Listi yfir fullvalda ríki

Listi yfir fullvalda ríki gefur yfirlit yfir fullvalda ríki um allan heim með upplýsingum um stöðu þeirra og viðurkenningu á fullveldi þeirra.

A long row of flags
Fánar aðildarríkja og áheyrnarríkja Sameinuðu þjóðanna fyrir framan Þjóðahöllina í Genf, Sviss.

Hægt er að skipta ríkjunum 208 í þrjá flokka eftir því hver staða þeirra er innan Sameinuðu þjóðanna: 193 aðildarríki,[1] 2 áheyrnarríki, og 13 önnur ríki. Dálkurinn „Deilur um fullveldi“ sýnir að fullveldið er óumdeilt í 188 tilvikum, en umdeilt í 18 tilvikum. Af þessum 18 eru 6 aðildarríki, 1 áheyrnarríki og 11 önnur ríki. Að auki eru 2 ríki með sérstaka stöðu.

Listar af þessu tagi eru alltaf umdeilanlegir, þar sem engin bindandi skilgreining er til á því hvaða skilyrði ríki þurfa að uppfylla til að teljast fullvalda. Nánar er fjallað um skilyrðin hér fyrir neðan. Á listanum eru líka lönd sem eru talin hafa stöðu fullvalda ríkja de facto, en ekki ætti að líta á það sem stuðning við kröfur um viðurkenningu á sjálfstæði þeirra.

Skilgreiningar

Þessi listi á rætur að rekja til skilgreiningarinnar á því hvað telst fullvalda ríki samkvæmt fyrstu grein Montevídeósáttmálans frá 1933. Samkvæmt sáttmálanum, þarf fullvalda ríki að hafa þessa eiginleika: (a) stöðugan fólksfjölda, (b) afmarkað landsvæði, (c) ríkisstjórn, og (d) möguleika á því að vinna með öðrum ríkjum, svo fremi sem það hafi ekki fengist með vopnavaldi, hótunum eða öðrum þvingunaraðgerðum.[2]

Deilt er um það hvort og að hve miklu leyti viðurkenning skiptir máli fyrir sjálfstæði ríkja. Ef skilgreiningunni hér að framan er fylgt ætti hún að nægja til að ríki teljist sjálfstæð, og viðurkenning annarra ríkja skiptir þá engu máli. Á hinn bóginn, ef óskilyrtu kenningunni um ríkjamyndun er fylgt getur ríki aðeins talist fullgildur aðili að alþjóðasamskiptum ef önnur ríki viðurkenna fullveldi þess. Á eftirfarandi lista eru ríki sem:

  • líta á sig sem sjálfstæð ríki (til dæmis með sjálfstæðisyfirlýsingu) og eru oft álitin uppfylla skilgreininguna að framan, eða
  • eru viðurkennd sem sjálfstæð ríki af minnst einu aðildarríki Sameinuðu þjóðanna.

Í sumum tilvikum kann að vera umdeilt hvort tiltekið ríki uppfylli skilyrðin í Montevídeósáttmálanum. Ríki sem telja sig fullvalda en uppfylla ekki öll skilyrðin eru stundum kölluð hálfgildingsríki.[3][4]

Á grundvelli þessara skilyrða eru því 208 ríki á listanum:

  • 205 ríki sem njóta viðurkenningar minnst eins aðildarríkis Sameinuðu þjóðanna
  • 1 ríki sem uppfyllir skilyrðin, en er aðeins viðurkennt af ríkjum sem ekki eru aðildarríki Sþ (Transnistría)
  • 1 ríki sem uppfyllir skilyrðin, en nýtur ekki viðurkenningar neins annars ríkis (Sómalíland)

Í töflunni er að finna undirlista yfir lönd sem eru ýmist ekki fullvalda eða eru nátengd öðru fullvalda ríki. Þar er líka að finna svæði þar sem yfirráð annars ríkis eru takmörkuð með alþjóðasamningum. Þetta eru:

  • Ríki í frjálsu sambandi við annað ríki
  • Tvö svæði undir yfirráðum Pakistan sem eru hvorki fullvalda, hjálendur né hlutar annarra ríkja: Azad Kasmír og Gilgit Baltistan
  • Hjálendur annars ríkis, auk landsvæða sem sýna mörg einkenni hjálenda
  • Landsvæði sem stofnuð hafa verið með alþjóðasamningum

Listinn

Heiti ríkjanna hér eru í langflestum tilvikum samkvæmt lista Árnastofnunar yfir ríkjaheiti.[5]

Almennt og opinbert heitiAðild að Sameinuðu þjóðunum[6]Deilur um fullveldiFrekari upplýsingar um stöðu og viðurkenningu fullveldis
A AAAA AAAA AAA
ZZZ↓ Aðildarríki og áheyrnarríki Sþ ↓A AAAZZZ
ZZZAbkasía → Sjá færsluna fyrir Abkasíu
 AfganistanA Aðildarríki SþA EngarRíkjandi stjórn í Afganistan sem nefnir landið „íslamska emírsdæmið Afganistan“, hefur ekki verið viðurkennd af neinu ríki. Sameinuðu þjóðirnar viðurkenna stjórn „íslamska lýðveldisins Afganistan“ sem réttmæta stjórn landsins.[7][8]
 Albanía – Lýðveldið AlbaníaA Aðildarríki SþA Engar
 Alsír – Alþýðulýðveldið AlsírA Aðildarríki SþA Engar
ZZZAlþýðulýðveldið Kína → Sjá færsluna fyrir Kína
ZZZAlþýðulýðveldið Kórea → Sjá færsluna fyrir Norður-Kóreu
 Andorra – Furstadæmið AndorraA Aðildarríki SþA EngarAndorra er samfurstadæmi þar sem embætti þjóðhöfðingja deilist á Frakklandsforseta og biskupinn af Urgell,[9] sem aftur er skipaður af páfa.
 Angóla – Lýðveldið AngólaA Aðildarríki SþA Engar
 Antígva og BarbúdaA Aðildarríki SþA EngarAntígva og Barbúda á aðild að Breska samveldinu. Eitt sjálfstjórnarhérað, Barbúda, er hluti af ríkinu.
 Argentína – Argentínska lýðveldið[10]A Aðildarríki SþA EngarArgentína er sambandsríki 23 fylkja og einnar sjálfstjórnarborgar.[11]
 Armenía – Lýðveldið ArmeníaA Aðildarríki SþEkki viðurkennt af Pakistan.Pakistan viðurkennir ekki Armeníu vegna átakanna um Nagornó-Karabak.[12][13][14]
 Aserbaísjan – Lýðveldið AserbaísjanA Aðildarríki SþA EngarEitt sjálfstjórnarhérað, Sjálfstjórnarlýðveldið Naksjivan, er útlenda Aserbaísjan.
 Austur-Tímor – Lýðstjórnarlýðveldið Tímor-Leste[15]A Aðildarríki SþA Engar
 Austurríki – Lýðveldið AusturríkiA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Austurríki er sambandsríki 9 fylkja.
 Ástralía – Samveldið ÁstralíaA Aðildarríki SþA EngarÁstralía er aðili að Breska samveldinu og sambandsríki sex fylkja, þriggja yfirráðasvæða og sex handanhafssvæða, auk tilkalls til lands á Suðurskautslandinu. Handanhafssvæði Ástralíu eru:
 Bahamaeyjar – Samveldi Bahamaeyja[16]A Aðildarríki SþA EngarBahamaeyjar eiga aðild að Breska samveldinu.
 Bandaríkin – Bandaríki Norður-AmeríkuA Aðildarríki SþA EngarBandaríkin eru sambandsríki 50 fylkja, eins alríkisumdæmis og eins innlimaðs yfirráðasvæðis (Palmýrurif). Auk þess fer alríkisstjórnin með yfirráð yfir 13 hjálendum. Af þeim eru fimm byggðar:

Hún fer líka með stjórn nokkurra óbyggðra eyja:

Stjórnin gerir líka tilkall til eftirfarandi svæða:

  • Bajo Nuevo-banki
  • Serranilla-banki

Þrjú sjálfstæð ríki hafa gerst sambandsríki Bandaríkjanna með samningi um frjálst samband:

 Bangladess – Alþýðulýðveldið BangladessA Aðildarríki SþA Engar
 BarbadosA Aðildarríki SþA Engar
 Barein – Konungsríkið BareinA Aðildarríki SþA Engar
 Belgía – Konungsríkið BelgíaA Aðildarríki SþA EngarBelgía á aðild að Evrópusambandinu. Belgía er sambandsríki þriggja málsamfélaga og þriggja héraða.
 BelísA Aðildarríki SþA EngarBelís á aðild að Breska samveldinu.
 Benín – Lýðveldið BenínA Aðildarríki SþA Engar
 Bosnía og HersegóvínaA Aðildarríki SþA EngarBosnía og Hersegóvína er mynduð úr tveimur aðilum:
  • Sambandsríkið Bosnía og Hersegóvína
  • Republika Srpska

Auk þess er Brčko-umdæmi sjálfstjórnarumdæmi.[17]

 Botsvana – Lýðveldið BotsvanaA Aðildarríki SþA Engar
 Bólivía – Fjölþjóðaríkið BólivíaA Aðildarríki SþA Engar
 Brasilía – Sambandslýðveldi BrasilíuA Aðildarríki SþA EngarBrasilía er sambandsríki með 26 fylki og eitt alríkisumdæmi.
 Bretland – Sameinað konungsríki Stóra-Bretlands og Norður-ÍrlandsA Aðildarríki SþA EngarBretland á aðild að Breska samveldinu. Það er samsett úr fjórum aðildarlöndum: Englandi, Norður-Írlandi, Skotlandi og Wales. Bretlandi tilheyra 13 hjálendur auk tilkalls til lands á Suðurskautslandinu:

Breska krúnan fer líka með yfirráð yfir þremur krúnunýlendum með heimastjórn:

 Brúnei – Þjóðin Brúnei, bústaður friðarinsA Aðildarríki SþA Engar
 Búlgaría – Lýðveldið BúlgaríaA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Búrkína FasóA Aðildarríki SþA Engar
ZZZBúrma → Sjá færsluna fyrir Mjanmar
 Búrúndí – Lýðveldið BúrúndíA Aðildarríki SþA Engar
 Bútan – Konungsríkið BútanA Aðildarríki SþA Engar
 Chile/Síle – Lýðveldið ChileA Aðildarríki SþA EngarTilkall Chile til lands á Suðurskautslandinu er formlega skilgreint sem sveitarfélagið Antártica Chilena sem aftur er hluti af Magellaneshéraði.
ZZZCooks-eyjar → Sjá færsluna fyrir Cooks-eyjar
ZZZCôte d'Ivoire → Sjá færsluna fyrir Fílabeinsströndina
 Danmörk – Konungsríkið DanmörkA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Tvö heimastjórnarsvæði eru hluti af konungsríkinu:

Danmörk, Færeyjar og Grænland mynda þrjú lönd konungsríkisins. Danmörk er aðildarríki Evrópusambandsins, en aðildin nær ekki til Færeyja og Grænlands.[18][19]

 Djibútí – Lýðveldið DjibútíA Aðildarríki SþA Engar
 Dóminíka – Samveldi DóminíkuA Aðildarríki SþA Engar
 Dóminíska lýðveldiðA Aðildarríki SþA Engar
 Egyptaland – Arabíska lýðveldið EgyptalandA Aðildarríki SþA Engar
 Eistland – Lýðveldið EistlandA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins
 Ekvador – Lýðveldið EkvadorA Aðildarríki SþA Engar
 El Salvador – Lýðveldið El SalvadorA Aðildarríki SþA Engar
 Eritrea – EritreuríkiA Aðildarríki SþA Engar
 Esvatíní – Konungsríkið Esvatíní[20]A Aðildarríki SþA Engar
 Eþíópía – Sambandslýðveldið EþíópíaA Aðildarríki SþA EngarEþíópía er sambandsríki níu héraða og tveggja borga.
 Filippseyjar – Lýðveldið FilippseyjarA Aðildarríki SþA EngarEitt sjálfstjórnarhérað, Bangsamoro, tilheyrir Filippseyjum.
 Finnland – Lýðveldið FinnlandA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
  •  Álandseyjar eru hlutlaust og herlaust heimastjórnarsvæði innan Finnlands.
 Fídjieyjar – Lýðveldið FídjieyjarA Aðildarríki SþA EngarEitt sjálfstjórnarhérað er á Fídjieyjum, Rotuma.[21][22]
 Fílabeinsströndin – Lýðveldið Côte d'Ivoire[23]A Aðildarríki SþA Engar
 Frakkland – Franska lýðveldiðA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Frakklandi tilheyra fimm handanhafsumdæmi og -héruð:Franska Gvæjana, Guadeloupe, Martinique, Mayotte og Réunion. Frakklandi tilheyra líka handanhafssvæðin:
 Gabon – Gabonska lýðveldiðA Aðildarríki SþA Engar
 Gambía – Lýðveldi Gambíu[24]A Aðildarríki SþA Engar
 Gana – Lýðveldið GanaA Aðildarríki SþA Engar
 GeorgíaA Aðildarríki SþA EngarGeorgíu tilheyra tvö sjálfstjórnarlýðveldi, Adjara og sjálfstjórnarlýðveldið Abkasía. Abkasía er de facto undir stjórn Abkasíu. Suður-Ossetía er annað de facto sjálfstætt ríki innan Georgíu sem nýtur takmarkaðrar alþjóðlegrar viðurkenningar.
 Gínea – Lýðveldið GíneaA Aðildarríki SþA Engar
 Gínea-Bissá – Lýðveldið Gínea-BissáA Aðildarríki SþA Engar
 GrenadaA Aðildarríki SþA EngarGrenada er aðili að Breska samveldinu.
 Grikkland – Hellenska lýðveldiðA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Eitt sjálfstjórnarsvæði, Atosfjall, er innan Grikklands.[25]
 Grænhöfðaeyjar – Lýðveldið Cabo Verde[26]A Aðildarríki SþA Engar
 Gvatemala – Lýðveldið GvatemalaA Aðildarríki SþA Engar
 Gvæjana – Samvinnulýðveldið GvæjanaA Aðildarríki SþA Engar
 Haítí – Lýðveldið HaítíA Aðildarríki SþA Engar
 Holland – Konungsríkið HollandA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Innan konungsríkisins eru fjögur lönd með heimastjórn:

Að auki eru þrjú handanhafssveitarfélög í Karíbahafi: Bonaire, Saba og Sint Eustatius. Erópusambandsaðildin nær aðeins til Hollands (Evrópuhlutans).

 Hondúras – Lýðveldið HondúrasA Aðildarríki SþA Engar
 Hvíta-Rússland/Belarús – Lýðveldið Belarús[27]A Aðildarríki SþA EngarMörg ríki viðurkenna ekki forseta Hvíta-Rússlands, Alexander Lúkasjenkó, eftir umdeildar forsetakosningar árið 2020. Litáen lítur svo á að samstarfsráð sem Svjatlana Tsikanúskaja leiðir sé réttkjörin stjórn landsins.[28]
 Indland – Lýðveldið IndlandA Aðildarríki SþA EngarIndland er sambandsríki 28 fylkja og átta sambandssvæða.
 Indónesía – Lýðveldið IndónesíaA Aðildarríki SþA EngarIndónesíu tilheyra fimm sjálfstjórnarhéruð: Aceh, Djakarta, Papúa, Vestur-Papúa og sérstjórnarhéraðið Yogyakarta.
 Íran – Íslamska lýðveldið ÍranA Aðildarríki SþA Engar
 Írak – Lýðveldið ÍrakA Aðildarríki SþA EngarÍrak er sambandsríki[29] 19 landstjóraumdæma. Fjögur þeirra mynda sjálfstjórnarhéraðið Kúrdistanhérað.
 Írland[30]A Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 ÍslandA Aðildarríki SþA Engar
 Ísrael – ÍsraelsríkiA Aðildarríki SþEkki viðurkennt að hlutaÍsrael hefur de facto yfirráð yfir landsvæðum sem Palestínuríki gerir tilkall til. Það hefur innlimað Austur-Jerúsalem,[31] sem nýtur takmarkaðrar alþjóðlegrar viðurkenningar.[32] Ísrael hefur ýmis konar stjórn á svæðum á Vesturbakkanum, og er enn talið hafa hernámslið á Gasaströndinni.[33][34][35][36]

28 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna og Sahrawi-lýðveldið viðurkenna ekki Ísrael. Meirihluti aðildarríkja Sþ lítur á Frelsissamtök Palestínumanna, PLO, sem réttmætan fulltrúa Palestínumanna, en samtökin viðurkenndu Ísrael árið 1993.

