Enska fyrsta deildin

Enska fyrsta deildin (League One) er þriðja efsta deildin í knattspyrnudeildarkerfinu í Englandi. Þátttökuliðin eru 24 talsins, þau tvö efstu og sigurvegarar í umspilskeppni færast upp í ensku meistaradeildina en botnliðin fjögur falla niður í aðra deild.

Enska fyrsta deildin
Stofnuð2004; fyrir 20 árum (2004)
1992–2004 (sem 2. deild)
1958–1992 (sem 3. deild)
1921–1958 (sem 3. deild Norður/Suður)
1920–1921 (sem 3. deild)
LandEngland
Fjöldi liða24
Stig á píramída3
Upp íChampionship
Fall í2. deild
Staðbundnir bikararFA Cup
DeildarbikararEFL Cup
EFL Trophy
Alþjóðlegir bikararUEFA Europa League (með sigri í FA Cup)
UEFA Europa Conference League (með sigri í EFL Cup)
Núverandi meistararWigan Athletic
(2021–22)
Sigursælasta liðWigan Athletic
(3 titlar)
Vefsíðaefl.com/sky-bet-league-one/
Núverandi: 2021–22 EFL League One
Enska fyrsta deildin getur einnig átt við: Gömlu ensku fyrstu deildina 1888-1992

Saga og nafngift

Þriðja deildin var stofnsett fyrir leiktíðina 1920-21 með 22 liðum. Þegar árið eftir var henni skipt upp í tvennt: norður- og suðurhluta. Efsta liðið í hvorum hluta færðist upp um deild, en neðstu tvö liðin sitthvoru megin máttu sæta því að greidd voru atkvæði um áframhaldandi veru þeirra í deildarkeppninni. Í langflestum tilvikum héldu liðin þó sætum sínum.

Fyrir leiktíðina 1958-59 var deildarkerfið tekið til endurskoðunar, norður- og suðurhlutarnir voru sameinaðir í eina þriðju deild á ný og fjórða deildin stofnuð þar fyrir neðan. Tvö efstu liðin komust nú upp í aðra deild en þau fjögur neðstu féllu. Þessi tilhögun gerði það að verkum að afar erfitt var að komast upp um deild, þar sem sterkustu lið áttu til að stinga af. Til að auka spennuna og gefa fleiri liðum möguleika, var umspilsfyrirkomulag tekið upp árið 1987. Upp frá því hafa liðin næst á eftir toppsætunum tveimur barist um síðasta lausa sætið í deildinni fyrir ofan.

Með stofnun úrvalsdeildarinnar árið 1992 var nöfnum deildanna þar fyrir neðan breytt: önnur deild varð fyrsta deild og svo koll af kolli. Árið 2004 var nafni fyrstu deildarinnar (áður annarrar deildar) breytt í „ensku meistaradeildina“. Þar með breyttist nafn deildanna þar fyrir neðan á ný. Þessar sífelldu nafnbreytingar í ensku deildarkeppninni valda oft misskilningi og freistast ýmsir því til að tala um B-deild, C-deild og D-deild í stað hinna formlegu heita.

Þátttökulið tímabilið 2023-2024

FélagHeimavöllurFjöldi
BarnsleyOakwell23.300
BlackpoolBloomfield Road17.300
Bristol RoversMemorial Stadium12.300
Burton AlbionPirelli Stadium6.912
Cambridge UnitedAbbey Stadium8.100
Carlisle UnitedBrunton Park18.000
Charlton AthleticThe Valley27.111
Cheltenham TownWhaddon Road7.000
Derby CountyPride Park Stadium33.600
Exeter CitySt. James' Park8.700
Fleetwood TownHighbury Stadium5.311
Leyton OrientBrisbane Road9.300
Lincoln CitySincil Bank10.120
Northampton TownSixfields Stadium7.798
Oxford UnitedKassam Stadium12.500
Peterborough UnitedLondon Road15.000
Portsmouth F.C.Fratton Park21.100
Port ValeBurslem Vale Park15.500
Reading FCMadejski Stadium24.000
Shrewsbury TownNew Meadow9.875
StevenageBroadhall Way7.800
Wigan AthleticDW Stadium25.133
Wycombe WanderersAdams Park9.448