Héruð Kína

Æðstu stjórnsýslueiningar Kína

Héruð Kína eru æðstu stjórnsýslueiningar Alþýðulýðveldisins Kína. Þau eru alls 33 talsins (Tævan ekki meðtalið) og af fjórum gerðum.

Tegundir héraða

Hérað

Venjuleg héruð (kínverska: 省 ; rómönskun: shěng) eru algengasta tegundin, 22 talsins. Þeim stjórna héraðsnefndir þar sem ritari nefndarinnar er æðstur manna.

Sjálfstjórnarhérað

Sjálfstjórnarhéruðin (kínverska: 自治区; rómönskun: zhíxiáshì;) eru fimm talsins: Guangxi, Innri-Mongólía, Ningxia, Shinjang og Tíbet. Þau hafa takmarkaða heimastjórn.

Borghérað

Borghéruð Kína (kínverska: 直辖市; rómönskun: zhíxiáshì;) eða sveitarfélög á héraðsstigi eru fjögur: Beijing, Chongqing, Sjanghæ og Tianjin. Þar er héraðið ein mjög stór borg.

Sérstjórnarhérað

Sérstjórnarhéruðin (kínverska: 特别行政区; rómönskun: tèbié xíngzhèngqū; beint sérstakt stjórnsýslusvæði; enska: Special Administrative Region; portúgalska: Região especial administrativa) eru tvö Makaó og Hong Kong), bæði fyrrverandi evrópskar nýlendur. Þau hafa eigin stjórnarskrá, ríkisstjórn, gjaldmiðil og viðhalda landamæraeftirliti við Kína sem og önnur lönd.

Listi yfir héruð (íbúarfjöldi 2020) [1]

NafnPinyinHöfuðborgFlatarmálÍbúafjölditegund
Anhui安徽ĀnhuǐHefei139.600 km²61.027.171hérað
Peking北京BěijīngBeijing16 800 km²21.893.095borghérað
Chongqing重庆ChóngqìngChongqing82 300 km²32.054.159borghérað
Fujian福建FújiànFuzhou121.400 km²41.540.086hérað
Gansu甘肃GānsùLanzhou390.000 km²25.019.831hérað
Guangdong广东GuǎngdōngGuangzhou197.000 km²126.012.510hérað
Guangxi广西GuǎngxīNanning236 000 km²50.126.804sjálfstjórnarhérað
Guizhou贵州GuìzhoūGuiyang176.000 km²38.562.148hérað
Hainan海南HǎinánHaikou34.000 km²10.081.232hérað
Hebei河北HéběiShijiazhuang187.700 km²74.610.235hérað
Heilongjiang黑龙江HēilóngjiāngHarbin460.000 km²31.850.088hérað
Henan河南HénánZhengzhou167.000 km²99.365.519hérað
Hong Kong香港XiānggǎngHong Kong1 104 km²7.413.070 *sérstjórnarhérað
Hubei湖北HúběiWuhan187.500 km²57.752.557hérað
Hunan湖南HúnánChangsha210 500 km²66.444.864hérað
Innri-Mongólía内蒙古NèiměnggǔHohhot1 183 000 km²24.049.155sjálfstjórnarhérað
Jiangsu江苏JiāngsūNanjing100 000 km²84.748.016hérað
Jiangxi江西JiāngxīNanchang169 900 km²45.188.635hérað
Jilin吉林JílínChangchun187 400 km²24.073.453hérað
Liaoning辽宁LiáoníngShenyang145 900 km²42.591.407hérað
Makaó澳门ÀoménMakaó29 km²681.700 **sérstjórnarhérað
Ningxia宁夏NíngxiàYinchuan66 400 km²7.202.654sjálfstjórnarhérað
Qinghai青海QīnghǎiXining720 000 km²5.923.957hérað
Shaanxi陕西ShǎnxīXian206 000 km²39.528.999hérað
Shandong山东ShāndōngJinan156 700 km²101.527.453hérað
Sjanghæ上海ShànghǎiSjanghæ6 341 km²24.870.895borghérað
Shansi山西ShānxīTaiyuan150 000 km²32 970 000hérað
Shinjang新疆XīnjiāngUrumqi1 660 400 km²25.852.345sjálfstjórnarhérað
Sesúan四川SìchuānChengdu480 000 km²83.674.866hérað
Tianjin天津TiānjīnTianjin11 305 km²13.866.009borghérað
Tíbet西藏XīzàngLasa1 228 400 km²3.648.100sjálfstjórnarhérað
Yunnan云南YúnnánKunming394 000 km²47.209.277hérað
Zhejiang浙江ZhèjiāngHangzhou101 800 km²64.567.588hérað
KÍNA1.411.778.724
* Mannfjöldatölur fyrir Hong Kong byggja á manntali 2021 [2]

** Mannfjöldatölur fyrir Makaó byggja á áætluðu manntali á fyrsta ársfjórðungi 2022.[3]

Tengt efni

Tilvísanir