England

England (borið fram /ˈɪŋglənd/ á ensku) er land sem er hluti af Bretlandi. Íbúar Englands eru yfir 83% af íbúum Bretlands. England á landamæri að Skotlandi í norðri, Wales í vestri og strönd við Norðursjó, Írlandshaf, Keltahaf, Bristol-sund og Ermarsund. Landið nær yfir 5/8 hluta af Stóra-Bretlandi auk yfir 100 minni eyja, þar á meðal Scilly-eyjar og Wight-eyju.

England
Fáni EnglandsSkjaldarmerki Englands
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Dieu et mon droit (franska)
Guð og réttur minn
Þjóðsöngur:
God Save the King
Staðsetning Englands
HöfuðborgLondon
Opinbert tungumálenska
StjórnarfarÞingbundin konungsstjórn

KonungurKarl 3.
ForsætisráðherraRishi Sunak
Sameining
 • Stofnun12. júlí 927 
 • Sameining við Skotland1. maí 1707 
Flatarmál
 • Samtals

130.279 km²
Mannfjöldi
 • Samtals (2019)
 • Þéttleiki byggðar

56.286.961
432/km²
GjaldmiðillSterlingspund (£)
TímabeltiUTC (+1 á sumrin)
Þjóðarlén.uk
Landsnúmer+44

Menn settust að á Englandi á síðfornsteinöld, en nafnið er fengið frá Englum, germönskum ættflokki sem settist þar að á 5. og 6. öld og drógu nafn sitt af skaganum Angeln í Norður-Þýskalandi. England var sameinað í eitt ríki á 10. öld og hefur haft mikil menningarleg og efnahagsleg áhrif um víða veröld síðan á landafundatímabilinu sem hófst á 15. öld.[1]

Ensk tunga, ensk lög og enska biskupakirkjan hafa orðið undirstaða réttarkerfis margra landa og enskt þingræði hefur verið tekið upp víða.[2] Iðnbyltingin hófst á Englandi seint á 18. öld og England varð fyrsta iðvædda samfélag heims.[3] Á Englandi eru tveir elstu háskólar hins enskumælandi heims: Oxford-háskóli (stofnaður 1096) og Cambridge-háskóli (stofnaður 1209), sem teljast báðir með fremstu háskólum heims.[4]

Konungsríkið England innlimaði Wales árið 1535 en hætti að vera til sem sjálfstætt ríki árið 1707 þegar það sameinaðist Skotlandi með bresku sambandslögunum þegar sameinaða konungsríkið Bretland var stofnað.[5] Árið 1801 sameinaðist þetta ríki Írlandi með nýjum sambandslögum og til varð sameinað konungsríki Bretlands og Írlands. Árið 1922 sagði Írska fríríkið sig frá þessu ríki og eftir stóð þá sameinað konungsríki Bretlands og Norður-Írlands.[6]

Landslag á Englandi er að mestu flatt með lágum hæðadrögum, aðallega í Midlands og Suður-Englandi. Flest fjöllin eru í norðurhlutanum, í Lake District og Pennínafjöllum, en líka í vestri í Dartmoor og Shropshire Hills. Höfuðborg landsins er London sem er stærsta þéttbýli Bretlands með 14,2 milljón íbúa árið 2021. Íbúar Englands eru 56,3 milljónir, eða 84% af íbúum Bretlands.[7] Langflestir búa í og við London, í Suðaustur-Englandi og borgum í Midlands, Norðvestur-Englandi og Yorkshire þar sem stórar iðnaðarborgir byggðust upp á 19. öld.[8]

Heiti

Heitið England kemur úr fornensku, Englaland, sem merkir „land Engla“.[9] Þessir Englar voru germanskur ættflokkur sem settist þar að á 5. og 6. öld og er talinn hafa komið frá skaganum Angeln, sem í dag er hluti af Danmörku og Norður-Þýskalandi (Slésvík-Holtsetalandi). Elsta heimildin um landið er úr handriti með þýðingu á Kirkjusögu Englendinga eftir Beda prest, þar sem það kemur fyrir sem Engla londe. Hugtakið merkti landið þar sem Englendingar búa, og náði því líka yfir það sem síðar varð suðausturhluti Skotlands, en var þá hluti Norðymbralands og byggt Englendingum. Í Króniku Engilsaxa segir að Dómsdagsbókin hafi náð yfir allt England, í merkingunni enska konungsríkið, en nokkrum árum síðar stendur þar að Malcolm 3. hafi farið frá Skotlandi inn í Lothian í Englalandi, sem þá er eldri merkingin.[10] Samkvæmt Oxford Dictionary kom nútímastafsetning orðsins fyrst fyrir árið 1538.

Elstu heimildir um Engla eru í Germaníu Tacitusar frá 1. öld þar sem latneska heitið Anglii kemur fyrir.[11] Uppruni ættbálkaheitisins er umdeildur. Stungið hefur verið upp á því að það sé dregið ýmist af orðinu öng („beygja“ eða „krókur“) eða angr („mjór“) og vísi þá annað hvort til skagans við mynni árinnar Slien eða þess hve árósinn er þröngur.[12][13] Ekki er vitað af hverju þetta nafn varð að landaheiti, frekar en önnur ættbálkaheiti (til dæmis Saxar), en hugsanlega var það til að greina Saxa á Englandi frá Söxum á meginlandinu.[14] Í skoskri gelísku heitir landið hins vegar eftir Söxum, Sasunn.[15] Velska heitið yfir ensku er líka dregið af Söxum, Saesneg. Í skáldamáli hefur England líka verið nefnt Loegria (dregið af velska heitinu Lloegr) og Albion[16] sem upphaflega náði yfir allt Stóra-Bretland.

Saga

Forsögulegur tími

Bein- og tinnusteinstól hafa fundist í Norfolk og Suffolk sem sýna að Homo erectus bjó á Englandi fyrir 700.000 árum. Þá tengdist England meginlandi Evrópu um landbrú. Ermarsundið var á sem að lágu þverárnar Thames og Signa. Á síðustu ísöld eyddist byggð á þessu svæði. England var síðan ekki byggt aftur fyrr en fyrir 13.000 árum. Þeir íbúar tóku síðar upp keltneska menningu.

Stonehenge er stórt mannvirki frá nýsteinöld.
Veggir hæðavirkisins Maiden Castle í Dorset.

Elstu merki um menn á því svæði sem nú er þekkt sem England eru leifar af Homo antecessor frá um 780.000 árum. Elstu bein frummanna sem fundist hafa í Englandi eru 500.000 ára gömul.[17] Vitað er að nútímamenn bjuggu á svæðinu á síðfornsteinöld, þótt elstu merki um fasta búsetu séu aðeins um 6000 ára gömul.[18][19]

Eftir síðustu ísöld voru einungis stór spendýr eins og mammútar, vísundar og loðnashyrningar eftir. Fyrir um 11.000 árum, þegar ísbreiðurnar hörfuðu, fluttust menn aftur inn á svæðið. Erfðarannsóknir benda til þess að þeir hafi komið frá norðurhluta Íberíuskaga.[20] Sjávarborð var lægra en í dag og Bretland tengdist Írlandi og Evrópu með landbrúm.[21] Seinna hækkaði sjávarborð svo Bretland og Írland skildust að fyrir um 10.000 árum og Bretland skildist frá meginlandi Evrópu tvö þúsund árum síðar.

Bikarmenningin barst til Bretlands um 2500 f.o.t. með drykkjarílátum úr leir og pottum sem notaðir voru til að bræða kopargrýti.[22] Á þessum tíma voru stór steinmannvirki, eins og Stonehenge og Avebury, reist. Með því að bræða saman tin og kopar, sem nóg var af í landinu, var hægt að framleiða brons. Seinna hófst járnbræðsla sem leiddi til gerðar betri plóga og sterkari vopna.[23]

Keltnesk menning, afkomandi Hallstatt-menningarinnar og La Téne-menningarinnar, barst til Bretlands frá Mið-Evrópu. Keltneska málið breska var töluð í landinu á þessum tíma. Samfélagið skiptist í ættbálka. Í Geographia áætlar Kládíus Ptólmæos að þeir hafi verið um 20 talsins. Eldri skiptingar eru óþekktar því Bretar skildu engar ritaðar heimildir eftir sig. Líkt og aðrar þjóðir við jaðar Rómaveldis höfðu Bretar lengi stundað viðskipti við Rómverja. Júlíus Sesar reyndi tvisvar að gera innrás 55 f.Kr., og tókst að koma rómverskum leppkonungi til valda hjá Trinovantes-ættbálknum.

Bódísea leiddi uppreisn gegn Rómaveldi.

Rómverjar réðust fyrst inn í Bretland árið 43 e.Kr., í valdatíð Kládíusar keisara. Í kjölfarið lögðu þeir undir sig meginhluta landsins. Landið var gert að rómverska skattlandinu Britanníu.[24] Þekktasti ættbálkurinn sem veitti þeim mótspyrnu voru Catuvellauni undir forystu Caratacusar. Síðar leiddi Bódísea, drottning Iceni, uppreisn sem lauk með því að hún framdi sjálfsmorð eftir ósigur í orrustunni við Watling Street.[25] Höfundur einnar bókar um rómverska Bretland hefur áætlað að Rómverjar hafi drepið milli 100 og 250.000 manns, af um 2 milljónum íbúa.[26] Á þessum tíma varð grísk-rómversk menning ríkjandi með rómverskum lögum, rómverskri byggingalist, vatnsveitum, holræsum, skipulegum landbúnaði og silki.[27][28][29] Á 3. öld dó keisarinn Septimius Severus í Eboracum (nú York), þar sem Konstantínus mikli var lýstur keisari einni öld síðar.[30]

Það er umdeilt hvenær kristni barst fyrst til Englands. Það hefur ekki verið seinna en á 4. öld, og líklega mun fyrr. Samkvæmt Beda presti voru trúboðar sendir frá Róm af Elevþeríusi páfa að beiðni höfðingjans Lúsíusar af Bretland árið 180, til að skera úr um deilur um austræna og vestræna kirkjusiði sem ollu ósætti innan kirkjunnar. Til eru hefðir sem tengjast Glastonbury sem snúast um komu Jósefs frá Arímaþeu.[31] Um 410 hafði rómverskum herdeildum í Bretlandi fækkað vegna hnignunar Rómaveldis. Þær voru sendar annað til að berjast á landamærasvæðum eða taka þátt í borgarastyrjöldum.[32] Keltnesk klausturlífi blómstruðu: Heilagur Patrekur (Írland á 5. öld) og Brendan sæfari (6. öld), Comgall, heilagur Davíð, Aiden og Kólumkilli. Kristni varð á þessum tíma fyrir áhrifum frá fornri keltneskri menningu. Klaustrin voru miðstöðvar kirkjusókna, og klausturleiðtogar voru eins og ættbálkahöfðingjar til forna.[33]

Miðaldir

Endurgerð af spangarhjálmi frá Sutton Hoo í Austur-Anglíu.

Rómverski herinn hvarf frá Bretlandi sem leiddi til innrása heiðinna sjóræningja frá norðvesturhluta meginlands Evrópu, sérstaklega Saxa, Engla, Jóta og Fríslendinga sem höfðu lengi stundað strandhögg þar. Þessir hópar tóku að setjast að í Bretlandi á 5. og 6. öld, fyrst í austurhluta landsins.[32] Framrás þeirra stöðvaðist um tíma eftir sigur Breta í orrustunni við Badon, en hélt svo áfram. Engilsaxar lögðu undir sig frjósamt láglendið á Englandi og Bretar hrökkluðust inn á sífellt minni svæði í vesturhluta landsins undir lok 6. aldar. Samtímaheimildir frá þessum tíma eru mjög fáar og það er því stundum kallað myrku aldirnar. Sagnfræðingar deila því um umfang og eðli landnáms Engilsaxa; en almennt er talið að það hafi verið mest í suðri og austri, en minna í norðri og vestri, þar sem keltnesk mál voru áfram töluð, jafnvel á landsvæðum sem Engilsaxar réðu yfir.[34][35][36][37][38][39] Engilsaxnesk heiðni tók við af rómverskri kristni sem ríkjandi trúarbrögð, en rómverskir trúboðar undir forystu Ágústínusar frá Kantaraborg tóku aftur að boða kristni þar frá 597.[40] Afleiðingin varð deilur milli keltneskrar og rómverskrar kristni sem lauk með sigri þeirrar síðarnefndu á kirkjuþinginu í Whitby árið 664, sem að nafninu til snerist um klippingu presta og dagsetningu páskahátíðarinnar.[33]

Landnám Saxa virðist hafa skipst í mikinn fjölda smáríkja, en á 7. öld höfðu þau runnið saman í um tylft konungsríkja eins og Norðymbraland, Mersíu, Wessex, Austur-Anglíu, Essex, Kent og Sussex. Næstu aldirnar héldu þessar sameiningar áfram.[41] Á 7. öld tókust Norðymbraland og Mersía á um yfirráð yfir landi og á 8. öld náði Mersía undirtökunum í þeim átökum. Fyrsti einvaldurinn sem notaði nafnbótina „Englandskonungur“ var Offa af Mersíu árið 774 þó svo að listar hefjist oft á Egbert af Wessex árið 829.[42] Snemma á 9. öld tók Wessex við sem valdamesta ríkið í Englandi. Seinna á þeirri öld hófust innrásir Víkinga sem lögðu undir sig norður- og austurhluta Englands og hertóku konungsríkin Norðymbraland, Mersíu og Austur-Anglíu. Eina saxneska ríkið sem lifði þetta umrót af var Wessex undir stjórn Alfreðs mikla. Það stækkaði síðan smátt og smátt með því að ná undir sig löndum frá Danalögum. Með því móti varð England til sem eitt konungsríki, fyrst undir stjórn Aðalsteins árið 927 og síðan eftir landvinninga Játráðs 953. Árásum víkinga fjölgaði aftur seint á 10. öld og enduðu með því að Sveinn tjúguskegg lagði England undir sig 1013, og sonur hans, Knútur ríki, árið 1016. Knútur stofnaði skammlíft Norðursjávarveldi sem náði líka yfir Danmörku og Noreg. Innlend konungsætt náði aftur völdum þegar Játvarður góði tók við völdum 1042.

Hinrik 5. í orrustunni við Agincourt sem lauk með enskum sigri yfir stærri frönsku herliði í hundrað ára stríðinu.

Deilur um eftirmann Játvarðs leiddu til innrásar Normanna árið 1066 undir forystu Vilhjálms sigursæla hertoga af Normandí.[43] Normannar voru sjálfir ættaðir frá Norðurlöndunum og höfðu sest að í Normandí í Frakklandi á 9. og 10. öld.[44] Með hernámi Normanna var nær allri ensku yfirstéttinni skipt út fyrir nýjan frönskumælandi aðal, sem hafði mikil og varanleg áhrif á þróun enskrar tungu.[45]

Plantagenet-ætt frá Anjou í Frakklandi erfði ensku krúnuna, undir forystu Hinriks 2.. England varð þar með hluti af ört stækkandi ríki Angevína, sem ríktu meðal annars yfir Akvitaníu.[46] Plantagenet-ætt hélt völdum í þrjár aldir. Meðal frægustu konunga af þeirri ætt má nefna Ríkharð ljónshjarta, Játvarð 1., Játvarð 3. og Hinrik 5..[46] Á þessum tíma urðu miklar breytingar á verslun og lagasetningu, meðal annars með undirritun Magna Carta sem takmarkaði völd konungs og tryggði réttindi frjálsborinna manna. Kaþólsk klausturlífi blómstruðu og háskólarnir í Oxford og Cambridge voru stofnaðir með stuðningi konungs. Furstadæmið Wales varð að léni Plantagenet-ættar á 13. öld[47] og páfi veitti konungi titilinn lávarður Írlands.

Á 14. öld gerðu bæði Plantagenet-ætt og Valois-ætt tilkall til þess að erfa krúnuna í Frakklandi frá Kapetingum. Í kjölfarið hófst hundrað ára stríðið.[48] Svarti dauði barst til Englands árið 1348 og er talið að um helmingur íbúa hafi látist.[49] Frá 1453 til 1487 stóð rósastríðið yfir, borgarastyrjöld milli tveggja greina konungsfjölskyldunnar: York-ættar og Lancaster-ættar.[50] Að lokum missti York-ætt krúnuna til velskrar aðalsættar, Túdorættar, sem voru grein af Lancaster-ætt undir forystu Hinriks Tudor sem gerði innrás í England með velskum og bretónskum málaliðum og vann sigur í orrustunni við Bosworth Field. Ríkharður 3. Englandskonungur af York-ætt féll í bardaganum.[51]

Árnýöld

Hinrik 8. (1491–1547)
Elísabet 1. (1558–1603)

Á Túdortímabilinu barst endurreisnin til Englands með ítölskum hirðmönnum sem kynntu fyrir ensku hirðinni listræn viðmið og heimspeki klassískrar fornaldar.[52] Enski flotinn varð til og könnun Nýja heimsins hófst fyrir alvöru.[53][54] Hinrik 8. sleit sambandið við kaþólsku kirkjuna í Róm með Drottnunarlögunum árið 1534 þar sem hann lýsti því yfir að konungur væri æðsti ráðamaður ensku kirkjunnar. Ólíkt meginstraumi mótmælendatrúar í Evrópu, voru ástæður ensku siðbótarinnar pólitískar fremur en trúarlegar. Hinrik felldi líka Wales (heimaland Túdorættarinnar) saman við England með lögum um lög í Wales. Í valdatíð dætra Hinriks, Maríu 1. og Elísabetar 1., urðu mikil trúarleg átök í landinu. Sú fyrrnefnda færði landið nær kaþólsku kirkjunni, meðan sú síðari sleit það aftur frá henni og kom á biskupakirkju með valdi. Elísabetartímabilið er oft nefnt sem dæmi um gullöld í enskri sögu. Á þeim tíma náði enska endurreisnin hátindi sínum og myndlist, ljóðlist, tónlist og bókmenntir blómstruðu.[55] Tímabilið er þekktast fyrir leikhúslíf og fræg leikskáld. Á þessum tíma var stjórn Englands vel skipulögð og áhrifarík vegna hinna miklu umbóta Túdorættarinnar.[56]

England átti í harðri samkeppni við spænska heimsveldið sem hófst þegar fyrsta enska nýlendan í Ameríku var stofnuð af Walter Raleigh í Virginíu og nefnd Roanoke-nýlendan. Nýlendustofnunin mistókst og er síðan þekkt sem týnda nýlendan eftir að hún fannst yfirgefin þegar birgðaskip kom þangað.[57] Með stofnun Breska Austur-Indíafélagsins hóf England líka samkeppni við hollenska heimsveldið og franska heimsveldið í Austur-Indíum. Á Elísabetartímabilinu átti England í stríðsátökum við Spán sem sendi flotann ósigrandi árið 1588 til að endurreisa kaþólska trú í Englandi. Lélegt skipulag og óhagstætt veður, auk árása enskra skipa undir stjórn Charles Howard, urðu til þess að innrásin mistókst. Spánn hugðist endurtaka leikinn 1596 og 1597 en í bæði skiptin hröktu óveður skipin af leið.

Samband við Skotland

Yfirstjórn Stóra-Bretlands breyttist varanlega árið 1603 þegar Jakob 6. Skotakonungur erfði ensku krúnuna. Þá gengu England og Skotland í konungssamband en voru áfram tvö ríki.[58] Jakob tók að kalla sig „konung Stóra-Bretlands“ þótt enginn grundvöllur væri fyrir þeim titli í enskum lögum.[59] Jakob lét gefa út Jakobsbiblíuna, sem einu lögmætu útgáfu Biblíunnar á ensku árið 1611.

Konungsvaldið var endurreist í Englandi þegar Karl 2. tók við völdum.

Í valdatíð sonar Jakobs, Karls 1., braust út borgarastríð milli stuðningsmanna konungs annars vegar og langa þingsins hins vegar. Konungssinnar og þingsinnar voru þekktir sem „kavalerar“ og „hnatthöfðar“. Þeir skiptust eftir landfræðilegum, pólitískum, trúarlegum og samfélagslegum átakalínum. Átök brutust líka út í öðrum ríkjum Bretlandseyja og urðu þekkt sem þríríkjastríðin þar sem þau áttu sér stað í konungsríkjunum þremur, Írlandi, Skotlandi og Englandi. Þingsinnar báru á endanum sigur úr býtum og Karl var tekinn af lífi. Leiðtogi þingliðsins, Oliver Cromwell, varð lávarður ríkisins árið 1653 og enska samveldið tók við af konungsveldinu.[60] Þegar Cromwell lést og sonur hans, Richard Cromwell, sagði af sér sem lávarður, var Karl 2. boðaður aftur og krýndur konungur árið 1660. Það markar upphaf Stúartendurreisnarinnar þar sem leikhúsin voru opnuð á ný og listirnar blómstruðu.[61] Eftir dýrlegu byltinguna 1688 var þingbundin konungsstjórn fest í lög með réttindaskrá, þar sem konungi var gert að ríkja með þinginu. Aðeins þingið gat lagt fram ný lög og konungur mátti hvorki leysa upp þing, boða nýja skatta eða kveða menn í herinn án samþykkis þingsins.[62] Frá þeim tíma hefur enginn konungur komið inn í neðri deild breska þingsins meðan á þingi stendur. Tákn þess er athöfn sem fer fram árlega þar sem dyrum þingsins er skellt framan í fulltrúa konungs.[63] Vísindi tóku miklum framförum eftir stofnun Konunglega breska vísindafélagsins árið 1660.

Árið 1666 varð Lundúnabruninn mikli til þess að stór hluti miðborgar London eyðilagðist og var endurbyggður skömmu síðar.[64] Margar stórbyggingar voru hannaðar af arkitektinum Christopher Wren. Tveir flokkar komu fram á þinginu: Toríar og Viggar. Toríar studdu upphaflega hinn kaþólska Jakob 2., en sumir þeirra gengu í lið með Viggum í dýrlegu byltingunni og buðu Vilhjálmi af Óraníu krúnuna. Andstæðingar Vilhjálms voru kallaðir Jakobítar og þeir nutu einkum fylgis í norðurhluta landsins og Skotlandi. Undir stjórn Stúartættar þandist verslunarveldi Englendinga út um allan heim og hagsæld jókst. Stærsti kaupskipafloti Evrópu varð til í Bretlandi.[65] Þing Englands og Skotlands samþykktu hvert í sínu lagi að sameina löndin tvö og stofna Konungsríki Stóra-Bretlands árið 1707.[66][58] Ýmsar stofnanir, löggjöf og kirkjuskipan, voru áfram aðskilin.

Nútíminn

Thames-á á Georgstímabilinu frá svölum á Somerset House í átt að Saint Paul's (um 1750).

Eftir að Konungsríkið Stóra-Bretland var stofnað áttu Konunglega breska vísindafélagið, skoska upplýsingin og enska upplýsingin þátt í nýjungum í visindum og verkfræði, meðan mikill vöxtur í þríhyrningsversluninni á Atlantshafi sem naut verndar konunglega breska sjóhersins skapaði undirstöður undir breska heimsveldið. Í Englandi hófst iðnbyltingin sem olli miklum efnahagslegum, samfélagslegum og menningarlegum breytingum á ensku samfélagi. Á þeim tíma iðnvæddist landbúnaðurinn, iðnaðarframleiðslan og námavinnsla, auk þess sem nýir innviðir fyrir vöruflutninga og fólksflutninga stóðu undir útþenslu og þróun iðnfyrirtækja.[67] Árið 1761 var Bridgewater-skurðurinn opnaður í Norðvestur-Englandi og markaði upphaf skurðatímabilsins í Bretlandi.[68] Árið 1825 hóf fyrsta varanlega farþegalestin starfsemi: Stockton- og Darlington-lestin.[68]

Orrustan við Trafalgar var sjóorrusta milli breska sjóhersins og sameinaðs spænsks og fransks flota í Napóleonsstyrjöldunum.[69]

Vegna iðnbyltingarinnar fluttust margir verkamenn frá sveitum Englands í ört vaxandi þéttbýliskjarna til að vinna í verksmiðjum, til dæmis í Birmingham og Manchester, sem voru nefndar „verkstæði heimsins“ og „vöruhúsaborgin“.[70] Manchester var fyrsta iðnaðarborg heimsins.[71] Þegar franska byltingin hófst hélst stöðugleiki í Englandi. William Pitt yngri var forsætisráðherra í valdatíð Georgs 3. Staðgengilsstjórn Georgs 4. var þekkt fyrir framfarir í listum og arkitektúr.[72] Í Napóleonsstyrjöldunum hugðist Napóleon gera innrás í Bretland úr suðaustri, en það gerðist þó aldrei og Horatio Nelson vann sigur á her Napóleons á sjó, meðan Arthur Wellesley vann sigur á landi. Sigur Breta í orrustunni við Trafalgar staðfesti yfirburði breska sjóhersins.[73] Á Napóleonstímabilinu varð til bresk sjálfsmynd og hugmynd um Breta sem sameinaða þjóð Englendinga, Skota og Wales-búa.[74]

Viktoríutímabilið er oft nefnt em dæmi um gullöld. Málverk eftir William Powell Frith sem á að sýna menningarmun.

London varð stærsta og fjölmennasta þéttbýlissvæði heims á Viktoríutímabilinu og verslun, her og floti breska heimsveldisins nutu mikillar virðingar.[75] Á þessum tíma urðu miklar tækniframfarir sem leiddu til aukinnar velsældar.[76] Róttækar stjórnmálahreyfingar eins og Chartistar og súffragettur áttu þátt í að hraða lagalegum umbótum sem leiddu til almenns kosningaréttar.[77] Samuel Hynes lýsti Játvarðstímabilinu sem þægilegum tíma þar sem konur gengu með myndahatta og kusu ekki, ríkt fólk skammaðist sín ekki fyrir að sýna ríkidæmi sitt, og sólin settist aldrei á breska fánann.[78]

Breytingar á valdajafnvægi í Austur- og Mið-Evrópu leiddu til fyrri heimsstyrjaldar þar sem hundruð þúsunda enskra hermanna börðust fyrir Bretland sem hluti af Bandamönnum Tveimur áratugum síðar var Bretland enn hluti af Bandamönnum í síðari heimsstyrjöld. Undir lok þykjustustríðsins varð Winston Churchill forsætisráðherra. Margar enskar borgir urðu fyrir miklu tjóni í loftárásum Þjóðverja. Eftir stríðið hófst hröð afnýlenduvæðing breska heimsveldisins og tækniþróun olli miklum breytingum á daglegu lífi fólks. Bílar urðu helsti samgöngumátinn og þotuhreyfillinn (önnur ensk uppfinning) leiddi til þess að flugferðir urðu hagkvæmari.[79] Búseta fólks í Englandi breyttist með tilkomu bifreiða og heilsugæslan National Health Service hóf að veita almenningi ókeypis heilbrigðisþjónustu árið 1948. Þessi þróun leiddi til breytinga á sveitarfélögum í Englandi um miðja 20. öld.[80]

Frá og með 20. öld hafa miklir fólksflutningar orðið til Englands, aðallega frá öðrum hlutum Bretlandseyja, en líka frá öðrum samveldislöndum, sérstaklega Indlandsskaga.[81] Frá 8. áratug 20. aldar hefur störfum fækkað í iðnaði og fjölgað í þjónustugeiranum.[82] England varð hluti af evrópska efnahagssvæðinu sem síðar varð Evrópusambandið. Frá lokum 20. aldar breyttist stjórn Bretlands þannig að aukin völd færðust til endurreistra þinga Skotlands, Wales og Norður-Írlands.[83] England og Wales er þó áfram til sem sérstakt lögsagnarumdæmi innan Bretlands.[84] Aukin valddreifing hefur leitt til meiri áherslu á sérstaka enska sjálfsmynd.[85] Ekkert sérstakt þing eða stjórn Englands er til, og hugmyndum um slíka sérstjórn hefur verið hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslum.[86]

Landfræði

England nær yfir tvo þriðju hluta Stóra-Bretlands með eyjum, eins og Wighteyju og Scilly-eyjum. Skotland liggur að landinu í norðri og Wales í vestri. England er nær meginlandi Evrópu en aðrir hlutar Bretlands. Ermarsund greinir England að meginlandinu og er 52 km að breidd þar sem það er grennst.[87] Ermarsundsgöngin skammt frá Folkestone tengja England beint við Frakklandi.[88] England á líka strönd að Norðursjó og Atlantshafi.

Helstu hafnarborgir landsins, London, Liverpool og Newcastle upon Tyne, liggja við árnar Thames, Mersey og Tyne-á. Lengsta áin sem rennur um England er Severn, 354 km að lengd.[89] Hún rennur út í Bristolsund og er þekkt fyrir Severn-röstina, sjávarfallaröst sem getur myndað 2 metra brimöldur.[90] Lengsta áin sem aðeins rennur um England er þó Thames sem er 346 km að lengd.[91]

Malvern-hæðir í ensku sýslunum Worcestershire og Herefordshire eru skilgreindar sem svæði einstakrar náttúrufegurðar.

Í Englandi eru mörg vötn. Stærsta stöðuvatn landsins er Windermere í vatnasvæðinu Lake District.[92] Landslag í Englandi einkennist aðallega af lágum hæðardrögum, en í norðri er landið fjalllendara. Þar eru Pennínafjöll, sem eru fjallgarður sem liggur frá austri til vesturs, Kúmbríufjöll í Lake District og Cheviot-hæðir við landamæri Englands og Skotlands. Hæsti tindur Englands er Scafell Pike, 978 metrar á hæð.[92] Shropshire-hæðir liggja að landamærum Wales, og Dartmoor og Exmoor eru heiðarlönd í suðvestri. Í Austur-Anglíu er flatt undirlendi notað sem beitiland. Þetta svæði er kallað Fens. Tees–Exe-línan er stundum notuð til að greina norður- og vesturhlutann, með eldra bergi og meira hálendi; frá suður- og austurhlutanum sem einkennist af meira flatlendi og setbergi.[93]

Elstu fjöll landsins eru Pennínafjöll sem eru stundum kölluð „hryggjarsúla landsins“ og eru frá lokum fornlífsaldar frá því fyrir um 300 milljón árum..[94] Þau eru meðal annars mynduð úr sandsteini og kalksteini og þar er líka að finna kolalög. Karstlandslag er að finna í Yorkshire og Derbyshire. Við fjöllin eru mýrlendi og frjósamir dalir þar sem árnar skera sig inn í þau. Yorkshire Dales og Peak District eru tveir þjóðgarðar í Pennínafjöllum. Í suðvestri eru heiðarlöndin Dartmoor og Exmoor sem liggja á granítklöpp og þar sem milt úthafsloftslag er ríkjandi. Bæði heiðarlöndin eru þjóðgarðar.[95]

Ensku láglöndin eru í mið- og suðurhluta landsins og einkennast af grónum hæðardrögum, eins og Cotswold-hæðum, Chiltern-hæðum, North Downs og South Downs. Við ströndina eru hvítir kalksteinsklettar, eins og við Dover. Þar eru líka sléttur eins og Salisbury-sléttan, Somerset-flatlendið, Suðurstrandarsléttan og Fenin.

Stjórnmál

Westminster-höll er samkomustaður breska þingsins.

England er hluti af Bretlandi, þar sem er þingbundið konungsvald með þingræðiskerfi.[96] England hefur ekki haft sína eigin ríkisstjórn síðan 1707 en með sambandslögunum sameinuðust konungsríkið Skotland og konungsríkið England í konungsríkið Stóra-Bretland.[66] Fyrir sambandið var landinu stjórnað af konungi og þinginu. Í dag fer breska þingið með stjórn Englands, en önnur lönd Bretlands hafa sínar eigin ríkisstjórnir og þing sem starfa í umboði þess.[97] Í fulltrúadeild breska þingsins sitja 532 fulltrúar einmenningskjördæma á Englandi, af 650 þingmönnum deildarinnar.[98] Eftir þingkosningar í Bretlandi 2019 voru fulltrúar úr Íhaldsflokknum 345, 179 úr Verkamannaflokknum, sjö úr Frjálslynda flokknum, einn úr Græningjum, og forseti fulltrúadeildar breska þingsins, Lindsay Hoyle.

Eftir að breska þingið fól þingum annarra landa Bretlands að fara með stjórn að hluta í Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi, hefur verið rætt um að koma á líku fyrirkomulagi í Englandi. Upphaflega var rætt um að hvert hérað fengi eigin þing, en þegar tillögunni var hafnað af Norðaustur-Englandi í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2004, var hætt við það.[86]

Eitt vandamál er spurningin um Vestur-Lothian þar sem þingmenn úr Skotlandi og Wales geta kosið um löggjöf sem snertir eingöngu England, meðan enskir þingmenn geta ekki kosið um mál sem hin þingin fást við.[99] Þetta hefur verið sett í samhengi við það að England er eina land Bretlands þar sem ekki eru ókeypis lyfseðlar og skráningargjöld í háskóla[100] og hefur leitt til vaxandi enskrar þjóðernishyggju.[101] Sumir hafa því stungið upp á stofnun sérstaks ensks þings[102] meðan aðrir hafa mælt með því að aðeins enskir þingmenn fái að kjósa um löggjöf sem eingöngu varðar England.[103]

Efnahagslíf

Lundúnaborg er miðstöð heimsefnahags.

England er eitt af stærstu efnahagskerfum Evrópu og fimmta stærsta í heimi. Hagkerfi Englands notar engilsaxneskt haglíkan. Það er eitt af fjórum hagkerfum á Bretlandi, og 100 af 500 stærstum fyrirtækjum í Evrópu eru með höfuðstöðvar í London. Sem hluti Bretlands er England aðalmiðstöð fyrir efnahagsmál heimsins. England er eitt iðnvæddu landa í heimi. Aðaliðnaðasvæði eru efna- og lyfjaiðnaðir og tækniiðnaðir eins og geimverkfræði, vopnaiðnaður og framleiðslu hugbúnaða.

London flytur út aðallega iðnaðarvörur and flytja inn efni eins og jarðolía, te, ull, hrásykur, timbur, smjör, málmur og kjöt. Í fyrra flutti út England meira en 30.000 tonn nautakjöta eiga 75.000.000 breskra punda. Frakkland, Ítalía, Grikkland, Holland, Belgía og Spánn eru aðalinnflytjendur nautakjöta frá Englandi.

Seðlabanki Bretlands sem setur vaxtaprósentur og kemur á peningamálastefnu er Englandsbanki í London. Kauphöllin í London er líka í borginni og er aðalkauphöllin í Bretlandi og er stærsta í Evrópu. London er alheimsleiðtogi í fjármáli, börgin er stærsta fjármálamiðstöð í Evrópu.

Hefðbundnir framleiðslu- og þungaiðnaðir hafa hnignað undanfarið á Englandi eins og annars staðar á Bretlandi. Um leið hafa þjónustugreinar orðið öllu meira mikilvægar. Til dæmis er ferðaþjónusta sjötti stærsti iðnaðurinn á Bretlandi og gaf hagkerfinu 76 milljónir breskra punda. Árið 2002 ræður hún 1.800.000 stöðugildi fólks eða 6,1% vinnandi íbúa. Aðalmiðstöð fyrir ferðamenn er London og börgin laðar að milljónum ferðamanna árlega.

Embættislegi gjaldmiðill Bretlands er breskt pund (stundum sterlingspund eða GBP, e. pound sterling).

Íbúar

Borgar- og sveitasýslur eftir mannfjölda.
Íbúafjöldi Englands og Wales eftir stjórnsýslueiningum.

England er langfjölmennasta land Bretlands, með yfir 56 milljón íbúa, sem eru 84% af heildarfjöldanum.[8]: 12 [104] Ef England væri sérstakt ríki væri það 25. fjölmennasta ríki heims miðað við árið 2005.[105]

Englendingar eru bresk þjóð.[106] Sumar erfðarannsóknir benda til þess að 75-95% þeirra séu afkomendur landnema frá forsögulegum tíma sem fluttust þangað upprunalega frá Íberíuskaga, með um 5% framlagi Engla og Saxa, auk þó nokkurs framlags frá Norðurlöndunum.[107][108] Aðrar rannsóknir meta framlag germanskra þjóða sem allt að 50%.[109] Ýmis menningarsamfélög hafa orðið áhrifamikil á Englandi í gegnum söguna: forsöguleg samfélög, Bretar,[110] Rómaveldi, Engilsaxar,[111] Víkingar,[112] Gelar og Normannar. Samfélög brottfluttra Englendinga er víða að finna í fyrrum löndum breska heimsveldisins, sérstaklega í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Suður-Afríku og Nýja-Sjálandi.[113] [114][115][116] Frá lokum 20. aldar hafa margir Englendingar flust til Spánar.[117]

Þegar Dómsdagsbókin var samin árið 1086 var íbúafjöldi Englands tvær milljónir. Um 10% bjuggu þá í þéttbýli.[118] Árið 1801 var íbúafjöldinn 8,3 milljónir og árið 1901 var hann orðinn 30,5 milljónir.[119] Efnahagslegur vöxtur í Suðaustur-Englandi hefur gert það að áfangastað fyrir fólksflutninga annars staðar að í Bretlandi.[106] Þó nokkur fjöldi Íra hefur líka flust til Englands.[120] Hlutfall íbúa af evrópskum uppruna er 87,5%. Þar á meðal eru íbúar af þýskum[121] og pólskum uppruna.[106]

Innflytjendur hafa flust til Englands lengra að síðan á 6. áratugnum. Um 6% íbúa Englands tilheyra fjölskyldum sem komu upprunalega frá Indlandsskaga (Indlandi, Pakistan og Bangladess).[106][121] Um 0,7% íbúa eru af kínverskum uppruna.[106][121] 2,9% íbúa eru þeldökkir af afrískum og karabískum uppruna, sérstaklega frá fyrrum breskum nýlendum þar.[106][121] Árið 2007 tilheyrðu 22% skólabarna í Englandi minnihlutaþjóðarbrotum[122] og árið 2011 var fjöldi þeirra 26,5%.[123] Um helmingur fólksfjölgunar milli 1991 og 2001 var vegna aðflutnings.[124] Deilur um þennan aðflutning eru áberandi í enskum stjórnmálum.[125] Í könnun innanríkisráðuneytisins árið 2009 sögðust 80% aðspurðra vilja takmarka aðflutning fólks.[126] Hagstofa Bretlands áætlar að íbúum muni fjölga um 9 milljónir milli 2014 og 2039.[127]

Kornbretar eru eina þjóðarbrotið sem er upprunnið á Englandi, sem er viðurkennt af ríkisstjórn Bretlands samkvæmt Rammasamkomulagi um vernd þjóðarbrota frá 2014.[128]

Tungumál

Enska varð til á Englandi og er aðaltungumál Englands í dag. Enska er vesturgermanskt indóevrópskt tungumál og er skylt skosku og frísnesku. Í sögu málsins er tímabilið fram til ársins 1066 nefnt fornenska en frá árinu 1066 til 15. aldar er talað um miðensku og frá 15. öld um nútímaensku. Allt frá árinu 1066 hefur enska orðið fyrir miklum áhrifum frá latínu og frönsku, ekki síst orðaforðinn sem er nú að verulegu leyti af latneskum rótum líkt og í rómönsku málunum.

Borgir

London er stærsta borg Bretlands og er líka höfuðborg landsins. Þær eru stærsta þéttbýli á landinu. Birmingham er önnur stærsta borgin. Aðrar stórar borgir eru Manchester, Leeds, Liverpool, Newcastle, Sheffield, Bristol, Coventry, Bradford, Leicester og Nottingham. Stærsta höfnin er Poole á suðströndinni.

RöðÞéttbýliFólksfjöldi
(manntal 2011)
StaðirStærri þéttbýlisstaðir
1Þéttbýli Stór-Lundúnasvæðisins9.787.42667London
2Stór-Manchester2.553.37957Manchester, Salford, Bolton, Stockport, Oldham
3Þéttbýli Vestur-Miðhéraðanna2.440.98622Birmingham, Wolverhampton, Dudley, Walsall
4Þéttbýli Vestur-Yorkshire1.777.93426Leeds, Bradford, Huddersfield, Wakefield
5Þéttbýlið Liverpool864.1228Liverpool, St Helens, Bootle, Huyton-with-Roby
6Þéttbýlið South-Hampshire855.56916Southampton, Portsmouth
7Tyneside774.89125Newcastle upon Tyne, North Shields, South Shields, Gateshead, Jarrow
8Þéttbýlið Nottingham729.97715Nottingham, Beeston og Stapleford, Carlton, Long Eaton
9Þéttbýlið Sheffield685.3687Sheffield, Rotherham, Chapeltown, Mosborough/Highlane
10Þéttbýlið Bristol617.2807Bristol, Kingswood, Mangotsfield, Stoke Gifford

Menning

Ensk menning er breið og fjölbreytileg. Englendingar hafa spilað inn í þróun lista og vísindanna. Margir mikilvægir vísindamenn og heimspekingar fæddust á Englandi eða hafa búið á Englandi, til dæmis Isaac Newton, Francis Bacon, Charles Darwin, Ernest Rutherford (fæddur á Nýja-Sjálandi), John Locke, John Stuart Mill, Bertrand Russell, Thomas Hobbes og hagfræðingar svo sem David Ricardo og John Maynard Keynes. Karl Marx skrifaði mest af ritverkum sínum í Manchester.

Matargerð

Mörg lönd telja að ensk matargerð sé gróf og einföld. Ensk matargerð umbreyttist á sjötta áratuginum undir áhrifum frá Indlandi og Kína sem fylgdu innflytjendum. Dæmi af hefðbundnum enskum mat eru:

Enskur morgunverður
  • Enskur morgunverður
  • Kjötsósur
  • Hlaupaáll
  • Lancashire grýta
  • Lincolnshire bjúgu
  • Kjötbökur
  • Baka og stappa
  • Ploughmans hádegisverður
  • Svínabökur
  • Scouse
  • Smalabaka
  • Spotted Dick
  • Nýrnabaka
  • Sunnudagssteikur
  • Toad in the hole
  • Yorkshire pudding



Verkfræði

England er fæðingarstaður Iðnbyltingarinnar og margir uppfinningamenn bjuggu á Englandi á 18. og 19. öld. Frægir verkfræðingar eru til dæmis Isambard Kingdom Brunel, Charles Babbage, Tim Berners-Lee, John Dalton, James Dyson, Michael Faraday, Robert Hooke, Robert Stephenson, Joseph Swan og Alan Turing.

Vísindi og heimspeki

Charles Darwin.

Meðal mikilhæfra vísindamanna frá Englandi má nefna Isaac Newton, Michael Faraday, Robert Hooke, Robert Boyle, Joseph Priestley, J. J. Thomson, Charles Babbage, Charles Darwin, Stephen Hawking, Christopher Wren, Alan Turing, Francis Crick, Joseph Lister, Tim Berners-Lee, Andrew Wiles og Richard Dawkins.

Enskir heimspekingar áttu ríkan þátt í að móta vestræna heimspeki. Þar má nefna William af Ockham, Francis Bacon, Thomas Hobbes, John Locke, Jeremy Bentham, Thomas Paine, John Stuart Mill, Herbert Spencer, Bertrand Russell, G.E. Moore, A.J. Ayer, Gilbert Ryle, J.L. Austin, G.E.M. Anscombe og Bernard Williams.

Bókmenntir

Leikskáld William Shakespeare.

Saga enskra bókmennta er rótgróin. Margir rithöfundar eru frá Englandi til dæmis leikskáldin William Shakespeare, Christopher Marlowe, Ben Jonson og John Webster, til viðbótar rithöfundarnir Daniel Defoe, Henry Fielding, Jane Austen, William Makepeace Thackeray, Charlotte Brontë, Emily Brontë, J.R.R. Tolkien, Charles Dickens, Mary Shelley, H. G. Wells, George Eliot, Rudyard Kipling, D.H. Lawrence, E.M. Forster, Virginia Woolf, George Orwell og Harold Pinter. J.K. Rowling, Enid Blyton og Agatha Christie eru rithöfundar sem hafa orðið frægir á 20. öld.

Tónlist

Tónskáld frá Englandi eru ekki eins fræg og rithöfundarnir þaðan. Flytjendur eins og Bítlarnir, Led Zeppelin, Pink Floyd, Elton John, Queen og The Rolling Stones eru meðal þeirra sem hafa selt mest af plötum í heiminum. England er einnig fæðingarstaður margra tónlistarstefna til dæmis harðrokks, þungarokks, Britpops, glamrokks, drum and bass, framsækins rokks, pönks, gotnesks rokks og triphops.

Tilvísanir

Heimildir

Tenglar

Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu