Flákaský
Flákaský (fræðiheiti: Strato-Cumulus) er lágský, og eru gráleitir (eða dökkir) og ávalir lágskýjalopar á himni. Flákaský raðast hlið við hlið og mynda þykkni yfir allt loftið eða hluta þess. Oft sjást ljósleit skýjadeili milli lopanna eða blár himinn. Stundum geta þau nálgast stórgerð netjuþykkni að útliti. Sjaldan rignir úr flákaskýjum, nema þau séu undir grábliku, sem rignir úr, eða jafnvel runnin saman við hana. Efra borð flákaskýja er oft um 1500 m yfir jörð. Úr flugvél sýnast þau sem hvítleitt, öldótt þokuhaf, sem fjallatindar mæna stundum upp úr.
Flákaský | |
---|---|
Skammstöfun | Fs |
Merki | |
Hæð | fyrir neðan 2.400 m |
Gerð skýja | Lágský (í litlri hæð) |
Útlit | Stórir hnoðrar |
Úrkoma | Mjög lítil úrkoma. Rigningin boðar storm í sumum tilfellum. |
Flákaský eru mjög algeng á Íslandi.
Heimild
- Veður og umhverfi, bls. 33, Unnur Ólafsdóttir þýddi, Mál og menning / Edda útgáfa hf. Reykjavík.
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt