Vísindaleg flokkun

Vísindaleg flokkun er flokkun sem líffræðingar beita til að flokka lifandi og útdauðar lífverur. Nútíma flokkun á rætur sínar að rekja til verka Carl von Linné sem flokkaði lífverur samkvæmt sameiginlegum útlitseinkennum. Carl von Linné var grasafræðingur og byggði flokkun sína á plöntum einkum á fjölda fræfla. Hann kom einnig fram með tvínafnakerfið. Flokkunarkerfið byggir á stigskiptri flokkun þannig að skyldar tegundir mynda saman ættkvíslir, skyldar ættkvíslir mynda ættir o.s.frv. Þessi flokkun hefur verið endurbætt síðan Charles Darwin kom fram með þróunarkenningu sína.

Dæmi

Meðfylgjandi er dæmi um venjulega flokkun á fimm tegundum en þær eru: Ávaxtafluga (Drosophila melanogaster) sem er svo algeng í erfðafræðirannsóknastofum, maður (Homo sapiens), gráerta (Pisum sativum) sem Gregor Mendel notaði við uppgötvanir sínar í erfðafræði, berserkjasveppur (Amanita muscaria) og E. coli bakterían (Escherichia coli). Hinir átta flokkar eru feitletraðir. Einnig koma fram undirflokkar.

FlokkurÁvaxtaflugaMaðurGráertaBerserkjasveppurE. coli
LénHeilkjörnungarHeilkjörnungarHeilkjörnungarHeilkjörnungarGerlar
RíkiDýraríkiDýraríkiPlönturíkiSvepparíki
FylkingLiðdýrSeildýrDulfrævingarBasidiomycotaProteobacteria
UndirfylkingSexfætlurHryggdýrMagnoliophytinaAgaricomycotina
FlokkurSkordýrSpendýrTvíkímblöðungarAgaricomycetesProteobacteria
UndirflokkurVængberarLegkökuspendýrMagnoliidaeAgaricomycetidaeGammaproteobacteria
ÆttbálkurDipteraPrimatarFabalesAgaricalesEnterobacteriales
UndirættbálkurBrachyceraHaplorrhiniFabineae
ÆttDrosophilidaeHominidaeFabaceaeAmanitaceaeEnterobacteriaceae
UndirættDrosophilinaeHomininaeFaboideae
ÆttkvíslDrosophilaHomoPisumAmanitaEscherichia
TegundirD. melanogasterH. sapiensP. sativumA. muscariaE. coli

Tenglar

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.