Volapük

Volapuk (framburður: [volaˈpyk]) er tilbúið tungumál sem búið var til á árunum 1879–1881. Höfundur þess, Johann Martin Schleyer, var rómversk-kaþólskur prestur í heimaborg sinni Baden í Þýskalandi.

Volapük
Volapük
MálsvæðiAlþjóðlegt; mest þó í Evrópu
Heimshlutium allan heim
Fjöldi málhafaU.þ.b. 20
SætiEkki á meðal 100 efstu
ÆttTilbúið tungumál
Tungumálakóðar
ISO 639-1vo
ISO 639-2vol
SILvol
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Málfræði

Fleirtala er mynduð með endingunni -s. Nafnorð beygjast öll eins og hafa fjögur föll: nefnifall, þolfall, þágufall og eignarfall.

dom „hús“
Fallet.flt.
nf.domdoms
þf.domidomis
þgf.domedomes
ef.domadomas

Nútíð framsöguháttar er einfaldasta form sagnorða. Endingin -ön er notuð til myndunar nafnháttar. Þátíð er mynduð með forskeyti frekar en viðskeyti eða hljóðavíxli í stofni.