Stafýlókokkar
Stafýlókokkar (eða haugkúluklasar; fræðiheiti: Staphylococcus) er ættkvísl Gram-jákvæðra baktería (gerla) sem allar eru af formgerð kokka (kúlugerla).
Staphylococcus | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Rafeindasmásjármynd af tveimur Staphylococcus epidermidis frumum. | ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir[3] | ||||||||||||
S. arlettae Schleifer et al. 1985 |
Flokkunarfræði
Ættkvíslinni Staphylococcus var áður skipað í ættina Micrococcaceae[4] en hefur nú verið skipað í ættina Staphylococcaceae innan fylkingarinnar Firmicutes [5] en míkrókokkarnir teljast býsna fjarskyldir (eru í fylkingunni Actinobacteria). Það var Sir Alexander Ogston, skoskur læknir og prófessor við Háskólann í Aberdeen, sem fyrstur lýsti tegundinni sem í dag kallast Staphylococcus aureus og sýndi fram á að hún getur valdið sýkingum í mönnum árið 1880 [6]. Hann fann jafnframt upp nafnið Staphylococcus og er það samsett úr grísku orðunum σταφυλή (staphylē), sem þýðir „þrúgnaklasi“, og κόκκος (kókkos), sem þýðir „korn“. Þrátt fyrir þetta er hið opinbera nafn ættkvíslarinnar Staphylococcus Rosenbach 1884, eftir Friedrich Rosenbach, en hann var fyrstur til að rækta stafýlókokka í hreinrækt. [1] Þekktum Staphylococcus tegundum hefur fjölgað mjög á umliðnum árum og teljast nú 41.[3]
Helstu einkennisþættir
Stafýlókokkar mynda kúlulaga frumur, um 0,5 til 1,5 µm að þvermáli sem koma ýmist fyrir stakar, í pörum eða óreglulegum klösum (haugkúluklösum).[4] Flestar tegundir eru valfrjálst loftfælnar og ófrumbjarga (þurfa lífræn efni til vaxtar og viðhalds). Einstaka tegundir eru nauðháð loftfælnar. Flestar tegundir eru katalasa-jákvæðar. Cýtókróm eru venjulega til staðar, en þó gefa flestar tegundir neikvæða svörun við stöðluðu oxidasaprófi. Flestar tegundir eru saltþolnar[4] en þarfnast þó ekki aukalegs salts í ræktunarætinu (eru ekki saltkærar)[7][8]. Saltþolnustu stafýlókokkarnir geta vaxið við saltstyrk allt að 4,5 M[9][10]. Kjörhitastig til vaxtar er hjá flestum tegundum á bilinu 30 – 37 °C, en þær geta þó vaxið við hitastig allt frá 4 °C til 48 °C, og við sýrustig frá pH 4,0 að 9,8.[11] Raunar er þolni gegn umhverfisbreytum mjög háð öðrum ræktunaraðstæðum. Til dæmis ræðst hitaþolni S. aureus mjög af saltstyrk ræktunarætisins[12]. Þó stafýlókokkar myndi ekki dvalargró, þá eru þeir mjög þolnir gegn ýmsum umhverfisöfgum, svo sem afar háum saltstyrk, miklum þurrki, mikilli geislun, háum þrýstingi, o.fl. [13]. Unnt er að rjúfa frumur stafýlókokka með lýsóstafíni, en ekki með lýsósími.
Vistfræði
Stafýlókokkar eru algengar gistilífverur á húð og í nefholi blóðheitra hryggdýra og eru sumar þeirra sýklar eða tækifærissýklar, en aðrar álitnar náttúrlegur hluti af sambýlisbíótu manna og dýra.[14] Sumar tegundir finnast gjarnan í mikið verkuðum matvælum, svo sem pylsum[15], gerjuðum fiskisósum[2] og saltfiski[9] [10] og eru tegundir á borð við S. xylosus og S. saprophyticus notaðar sem startkúltúrar í gerjun sumra kjötafurða.[15] Sumar tegundir, einkum S. aureus framleiða úteitur og geta þannig valdið matareitrunum.[11]