Samfylkingin

Íslenskur stjórnmálaflokkur

Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands er íslenskur stjórnmálaflokkur sem kennir sig við jafnaðarstefnu. Flokkurinn var stofnaður árið 2000 sem samruni fjögurra flokka til þess að vinna sem mótvægisafl við Sjálfstæðisflokkinn. Samfylkingin hefur frá stofnun almennt verið næst stærsti flokkur landsins ef litið er til kjörfylgis til þings og sveitarstjórna auk skráðra flokksmanna.

Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands
Merki Samfylkingarinnar
Merki Samfylkingarinnar
Fylgi 9,9%¹
FormaðurKristrún Frostadóttir
VaraformaðurGuðmundur Árni Stefánsson
RitariArna Lára Jónsdóttir
ÞingflokksformaðurLogi Einarsson
Stofnár5. maí 2000; fyrir 23 árum (2000-05-05)
Samruni eftirtalinna hreyfingaAlþýðubandalagið, Alþýðuflokkurinn, Kvennalistinn, Þjóðvaki
HöfuðstöðvarSóltúni 26, 105 Reykjavík
Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
jafnaðarstefna

félagshyggja
kvenfrelsi
frjálslyndi

Einkennisliturrauður  
Sæti á Alþingi
Sæti í sveitarstjórnum
ListabókstafurS
Vefsíðawww.xs.is
¹Fylgi í síðustu Alþingiskosningum

Flokkurinn staðsetur sig vinstra megin við miðju og eru þrjú grunngildi hans jafnaðarstefna, félagshyggja og kvenfrelsi.

Formaður flokksins frá 28. október 2022 er Kristrún Frostadóttir.

Samfylkingin hefur myndað þrjár ríkisstjórnir og veitt tveimur þeirra forystu. Auk þess hafa þrír borgarstjórar Reykjavíkur komið úr röðum Samfylkingarinnar og er flokkurinn sá næststærsti í borgarstjórn og hefur verið í meirihluta þar síðan 2010.

Saga

Aðdragandi

Ólíkt hinum Norðurlöndunum var enginn stór jafnaðarmannaflokkur starfandi á Íslandi mestalla 20. öldina heldur voru vinstri menn klofnir í smærri flokka. Hugmyndir um sameiningu vinstri manna í einn flokk sem gæti keppt við Sjálfstæðisflokkinn í fylgi voru þó ávallt lífseigar og í nafni þeirra var gjarnan stofnað til sérstakra klofningsframboða úr eldri flokkum sem áttu að ná fram þessu markmiði. Síðasta slíka framboðið var Þjóðvaki sem stofnaður var 1994 í því yfirlýsta markmiði að sameina íslenska jafnaðarmenn. Í kjölfar alþingiskosninganna 1995 fór umræða um mögulega samfylkingu af stað fyrir alvöru. Alþýðuflokkurinn var þá kominn í stjórnarandstöðu ásamt hinum vinstri flokkunum og vel heppnað sameiginlegt framboð vinstri manna og Framsóknarflokksins í sveitastjórnarkosningunum í Reykjavík 1994 og 1998 undir merkjum R-listans virkaði sem hvati á sameiningarviðræður.

Viðræður um sameiningu

Innan Alþýðuflokks og Þjóðvaka var stuðningur við sameiningu hvað mestur. Haustið 1996 voru þingflokkar þessara flokka sameinaðir undir nafninu „þingflokkur jafnaðarmanna“.[1] Raunar gengu þrír af fjórum þingmönnum Þjóðvaka síðan aftur í Alþýðuflokkinn, Jóhanna Sigurðardóttir formaður Þjóðvaka var ein eftir. Í nóvember 1997 var haldinn flokksstjórnarfundur hjá Alþýðuflokknum og landsfundir hjá Kvennalista og Alþýðubandalagi og aðalfundur hjá Þjóðvaka um það hvort að hefja ætti sameiningarviðræður. Allir flokkarnir samþykktu það að gengið skyldi til viðræðna en mismikil eindrægni var í þeirri afstöðu milli flokka.

Alþýðuflokkurinn og Þjóðvaki[2] lýstu yfir afdráttarlausum stuðningi við sameiningarviðræður. Innan Kvennalistans var áherslumunur á milli kynslóða þar sem yngri kynslóðin reyndist tilbúnari til þátttöku í mögulegri samfylkingu en margar fyrrverandi og þáverandi þingkonur flokksins voru andvígar, meðal annars á þeirri forsendu að Kvennalistinn hafi verið hugsaður sem óháður hefðbundnum stjórnmálaöflum en með samfylkingu væri verið að skilgreina hann sem vinstri félagshyggjuflokk.[3] Niðurstaðan varð að samþykkt var að ganga til sameiningarviðræðna með 36 atkvæðum gegn 18, í kjölfarið sögðu nokkrar af þeim konum sem höfðu verið andvígar sig úr flokknum. Það var í Alþýðubandalaginu sem að andstaðan reyndist hvað hörðust. Málefnaágreiningur réði þar mestu, margir óttuðust að flokkurinn væri að fórna hefðbundnum stefnumálum sínum og færast of langt til hægri með því að sameinast Alþýðuflokki en þessir tveir flokkar höfðu að ýmsu leyti ólíka stefnu. Alþýðuflokkurinn var t.d. jákvæðari gagnvart Atlantshafsbandalaginu og mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu en Alþýðubandalagið. Af þessum sökum sögðu þrír þingmenn Alþýðubandalagsins sig úr flokknum og stofnuðu eigin vinstri flokk - Vinstri hreyfinguna -grænt framboð - sem skyldi leggja meiri áherslu á hefðbundnari vinstri gildi auk umhverfismála.

Alþingiskosningar

Samfylkingin bauð fram í fyrsta skipti í alþingiskosningunum 1999 sem kosningabandalag. Margrét Frímannsdóttir, þáverandi formaður Alþýðubandalags, gegndi þá hlutverki talsmanns. Flokkurinn hlaut þá 26,8% atkvæða sem var hæsta hlutfall atkvæða sem að vinstri flokkur hafði fengið í áratugi en þó 11% lægra en flokkarnir fjórir höfðu fengið samanlagt í kosningunum 1995. Vinstri grænir fengu 9,1% í sömu kosningum. Stofnfundur Samfylkingarinnar var haldinn 5. - 6. maí 2000 og varð hún þá að formlegum flokki, fyrsti formaðurinn var kjörinn Össur Skarphéðinsson.

Fyrir alþingiskosningarnar 2003 tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi borgarstjóri í Reykjavík, sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður þrátt fyrir að hafa lýst því yfir eftir borgarstjórnarkosningarnar 2002 að hún væri ekki á leið í þingframboð.[4] Þetta vakti hörð viðbrögð samstarfsflokka Samfylkingarinnar í R-listanum sem kröfðust þess að hún viki úr stóli borgarstjóra. Í kjölfarið var hún titluð „forsætisráðherraefni“ flokksins fyrir kosningarnar og ræða sem hún hélt í Borgarnesi 9. febrúar 2003 varð eitt helsta deilumál baráttunar en þar spurði hún að því hvort að lögregluaðgerðir og skattarannsóknir gagnvart Baugi og Jóni Ólafssyni væru mögulega sprottnar af persónulegri óvild Davíðs Oddssonar í garð einstakra athafnamanna. Í kosningunum bætti flokkurinn við sig nokkru fylgi, fékk flest atkvæði í tveimur kjördæmum og vantaði þá aðeins tvö sæti til að ná Sjálfstæðisflokknum.

Hugmyndafræði

Eldra merki flokksins.

Meginstefna Samfylkingarinnar er jöfnuður, sjálfbærni og friður. Flokkurinn sér hlutverk stjórnvalda að koma fram við almenning af virðingu og gæta jafnræði í samfélagi þar sem allir einstaklingar geta notið hæfileika sinni á eigin forsendum. Samfylkingin vill tryggja að íslenskt samfélag geti tryggt sambærileg lífsgæði og eru í nágrannalöndunum og sé nútímalegt og framsækið. Nýting auðlinda á að vera sjálfbær og umhverfisvæn. Íslensk utanríkisstefna á að tryggja náin samskipti við umheiminn og stuðla að auknum jöfnuði, sjálfbærni í notkun auðlinda og virðingu fyrir umhverfinu á heimsvísu.[5]

Flokksskipulag

Æðsta stjórn Samfylkingarinnar er landsfundur flokksins sem haldinn er á tveggja ára fresti og hefur hann vald yfir stefnumál, lög og starf hennar. Á milli landsfunda fer flokksstjórn sem kosin er á landsfundi með æðsta vald flokksins. Milli flokkstjórnarfunda starfar framkvæmdastjórn sem vinnur að framkvæmd samþykkta lands- og flokkstjórna. Stjórn flokksins samanstendur af formanni varaformanni ritara, gjaldkera, þingflokksformanni, formanni sveitarstjórnarráðs og formanni framkvæmdastjórnar.[6] Innan flokksins eru 57 aðildarfélög og auk þeirra eru 17 aðildarfélög innan ungliðahreyfingar flokksins, Ungra jafnaðarmanna.[7] og auk þess tvær landshreyfingar, Kvennahreyfingin og 60+. Aðildarfélögin skipa fulltrúa á landsfund sem hafa atkvæðarétt á ályktunum, stefnubreytingum og lagabreytingum sem samþykktar eru. Formaður og varaformaður eru hinsvegar kosnir af öllum félögum flokksins og er Samfylkingin einn flokka á Íslandi til þess að opna kosningu formanns til allra flokksmanna.[6]

Formenn

FormaðurKjörinnHættiAldur við embættistöku
Margrét Frímannsdóttir (talsmaður)1999200044
Össur Skarphéðinsson2000200547
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir2005200948
Jóhanna Sigurðardóttir2009201366
Árni Páll Árnason2013201646
Oddný G. Harðardóttir2016201659
Logi Einarsson2016202252
Kristrún Frostadóttir202234

Varaformenn

VaraformaðurKjörinnHætti
Margrét Frímannsdóttir20002003
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir20032005
Ágúst Ólafur Ágústsson20052009
Dagur B. Eggertsson20092013
Katrín Júlíusdóttir20132016
Logi Már Einarsson20162017
Heiða Björg Hilmisdóttir20172022
Guðmundur Árni Stefánsson2022

Kjörfylgi

Alþingiskosningar

ÁrAtkvæði%Þingsæti
199944.37826,817
200356.70031,020
200748.74226,818
200955,75829,820
201324,29412,99
201610.8935,73
201723.65212,17
202119.8259,96

Sveitarstjórnarkosningar

Samfylking bauð sig fram í eigin nafni í 10 sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum 2002. Fjórum árum síðar bauð hún fram í 15 sveitarfélögum og hefur haldið framboðum þar síðan. Flokksmenn Samfylkingarinnar hafa hinsvegar tekið þátt í sameiginlegum listum í ýmsum sveitarfélögum, þar á meðal í Reykjavíkurlistanum og Í-listanum á Ísafirði. Samfylkingin var lengi stærsti flokkurinn í Hafnarfirði og var með hreinan meirihluta á árunum 2002 til 2010. Samfylkingin var stærsti flokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur kjörtímabilið 2014 - 2018 með 5 borgarfulltrúa og er næst stærst flokka núna með 5 borgarfulltrúa, frá 2014 til 2024 leiddi Samfylkingin þar meirihluta.

KosningarAtkvæði%fulltrúar
200213229
20062:36.112[8]22%[8]35[9]
20102:27.775[8]18,1%[8]42[8]
20142:26%41
201842
2022

Sjá einnig

Neðanmálsgreinar

Tenglar