 Ítalía – Ítalska lýðveldiðA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Á Ítalíu eru 5 sjálfstjórnarhéruð: Ágústudalur, Fríúlí-Venezia Giulia, Sardinía, Sikiley og Suður-Týról.
 JamaíkaA Aðildarríki SþA EngarÁ aðild að Breska samveldinu.
 JapanA Aðildarríki SþA Engar
 Jemen – Lýðveldið JemenA Aðildarríki SþA Engar
 Jórdanía – Hashemíska konungsríkið JórdaníaA Aðildarríki SþA Engar
 Kambódía – Konungsríkið KambódíaA Aðildarríki SþA Engar
 Kamerún – Lýðveldið KamerúnA Aðildarríki SþA Engar
 KanadaA Aðildarríki SþA EngarKanada er aðili að Breska samveldinu. Það er sambandsríki 10 fylkja og þriggja sjálfstjórnarsvæða.
 Kasakstan – Lýðveldið KasakstanA Aðildarríki SþA Engar
 Katar – KatarríkiA Aðildarríki SþA Engar
 Kenía – Lýðveldið KeníaA Aðildarríki SþA Engar
 Kirgistan – Kirgisíska lýðveldiðA Aðildarríki SþA Engar
 Kína – Alþýðulýðveldið Kína[37]A Aðildarríki SþEkki viðurkennt að hluta. Lýðveldið Kína gerir tilkall til alls Kína.Í Kína eru fimm sjálfstjórnarhéruð, Guangxi, Innri-Mongólía, Ningxia, Tíbet og Xinjiang. Auk þeirra eru sérstjórnarhéruðin:

Kína gerir tilkall til Taívan sem er undir stjórn lýðveldisins Kína sem aftur gerir tilkall til alls Kína.

14 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna og Vatíkanið viðurkenna ekki alþýðulýðveldið. Fyrir utan Bútan viðurkenna þau stjórn lýðveldisins Kína sem réttmæta stjórn alls Kína.

ZZZKína, Lýðveldið → Sjá færsluna fyrir Lýðveldið Kína
 Kíribatí – Lýðveldið KíribatíA Aðildarríki SþA Engar
ZZZKongó, Lýðstjórnarlýðveldið → Sjá færsluna fyrir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó
ZZZKongó, Lýðveldið → Sjá færsluna fyrir Lýðveldið Kongó
 Kosta Ríka – Lýðveldið Kosta RíkaA Aðildarríki SþA Engar
 Kólumbía – Lýðveldið KólumbíaA Aðildarríki SþA Engar
 Kómorur – KómorubandalagiðA Aðildarríki SþA EngarKómorur eru sambandsríki þriggja eyja með sjálfstjórn.
ZZZKórea, Norður → Sjá færsluna fyrir Norður-Kóreu
ZZZKórea, Suður → Sjá færsluna fyrir Suður-Kóreu
ZZZKósovó → Sjá færsluna fyrir Kósovó
 Króatía – Lýðveldið KróatíaA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Kúba – Lýðveldið KúbaA Aðildarríki SþA Engar
 Kúveit – KúveitríkiA Aðildarríki SþA Engar
 Kýpur – Lýðveldið KýpurA Aðildarríki SþEkki viðurkennt af Tyrklandi[38]Aðildarríki Evrópusambandsins. Norðausturhluti eyjunnar er de facto sjálfstæða Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur.

Tyrkland viðurkennir ekki fullveldi Kýpur vegna Kýpurdeilunnar. Tyrkland viðurkennir hins vegar stjórn Tyrkneska lýðveldisins á Norður-Kýpur.

