Jalangurssteinninn
Stóri Jalangurssteinninn er annar tveggja rúnasteina í Jalangri (Jelling) í Danmörku. Haraldur blátönn reisti hann um 965 til minningar um foreldra sína, Gorm gamla Danakonung og Þyri danabót.
Báðir steinarnir, grafhaugarnir og kirkjan í Jalangri voru sett á Heimsminjaskrá UNESCO árið 1994. Í Jalangri er upplýsingamiðstöð, „Kongernes Jelling“, þar sem fjallað er um staðinn og sögu hans.
- Báðir Jalangurssteinarnir; sá minni sem Gormur reisti og sá stærri sem Haraldur reisti
- Rúnahlið stóra Jalangurssteinsins
- Bakhlið Jalangurssteinanna
Rúnaristurnar
Rúnaristur á „rúnahlið“ steinsins:
- haraltr:kunuk?:baþ:kaurua
- „Haraldr konungr bauð gjöra“
- kubl:þausi:aft:kurm faþur sin
- „kuml þessi eftir Gorm föður sinn“
- auk aft:þa;urui:muþur:sina:sa
- „ok eftir Þyri móður sína, sá“
- haraltr ias:s<a;>?·uan·tanmaurk
- „Haraldr sem vann Danmörku“
- ala·auk·nuruiak
- „alla ok Noreg“
- ·auk·tani·<karþi·>kristna;
- „ok Dani gjörði kristna.“
Tenglar
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt