Parma Calcio 1913

Parma Calcio 1913, oft kallað Parma, er ítalskt knattspyrnufélag með aðsetur í Parma og er í Serie A, efstu deild.Félagið var stofnað í desember 1913. Parma leikur heimaleiki sína á Stadio Ennio Tardini sem tekur 27.906 áhorfendur í sæti, oft nefndur einfaldlega Il Tardini.

Parma Calcio 1913
Fullt nafnParma Calcio 1913
Gælunafn/nöfnI Gialloblu (Þeir gulu og bláu)
Stytt nafnParma
Stofnað16. desember 1913
LeikvöllurStadio Ennio Tardini, Parma
Stærð22.359
StjórnarformaðurKyle J. Krause
KnattspyrnustjóriFabio Liverani
DeildÍtalska B-deildin
2022/20234. sæti
Heimabúningur
Útibúningur

Með fjármögnun frá Calisto Tanzi vann félagið átta bikara á árunum 1992 til 2002, á því tímabili náði það sínum besta árangri í deildinni. Félagið hefur unnið þrjá Coppa Italia og einn Supercoppa Italiana, tvo UEFA bikara, einn Evrópumeistaratitil og einn titil í evrópukeppni bikarhafa.

Fjárhagsvandræði urðu síðla árs 2003 vegna Parmalat-hneykslisins sem olli því að móðurfyrirtæki félagsins féll. Félagið var úrskurðað gjaldþrota árið 2015 og stofnað á ný í Serie D þar sem því tókst að komast upp um deild þrjú ár í röð og komst aftur upp í Serie A árið 2018.

Heimabúningur liðsins er hvít og svört treyja og svartar buxur. Hins vegar kennir liðið sig oftar við liti varabúningsins sem er gulur og blár.

Titlar

  • Ítalska bikarkeppnin: 3
    • 1991–92, 1998–99, 2001–02

Þekktir leikmenn

Argentínumaðurinn Hernán Crespo er markahæsti leikmaður í sögu Parma.
  • Nestor Sensini
  • Juan Sebastián Verón
  • Sérgio Conceição
  • Adrian Mutu
  • Hidetoshi Nakata
  • Thomas Brolin
  • Lilian Thuram
  • Alain Boghossian
  • Sébastien Frey
  • Johan Micoud
  • Sabri Lamouchi
  • Adriano
  • Cláudio Taffarel
  • Hristo Stoichkov
  • Faustino Asprilla

Heimildir

Tengill