 Laos – Alþýðulýðveldi LaótaA Aðildarríki SþA Engar
 Lesótó – Konungsríkið LesótóA Aðildarríki SþA Engar
 Lettland – Lýðveldið LettlandA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Liechtenstein – Furstadæmið LiechtensteinA Aðildarríki SþA Engar
 Litáen – Lýðveldið LitáenA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Líbanon – Líbanska lýðveldiðA Aðildarríki SþA Engar
 Líbería – Lýðveldið LíberíaA Aðildarríki SþA Engar
 Líbía – LíbíuríkiA Aðildarríki SþA Engar
 Lúxemborg – Stórhertogadæmið LúxemborgA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Lýðstjórnarlýðveldið Kongó[39]A Aðildarríki SþA Engar
 Lýðveldið Kongó[40]A Aðildarríki SþA Engar
 Madagaskar – Lýðveldið MadagaskarA Aðildarríki SþA Engar
ZZZMakedónía → Sjá færsluna fyrir Norður-Makedóníu
 Malasía – Sambandsríkið MalasíaA Aðildarríki SþA EngarMalasía er sambandsríki 13 fylkja og þriggja alríkisumdæma.
 Malaví – Lýðveldið MalavíA Aðildarríki SþA Engar
 Maldívur – Lýðveldi MaldívaA Aðildarríki SþA Engar
 Malí – Lýðveldið MalíA Aðildarríki SþA Engar
 Malta – Lýðveldið MaltaA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Marokkó – Konungsríkið MarokkóA Aðildarríki SþA EngarHluti Vestur-Sahara sem Marokkó gerir tilkall til er undir stjórn Sahrawi-lýðveldisins.
 Marshalleyjar – Lýðveldið Marshall-eyjarA Aðildarríki SþA EngarÍ frjálsu sambandi við Bandaríkin.
 Máritanía – Íslamska lýðveldið MáritaníaA Aðildarríki SþA Engar
 Máritíus – Lýðveldið MáritíusA Aðildarríki SþA EngarRodrigues er sjálfstjórnareyja innan Máritíus.
 Mexíkó – Bandaríki MexíkóA Aðildarríki SþA EngarMexíkó er sambandsríki 31 fylkis og einnar sjálfstjórnarborgar. Sapatistar hafa de facto yfirráð yfir uppreisnarsveitarfélögum í Chiapas.
 Mið-AfríkulýðveldiðA Aðildarríki SþA Engar
 Miðbaugs-Gínea – Lýðveldið Miðbaugs-GíneaA Aðildarríki SþA Engar
 Míkrónesía – Sambandsríki MíkrónesíuA Aðildarríki SþA EngarÍ frjálsu sambandi við Bandaríkin. Míkrónesía er sambandsríki fjögurra fylkja.
 Mjanmar – Lýðveldi bandalags MjanmarA Aðildarríki SþA EngarWa-fylki er de facto sjálfstætt ríki innan Mjanmar. Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki viðurkennt herforingjastjórnina í Mjanmar sem réttmæt stjórnvöld.[8]
 Moldóva – Lýðveldið MoldóvaA Aðildarríki SþA EngarÍ Moldóvu eru sjálfstjórnarhéruðin Gagauzia og austurbakki Dniester. Austurbakkinn og borgin Bender eru de facto undir stjórn Transnistríu.
 MongólíaA Aðildarríki SþA Engar
ZZZMontenegró → Sjá færsluna fyrir Svartfjallaland
 Mónakó – Furstadæmið MónakóA Aðildarríki SþA Engar
 Mósambík – Lýðveldið MósambíkA Aðildarríki SþA Engar
 Namibía – Lýðveldið NamibíaA Aðildarríki SþA Engar
 Naúrú – Lýðveldið NaúrúA Aðildarríki SþA Engar
 Nepal – Sambandslýðveldið NepalA Aðildarríki SþA EngarNepal er sambandsríki 7 sýslna.
 Níger – Lýðveldi NígerA Aðildarríki SþA Engar
 Nígería – Sambandslýðveldið NígeríaA Aðildarríki SþA EngarNígería er sambandsríki 36 fylkja og eins alríkishéraðs.
 Níkaragva – Lýðveldið NíkaragvaA Aðildarríki SþA EngarTvö sjálfstjórnarhéruð eru innan Níkaragva: Atlántico Sur og Atlántico Norte.
ZZZNiue → Sjá færsluna fyrir Niue
 Norður-Kórea – Alþýðulýðveldið Norður-KóreaA Aðildarríki SþSuður-Kórea gerir tilkall til Norður-Kóreu.Þrjú aðildarríki Sþ viðurkenna ekki Norður-Kóreu: Frakkland, Japan og Suður-Kórea. Suður-Kórea gerir tilkall til yfirráða á öllum Kóreuskaganum.[41]
 Norður-Makedónía – Lýðveldið Norður-MakedóníaA Aðildarríki SþA Engar
ZZZNorður-Kýpur → Sjá færsluna fyrir Tyrkneska lýðveldið á Norður-Kýpur
 Noregur – Konungsríkið NoregurA Aðildarríki SþA EngarNoregur fer með stjórn tveggja aðskildra landsvæða í Evrópu:
  • Svalbarði er hluti af Noregi, en hefur sérstaka stöðu vegna Svalbarðasamningsins.
  • Jan Mayen er óbyggð eyja sem er hluti af Noregi en ekki hluti af norskri stjórnsýslueiningu.

Noregur fer með stjórn einnar útlendu og gerir tilkall til tveggja landsvæða á Suðurskautslandinu:

 Nýja-SjálandA Aðildarríki SþA EngarNýja-Sjáland á aðild að Breska samveldinu. Nýja-Sjálandi tilheyrir eitt heimastjórnarsvæði og eitt tilkall á Suðurskautslandinu:

Ríkisstjórn Nýja-Sjálands fer með utanríkismál að hluta fyrir tvö ríki sem eru í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland:

Þessi lönd eiga í sjálfstæðu stjórnmálasambandi við ýmis ríki, hafa samningsrétt innan Sameinuðu þjóðanna og eru aðilar að ýmsum undirstofnunum þeirra.

 Óman – Soldánsdæmið ÓmanA Aðildarríki SþA Engar
 Pakistan – Íslamska lýðveldið PakistanA Aðildarríki SþA EngarPakistan er sambandsríki fjögurra fylkja og eins höfuðborgarsvæðis. Pakistan fer með stjórn svæða í Kasmír, en hefur ekki formlega innlimað þau,[42][43] heldur lítur á þau sem umdeild svæði.[44][45] Þessir hlutar skiptast í tvö landsvæði, og stjórn þeirra er aðskilin frá stjórn Pakistan:
  • Azad Kasmír
  • Gilgit-Baltistan

Azad Kasmír er lýst sem „sjálfstjórnarfylki undir stjórn Pakistan“ meðan Gilgit-Baltistan er lýst sem sjálfstjórnarsvæðum.[46][47][48] Oftast er ekki litið á þessi svæði sem fullvalda, þar sem þau uppfylla ekki skilyrðin til þess.[47][49][50]

