Garðabær

sveitarfélag á höfuðborgarsvæði Íslands

Garðabær er sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu á milli Kópavogs og Hafnarfjarðar. Íbúar eru tæplega 19.000 (mars 2023).

Garðabær
Garðakirkja á Álftanesi
Garðakirkja á Álftanesi
Skjaldarmerki Garðabæjar
Staðsetning Garðabæjar
Staðsetning Garðabæjar
Hnit: 64°05′18″N 21°55′11″V / 64.08833°N 21.91972°V / 64.08833; -21.91972
LandÍsland
KjördæmiSuðvesturkjördæmi
Þéttbýliskjarnar
Stjórnarfar
 • BæjarstjóriAlmar Guðmundsson  D 
Flatarmál
 • Samtals46 km2
 • Sæti60. sæti
Mannfjöldi
 (2024)
 • Samtals19.088
 • Sæti6. sæti
 • Þéttleiki414,96/km2
Póstnúmer
210, 212
Sveitarfélagsnúmer1300
Vefsíðagardabaer.is

Garðahreppur varð til árið 1878, ásamt Bessastaðahreppi, þegar Álftaneshreppi var skipt í tvo hluta. Var hann kenndur við kirkjustaðinn Garða á Álftanesi. Hafnarfjörður var innan hreppsins fyrstu þrjá áratugina, en var skilinn frá honum þegar hann fékk kaupstaðarréttindi 1. júní 1908. Sjálfur fékk Garðahreppur kaupstaðarréttindi 1. janúar 1976 og nefndist eftir það Garðabær.

Samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs þann 20. október 2012, fór fram íbúakosning í Garðabæ og sveitarfélaginu Álftanesi og var sameining þeirra í eitt sveitarfélag samþykkt. Hið nýja sveitarfélag heitir Garðabær. Sameiningin tók gildi um áramótin 2012/2013.[1][2]

Náttúra

Í suðurhluta sveitarfélagsins er náttúrusvæði sem nær að Húsfelli, Vífilstaðahlíð í Heiðmörk og er Búrfellsgjá, gömul eldstöð, innan þess.

Vötnin Vífilsstaðavatn og Urriðavatn eru nálægt byggðinni í Garðabæ. Gálgahraun og Garðahraun, bæði hluti af Búrfellshrauni og Maríuhellar eru meðal friðlýstra svæði.[3]

Reykjanesfólkvangur og Bláfjallafólkvangur eru að hluta innan Garðabæjar.

Á Bessastaðanesi er ríkulegt fuglalíf eins og á strönd Álftaness.

Samfélag

Stjórnmál

Sjálfstæðisflokkurinn hefur í áratugi verið með völd í bæjarfélaginu. Almar Guðmundsson er núverandi bæjarstjóri Garðabæjar.

Íþróttir

Ungmennafélagið Stjarnan er með lið í knattspyrnu, handbolta, fimleikum og fleiri íþróttum. Álftanes er með körfuboltalið sem komst í efstu deild árið 2023.

Sundlaugar eru Álftaneslaug og Ásgarðslaug.

Verslun

Stórverslanirnar IKEA og Costco eru með aðsetur í verslunarkjarnanum Kauptún í Garðabæ. Annar verslunarkjarni er Garðatorg sem er meira miðsvæðis.

Söfn

  • Hönnunarsafn Íslands er við Garðatorg
  • Minjagarður að Hofsstöðum (við götuna Kirkjulund): Minjar af næststærsta landnámsskála sem fundist hefur á Íslandi.
  • Krókur á Garðaholti: Lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923.

