla raforku- og gassölufyrirtækja. Fyrir gjaldþrot fyrirtækisins þann 2. desember 2001 störfuðu um 20.000 manns hjá Enron, sem var m.a stórtækt á sviði raforku- og jarðgassölu, fjarskipta og hrávörumiðlunar[1].

Enron Corporation
RekstrarformHlutafélag
Stofnað1985 (Fáni BandaríkjanaOmaha, Nebraska)
StofnandiKenneth Lay
ÖrlögGjaldþrota
StaðsetningHouston, Texas
StarfsemiHrávörumiðlun og orkusala
Starfsfólk20.000 (árið 2000)

Enron-hneykslið

Í lok árs 2001 kom í ljós að stjórnendur Enron höfðu stundað stórfelld bókhaldssvik í þeim tilgangi að blása upp hlutabréfaverð fyrirtækisins. Fyrirtækið fór að lokum fram á gjaldþrotaskipti, sem leiddi til þess að þúsundir starfa töpuðust ásamt því að fjöldi fjárfesta tapaði milljörðum dollara. Bókhaldssvikin voru með þeim stærstu í sögunni og hafa í seinni tíð verið nefnd Enron-hneykslið, en þau voru sögð hafa verið stofnanavædd, kerfisbundin og vel skipulögð.[2].

Tilvísanir