 Palaú – Lýðveldið PalaúA Aðildarríki SþA EngarÍ frjálsu sambandi við Bandaríkin.
 Palestína - PalestínuríkiA Áheyrnarríki Sameinuðu þjóðanna og aðili að 2 undirstofnunum þeirra.Ekki viðurkennt að hluta.Palestínuríki lýsti yfir sjálfstæði árið 1988. Það er ekki viðurkennt af Ísrael, en hefur hlotið viðurkenningu 138 annarra ríkja.[51] Ríkið hefur engin ákveðin landamæri eða raunveruleg yfirráð yfir megninu af því landsvæði sem það gerir tilkall til.
 Panama – Lýðveldið PanamaA Aðildarríki SþA Engar
 Papúa Nýja-Gínea – Sjálfstætt ríki Papúu Nýju-GíneuA Aðildarríki SþA EngarPapúa Nýja-Gínea á aðild að Breska samveldinu. Það hefur eitt sjálfstjórnarsvæði: Bougainville.
 Paragvæ – Lýðveldið ParagvæA Aðildarríki SþA Engar
 Perú – Lýðveldið PerúA Aðildarríki SþA Engar
 Portúgal – Portúgalska lýðveldiðA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Portúgal nær yfir tvö heimastjórnarsvæði: Asóreyjar og Madeira.
 Pólland – Lýðveldið PóllandA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Rúanda – Lýðveldið RúandaA Aðildarríki SþA Engar
 RúmeníaA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Rússland – Rússneska sambandsríkiðA Aðildarríki SþA EngarRússland er sambandsríki 85 sambandsaðila (lýðvelda, héraða, sýslna, sjálfstjórnarsvæða, alríkisborga og sjálfstjórnarhéraðs).
ZZZSahrawi-lýðveldið → Sjá færsluna fyrir Sahrawi-lýðveldið
 SalómonseyjarA Aðildarríki SþA EngarSalómonseyjar eiga aðild að Breska samveldinu.
 Sambía – Lýðveldið SambíaA Aðildarríki SþA Engar
 Sameinuðu arabísku furstadæminA Aðildarríki SþA EngarSameinuðu arabísku furstadæmin eru sambandsríki sjö furstadæma.
 Samóa – Sjálfstætt ríki SamóaA Aðildarríki SþA Engar
 Sankti Kristófer og Nevis – Sambandsríki Sankti Kristófer og NevisA Aðildarríki SþA EngarSankti Kristófer og Nevis er aðili að Breska samveldinu og sambandsríki tveggja eyja: Sankti Kristófer og Nevis.
 Sankti LúsíaA Aðildarríki SþA EngarSankti Lúsía er aðili að Breska samveldinu.
 Sankti Vinsent og GrenadínurA Aðildarríki SþA EngarSankti Vinsent og Grenadínur á aðild að Breska samveldinu.
 San Marínó – Lýðveldið San MarínóA Aðildarríki SþA Engar
 Saó Tóme og Prinsípe – Lýðstjórnarlýðveldið Saó Tóme og PrinsípeA Aðildarríki SþA EngarPríncipe er sjálfstjórnarhérað innan Saó Tóme og Prinsípe.
 Sádi-Arabía – Konungsríkið Sádi-ArabíaA Aðildarríki SþA Engar
 Senegal – Lýðveldið SenegalA Aðildarríki SþA Engar
 Serbía – Lýðveldið SerbíaA Aðildarríki SþA EngarÍ Serbíu eru tvö sjálfstjórnarhéruð, Vojvodina og Kósovó og Metohija. Síðarnefnda héraðið er de facto undir stjórn Kósovó.
 Seychelleseyjar – Lýðveldið Seychelles-eyjarA Aðildarríki SþA Engar
 Simbabve – Lýðveldið SimbabveA Aðildarríki SþA Engar
 Singapúr – Lýðveldið SingapúrA Aðildarríki SþA Engar
 Síerra Leóne – Lýðveldið Síerra LeóneA Aðildarríki SþA Engar
 Slóvakía – Slóvakíska lýðveldiðA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Slóvenía – Lýðveldið SlóveníaA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Sómalía – Sambandslýðveldið SómalíaA Aðildarríki SþA EngarSómalía er sambandsríki sex fylkja. Tvö þeirra, Púntland og Galmudug, hafa lýst yfir sjálfstjórn, og eitt, Sómalíland, er de facto sjálfstætt ríki.
ZZZSómalíland → Sjá færsluna fyrir Sómalíland
 Spánn – Konungsríkið SpánnA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Spánn skiptist í 17 sjálfstjórnarhéruð og tvær borgir með sérstjórn.
 Srí Lanka – Sósíalíska lýðveldið Srí LankaA Aðildarríki SþA Engar
 Suður-Afríka – Lýðveldið Suður-AfríkaA Aðildarríki SþA Engar
 Suður-Kórea – Lýðveldið KóreaA Aðildarríki SþNorður-Kórea gerir tilkall til Suður-Kóreu.Í Suður-Kóreu er eitt sjálfstjórnarhérað, Jejudo.[52] Suður-Kórea er ekki viðurkennd af Norður-Kóreu sem gerir tilkall til yfirráða á öllum Kóreuskaganum.
ZZZSuður-Ossetía → Sjá færsluna fyrir Suður-Ossetíu
 Suður-Súdan – Lýðveldið Suður-SúdanA Aðildarríki SþA EngarSuður-Súdan er sambandsríki 10 fylkja og þriggja stjórnsýsluumdæma.
  • Abyei er svæði með sérstaka stöðu, stofnað með friðarsamkomulagi árið 2005. Það er de jure undir samstjórn Suður-Súdan og Súdan, en er de facto með tvöfalda stjórn auk stjórnar Sameinuðu þjóðanna.[53][54]
 Súdan – Lýðveldið SúdanA Aðildarríki SþA EngarSúdan er sambandsríki 18 fylkja.
  • Abyei er svæði með sérstaka stöðu, stofnað með friðarsamkomulagi árið 2005. Það er de jure undir samstjórn Suður-Súdan og Súdan, en er de facto með tvöfalda stjórn auk stjórnar Sameinuðu þjóðanna.[53][54]
 Súrínam – Lýðveldið SúrínamA Aðildarríki SþA Engar
 SvartfjallalandA Aðildarríki SþA Engar
ZZZSvasíland → Sjá færsluna fyrir Esvatíní
 Sviss – Svissneska sambandiðA Aðildarríki SþA EngarSviss er sambandsríki 26 kantóna.
 Svíþjóð – Konungsríkið SvíþjóðA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Sýrland – Sýrlenska arabíska lýðveldiðA Aðildarríki SþA Engar20 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna viðurkenna Þjóðarbandalag Sýrlands sem réttmæt stjórnvöld í landinu, fremur en núverandi stjórn landsins.