Merkir staðir

Hverfi og götur

Hverfi og götur í Garðabæ eru allnokkur

Götur og hverfi í Garðabæ
HverfiGata
AkrarÁrakur
AkrarBreiðakur
AkrarByggakur
AkrarDalakur
AkrarFrjóakur
AkrarGoðakur
AkrarGullakur
AkrarHallakur
AkrarHaustakur
AkrarHjálmakur
AkrarHofakur
AkrarHvannakur
AkrarJafnakur
AkrarKaldakur
AkrarKornakur
AkrarKrossakur
AkrarLínakur
AkrarLjósakur
AkrarMaltakur
AkrarRúgakur
AkrarSandakur
AkrarSeinakur
AkrarSkeiðakur
AkrarStórakur
AkrarSunnakur
AkrarVotakur
ArnarnesKríunes
ArnarnesÞernunes
ArnarnesHegranes
ArnarnesTjaldanes
ArnarnesBlikanes
ArnarnesHaukanes
ArnarnesMávanes
ArnarnesSúlunes
ArnarnesTeistunes
ArnarnesÞrastanes
ÁsarArnarás
ÁsarAsparás
ÁsarBirkiás
ÁsarBjarkarás
ÁsarBorgarás
ÁsarBreiðás
ÁsarBrekkuás
ÁsarBrúnás
ÁsarEikarás
ÁsarFuruás
ÁsarGreniás
ÁsarHoltás
ÁsarHraunás
ÁsarKjarrás
ÁsarKlettás
ÁsarLaufás
ÁsarLerkiás
ÁsarLyngás
ÁsarMelás
ÁsarÖgurás
ÁsarSkrúðás
ÁsarSteinás
ÁsarStórás
ÁsarTunguás
ÁsarVattarás
ÁsarVíðiás
BæjargilBæjargil
BúðirÁsbúð
BúðirHoltsbúð
ByggðirHlíðarbyggð
ByggðirBrekkubyggð
ByggðirDalsbyggð
ByggðirHæðarbyggð
FitjarLækjarfit
FitjarLangafit
FitjarTúnfit
FlatirMóaflöt
FlatirBakkaflöt
FlatirBrúarflöt
FlatirGarðaflöt
FlatirHagaflöt
FlatirLindarflöt
FlatirMarkarflöt
FlatirSmáraflöt
FlatirStekkjarflöt
FlatirSunnuflöt
FlatirTjarnarflöt
GarðatorgGarðatorg
GrundirÆgisgrund
GrundirMarargrund
GrundirNjarðargrund
GrundirRánargrund
GrundirSjávargrund
GrundirUnnargrund
HæðirAftanhæð
HæðirBirkihæð
HæðirBlómahæð
HæðirDraumahæð
HæðirEyktarhæð
HæðirFagrahæð
HæðirHáhæð
HæðirJökulhæð
HæðirLynghæð
HæðirMelhæð
HæðirNónhæð
HæðirÓttuhæð
HæðirRjúpnahæð
HæðirSigurhæð
HæðirSkógarhæð
HæðirUrðarhæð
HnoðraholtEskiholt
HnoðraholtHáholt
HnoðraholtHrísholt
HólarHraunhólar
HólarLynghólar
LundirAsparlundur
LundirEfstilundur
LundirEinilundur
LundirEspilundur
LundirFurulundur
LundirGígjulundur
LundirGrenilundur
LundirHeiðarlundur
LundirHofslundur
LundirHörgslundur
LundirHörpulundur
LundirHvannalundur
LundirKirkjulundur
LundirReynilundur
LundirSkógarlundur
LundirVíðilundur
LundirÞrastarlundur
MóarHrísmóar
MóarKjarrrmóar
MóarLyngmóar
MýrarLangamýri
MýrarEngimýri
MýrarFífumýri
MýrarKrókamýri
MýrarLjósamýri
Sjáland17.Júnítorg
SjálandLangalína
SjálandNorðurbrú
SjálandNýhöfn
SjálandStrandvegur
SjálandStrikið
SjálandVesturbrú
TúnFaxatún
TúnAratún
TúnGoðatún
TúnHörgatún
TúnLitlatún
UrriðaholtBæjargata
UrriðaholtBrekkugata
UrriðaholtDýjagata
UrriðaholtDyngjugata
UrriðaholtHellagata
UrriðaholtHoltsvegur
UrriðaholtHraungata
UrriðaholtKeldugata
UrriðaholtKinnargata
UrriðaholtLindastræti
UrriðaholtLynggata
UrriðaholtMaríugata
UrriðaholtSjónarvegur
UrriðaholtUrðargata
UrriðaholtUrriðaholtsstræti
UrriðaholtVíkurgata
UrriðaholtVinastræti


Tilvísanir

Tenglar

Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.