Mansjú

Mansjú (ᠮᠠᠨᠵᡠᡤᡳᠰᡠᠨ manju gisun) er mansjú-túngískt mál í bráðri útrýmingarhættu sem talað er í Mansjúríu í Austur-Kína.

Mansjú
manju gisun
MálsvæðiMansjúría
HeimshlutiKína
Fjöldi málhafa18 (2007)[1]
SkrifleturMansjúritmál
Tungumálakóðar
ISO 639-2mnc
ISO 639-3mnc
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Mansjú var mál Mansjúa á fyrri tíð en veldi þeirra var mest eftir að þeir lögðu Kína undir sig á 17. öld. Keisaraætt Mansjúa, Qingættin, ríkti í Kína til 1912. Í rúmar tvær aldir var mansjúmálið opinbert mál í Kína og mikilvægt samskiptamál milli Kína og umheimsins. Allir embættismenn urðu að gangast undir próf í mansjú og allar keisaralegar tilskipanir og opinber skjöl voru rituð bæði á mansjú og kínversku.Á þessu tímabili voru mörg klassísk kínversk rit þýdd á mansjú og hafa þær þýðingar komið evrópskum fræðimönnum að gagni við túlkun fornra kínverskra rita.

Á 19. öld hnignaði málinu ört vegna áhrifa frá kínversku og kínverskri menningu þannig að nú er það talað af aðeins fáeinum mönnum í Norðaustur-Kína. Talið er að aðeins 18 málhafar mansjú séu enn á lífi en þeir eru allir áttræðir.[1]

Viðskeyti eru mikið notuð til orðbyggingar en sérhljóðasamræmi er ekki eins áberandi og til dæmis í mongólsku. Mansjú er ritað með sérstöku stafrófi sem lagað var eftir mongólsku stafrófi á 17. öld og á ekkert skylt við kínverska skrift.

Heimildir

  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.