Héraðið Rojava hefur lýst yfir sjálfstjórn.

 Tadsíkistan – Lýðveldið TadsíkistanA Aðildarríki SþA EngarÍ Tadsíkistan er eitt sjálfstjórnarhérað, Sjálfstjórnarhéraðið Gornó-Badaksjan.
 Taíland – Konungsríkið TaílandA Aðildarríki SþA Engar
ZZZTaívan → Sjá færsluna fyrir Lýðveldið Kína
 Tansanía – Sameinaða lýðveldið TansaníaA Aðildarríki SþA EngarÍ Tansaníu er eitt sjálfstjórnarhérað, Sansibar.
 Tékkland[55]A Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
ZZZTímor-Leste → Sjá færsluna fyrir Austur-Tímor
 Tjad – Lýðveldið TjadA Aðildarríki SþA Engar
 Tonga – Konungsríkið TongaA Aðildarríki SþA Engar
 Tógó – Tógóska lýðveldiðA Aðildarríki SþA Engar
ZZZTransnistría → Sjá færsluna fyrir Transnistríu
 Trínidad og Tóbagó – Lýðveldið Trínidad og TóbagóA Aðildarríki SþA EngarÍ Trínidad og Tóbagó er eitt sjálfstjórnarhérað, Tóbagó.
 Túnis – Lýðveldið TúnisA Aðildarríki SþA Engar
 Túrkmenistan – Lýðveldið TúrkmenistanA Aðildarríki SþA Engar
 TúvalúA Aðildarríki SþA EngarTúvalú á aðild að Breska samveldinu.
 Tyrkland – Lýðveldið TyrklandA Aðildarríki SþA Engar
 UngverjalandA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins.
 Úganda – Lýðveldið ÚgandaA Aðildarríki SþA Engar
 ÚkraínaA Aðildarríki SþA EngarÍ Úkraínu er eitt sjálfstjórnarhérað, Sjálfstjórnarlýðveldið Krím, sem er de facto undir yfirráðum Rússlands, ásamt borginni Sevastópol. Hlutar Donetsk-sýslu og Luhansk-sýslu eru de facto undir stjórn Rússlands.
 Úrúgvæ – Austræna lýðveldið ÚrúgvæA Aðildarríki SþA Engar
 Úsbekistan – Lýðveldið ÚsbekistanA Aðildarríki SþA EngarÍ Úsbekistan er eitt sjálfstjórnarhérað, Karakalpakstan.
 Vanúatú – Lýðveldið VanúatúA Aðildarríki SþA Engar
 Vatíkanið – Borgríkið VatíkaniðA Áheyrnarríki Sþ og aðili að þremur undirstofnunum.A EngarPáfastóll fer með stjórn Vatíkansins. Páfastóll er fullvalda aðili sem á í stjórnmálasambandi við 183 ríki. Að auki eiga alþjóðlegu stofnanirnar Evrópusambandið og Mölturiddarar í stjórnmálasambandi við Páfastól. Vatíkanið er aðili að Alþjóðakjarnorkustofnuninni, Alþjóðafjarskiptasambandinu, Alþjóðapóstsambandinu og Alþjóðahugverkastofnuninni, auk þess að vera með varanlega áheyrnaraðild.[56] Embættismenn Vatíkansins eru skipaðir af páfa sem er biskup yfir biskupsdæminu Róm og þjóðhöfðingi Vatíkansins ex officio.
 Venesúela – Bólívarska lýðveldið VenesúelaA Aðildarríki SþA EngarVenesúela er sambandsíki 23 fylkja, eins höfuðborgarumdæmis og alríkisumdæma.
ZZZVestur-Sahara → Sjá færsluna fyrir Sahrawi-lýðveldið
 Víetnam – Sósíalíska lýðveldið VíetnamA Aðildarríki SþA Engar
 Þýskaland – Sambandslýðveldið ÞýskalandA Aðildarríki SþA EngarAðildarríki Evrópusambandsins. Þýskaland er sambandsríki 16 sambandslanda.
ZZZ↑ Aðildarríki og áheyrnarríki Sþ ↑A ZZZZZZ
ZZZABB
ZZZ↓ Önnur ríki ↓D AAAZZZ
 Abkasía – Lýðveldið AbkasíaD Engin aðildGeorgía gerir tilkall til landsins.Abkasía og Suður-Ossetía eru aðeins viðurkennd af Rússlandi, Níkaragva, Sýrlandi, Venesúela, Suður-Ossetíu og Transnistríu.[57] Georgía gerir tilkall til yfirráða fyrir hönd sjálfstjórnarlýðveldisins Abkasíu.
 CookseyjarD Aðili að átta undirstofnunum SþA Engar
Ríki í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland. Cooks-eyjar eiga í stjórnmálasambandi við 52 ríki og eru aðilar að undirstofnunum Sameinuðu þjóðanna með fulla samningsaðild.[58] Þær deila þjóðhöfðingja með Nýja-Sjálandi og eru auk þess með nýsjálenskan ríkisborgararétt.
 Kósovó – Lýðveldið KósovóD Aðili að tveimur undirstofnunum SþSerbía gerir tilkall til landsins.Samkvæmt Ákvörðun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1244 var Kósovó sett undir tímabundna stjórn Sameinuðu þjóðanna árið 1999.[59] Kósovó lýsti yfir sjálfstæði árið 2008 og hefur verið viðurkennt af 112 aðildarríkjum Sþ og Lýðveldinu Kína, en 18 aðildarríki hafa dregið viðurkenningu sína til baka.[60] Serbía gerir enn tilkall til yfirráða yfir Kósovó. Önnur aðildarríki viðurkenna enn yfirráð Serbíu eða hafa ekki tekið afstöðu. Kósovó á aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Heimsbankanum. Lýðveldið Kósovó ræður yfir megninu af landsvæðinu de facto, en með takmarkaða stjórn í norðurhlutanum.
 NiueD Aðili að fimm undirstofnunum SþA EngarNiue er í frjálsu sambandi við Nýja-Sjáland og á í stjórnmálasambandi við 20 ríki. Niue er aðili að nokkrum undirstofnunum Sþ með fulla samningsaðild.[58] Það deilir þjóðhöfðingja með Nýja-Sjálandi og er með nýsjálenskan ríkisborgararétt.
 Norður-Kýpur – Tyrkneska lýðveldið á Norður-KýpurD Engin aðildKýpur gerir tilkall til landsinsNorður-Kýpur er aðeins viðurkennt af Tyrklandi. Það er áheyrnarríki í Samtökum um íslamska samvinnu og Efnahagssamstarfsráðinu sem „ríki Kýpur-Tyrkja“. Kýpur gerir tilkall til Norður-Kýpur.[61]
 Sahrawi-lýðveldiðD Engin aðildMarokkó gerir tilkall til landsins.Hefur verið viðurkennt af 84 aðildarríkjum Sþ, en 43 þeirra hafa dregið viðurkenningu sína til baka eða frestað henni. Stofnaðili að Afríkusambandinu. Marokkó gerir tilkall til alls landsins sem hluta af Suðurhéruðum Marokkó. Ríkisstjórn lýðveldisins er í útlegð í Alsír.
 Sómalíland – Lýðveldið SómalílandD Engin aðildSómalía gerir tilkall til landsins.Sómalíland er de facto sjálfstætt ríki.[62][63][64][65][66] Það er ekki viðurkennt af neinu öðru ríki og Sómalía gerir tilkall til yfirráða þar.[67]
 Suður-Ossetía – Lýðveldið Suður-Ossetía-AlaníuríkiD Engin aðildGeorgía gerir tilkall til landsins.Suður-Ossetía er de facto sjálfstætt ríki.[68] Það er aðeins viðurkennt af Rússlandi, Níkaragva, Naúrú, Sýrlandi, Venesúela, Abkasíu og Transnistríu. Georgía gerir tilkall til landsins fyrir hönd tímabundinnar héraðsstjórnar Suður-Ossetíu.[69]
 Taívan - Lýðveldið KínaDEngin aðild, en var áður aðili til 1971Alþýðulýðveldið Kína gerir tilkall til landsins.Keppir að nafninu til um yfirráð yfir öllu Kína sem réttmæt stjórn landsins frá 1949. Lýðveldið Kína fer með stjórn eyjunnar Taívan og nærliggjandi eyja, Quemoy, Matsu, Prataeyja og hluta Spratly-eyja. Það hefur ekki gefið eftir tilkall sitt til meginlands Kína.[70] 13 aðildarríki Sþ viðurkenna Lýðveldið Kína, og ekkert þeirra viðurkennir Alþýðulýðveldið Kína. Eitt aðildarríki (Bútan) hefur ekki tekið afstöðu hvort ríkið það viðurkennir.

Alþýðulýðveldið Kína gerir tilkall til alls lands sem Lýðveldið ræður yfir. Lýðveldið á aðild að mörgum alþjóðlegum stofnunum undir ýmsum gervinöfnum, oftast sem „Kínverska Taípei“. Það er fullgildur meðlimur í Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Lýðveldið var stofnaðili að Sameinuðu þjóðunum og átti aðild að þeim frá 1945 til 1971, með neitunarvald í öryggisráðinu.

 Transnistría – Pridnestrovíska moldavíska lýðveldiðD Engin aðildMoldóva gerir tilkall til landsins.Transnistría er de facto sjálfstætt ríki,[62] en nýtur aðeins viðurkenningar Abkasíu og Suður-Ossetíu.[57] Moldóva gerir tilkall til landsins.[71]
ZZZ↑ Önnur ríki ↑D ZZZZZZ
ZZZZZZZZZZZZ

Aðrir listar

Tilvísanir