Enska úrvalsdeildin

Enska úrvalsdeildin er efsta atvinnumannadeildin í knattspyrnu á Englandi (og Wales). Hún er vinsælasta deild í heimi og einnig sú arðbærasta. Henni er sjónvarpað til 212 landa og svæða til um 650 milljón heimila. Tímabil deildarinnar er frá ágúst og fram í maí, liðin eru 20 og eru alls 38 leikir á lið. Neðstu þrjú liðin falla í lok tímabils og þrjú lið koma í staðinn á næsta tímabili úr ensku meistaradeildinni. Meðaltal áhorfenda á leikjum er 36.000 sem er það annað mesta í heiminum á eftir þýsku Bundesliga.

Premier League
Stofnuð20. febrúar 1992; fyrir 32 árum (1992-02-20)
LandEngland
ÁlfusambandUEFA
Fjöldi liða20
Stig á píramída1
Fall íEFL Championship
Staðbundnir bikarar
DeildarbikararEFL Cup
Alþjóðlegir bikarar
Núverandi meistararManchester City (7. titill)
(2022–23)
Sigursælasta liðManchester United (13 titlar)
Leikjahæstu mennGareth Barry (653)
Markahæstu mennAlan Shearer (260)
Sýningarréttur
  • Sky Sports, BT Sport, Amazon Prime Video (beinar útsendingar)
  • Sky Sports, BBC Sport (yfirferð)
Vefsíðapremierleague.com

Söguágrip

Enska úrvalsdeildin var stofnuð árið 1992 af félögunum í gömlu fyrstu deildinni sem hafði verið starfrækt í 104 ár. Alls hafa 49 lið tekið þátt í deildinni frá upphafi. Fyrst um sinn voru lið yfir hvert tímabil 22 en tímabilið 1995-1996 var liðum fækkað í 20.

Eftir aldamót var farið að tala um stóru 4 liðið (Big four): Manchester United, Liverpool, Chelsea og Arsenal. En eftir 2010 var farið að tala um stóru sex (Big six), þá voru Tottenham Hotspur og Manchester City komin hóp stærri liða. Manchester City vann titillinn tímabilið 2011–12 og varð fyrsta liðið utan hinna stóru fjögurra til að vinna deildina síðan Blackburn Rovers tímabilið 1994–95.

Tímabilið 2003–04 var Arsenal taplaust og er það í eina skipti sem það hefur gerst. Liðið var kallað Hinir ósigrandi (e. The invincibles) Þrjú lið hafa unnið Meistaradeild Evrópu: Liverpool (2005), Manchester United (2008) og Chelsea (2012).

Sjö lið hafa unnið deildina hingað til: Manchester United (13), Arsenal (3), Manchester City (7), Chelsea FC (5) Blackburn Rovers (1), Leicester City (1) og Liverpool FC (1).

Með flest mörk á einu tímabili er Erling Haaland með en hann sló metið tímabilið 2022-2023. Áður var Mohamed Salah með 32 mörk og með 31 mark deildu metinu Alan Shearer, Cristiano Ronaldo, Luis Suárez. Thierry Henry hefur oftast verið markakóngur eða 4 sinnum.

Tímabilið 2019-2020 hóf deildin að nota VAR-myndbandsdómgæslu. Tímabilið 2022-2023 fjölgaði skiptingum úr 3 í 5 leikmenn á leik.

Sigurvegarar ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi

LeiktímabilSigurvegari
2022-2023Manchester City
2021-2022Manchester City
2020-21Manchester City
2019-20Liverpool FC
2018-19Manchester City
2017-18Manchester City
2016-17Chelsea F.C.
2015-16Leicester City F.C.
2014-15Chelsea F.C.
2013–14Manchester City
2012–13Manchester United
2011–12Manchester City
2010–11Manchester United
2009–10Chelsea
2008–09Manchester United
2006–07Manchester United
2005–06Chelsea
2004–05Chelsea
2003–04Arsenal
2002–03Manchester United
2001–02Arsenal
2000–01Manchester United
1999–00Manchester United
1998-99Manchester United
1997–98Arsenal
1996–97Manchester United
1995–96Manchester United
1994–95Blackburn Rovers
1993–94Manchester United
1992–93Manchester United

Lið tímabilið 2023-2024

FélagHámarksfjöldiLeikvangur
Manchester United74.310Old Trafford
Tottenham Hotspur62.062Tottenham Hotspur Stadium
Liverpool60.725Anfield
Arsenal60.432Emirates Stadium
West Ham United60.000London Stadium
Manchester City55.097Etihad StadiumNewcastle United52.387St James' Park
Aston Villa42.790Villa Park
Chelsea41.631Stamford Bridge
Everton40.569Goodison Park
Nottingham Forest30.500City Ground
Luton Town10.000Kenilworth Road
Wolverhampton Wanderers32.050Molineux Stadium
Brighton & Hove Albion30.750Amex Stadium
Burnley F.C.22.000Turf Moor
AFC Bournemouth11.400Dean Court
Crystal Palace26.309Selhurst Park
Fulham F.C.21.000Craven Cottage
Brentford FC17.250Brentford Community Stadium
Sheffield United32.000Bramall Lane

Tölfræði

Markahæstu menn frá upphafi (yfir 100 mörk)

Uppfært 9.3 2024. Feitletraðir leikmenn spila enn í PL.

SætiLeikmaðurMörk
1 Alan Shearer260
2 Harry Kane213
3 Wayne Rooney208
4 Andrew Cole187
5 Sergio Agüero184
6 Frank Lampard177
7 Thierry Henry175
8 Robbie Fowler163
9 Jermain Defoe162
10 Mohamed Salah154
11 Michael Owen150
12 Les Ferdinand149
13 Teddy Sheringham146
14 Robin van Persie144
15 Jamie Vardy136
16 Jimmy Floyd Hasselbaink127
17 Robbie Keane126
18 Nicolas Anelka125
19 Dwight Yorke123
20 Raheem Sterling121
20 Romelu Lukaku121
21 Steven Gerrard120
22 Son Heung-min116
23 Ian Wright113
24 Dion Dublin111
24 Sadio Mané111
25 Emile Heskey110
26 Ryan Giggs109
27 Peter Crouch108
28 Paul Scholes107
29 Darren Bent106
30 Didier Drogba104
31 Cristiano Ronaldo103
32 Matt Le Tissier100

Stoðsendingar

Leikmenn sem enn eru spilandi feitletraðir. Uppfært 9/10 2024.

Flestar stoðsendingar
RöðNafnStoðsendingarLeikirStoðsendingar á leikLeikstaða
1Ryan Giggs1626320.26Miðjumaður
2Cesc Fàbregas1113500.32Miðjumaður
3Kevin De Bruyne1062470.42Miðjumaður
4Wayne Rooney1034910.21Framherji
5Frank Lampard1026090.17Miðjumaður
6Dennis Bergkamp943150.30Framherji
7David Silva933040.30Miðjumaður
8Steven Gerrard925040.18Miðjumaður
9James Milner896340.15Miðjumaður
10David Beckham802650.30Miðjumaður
11Teddy Sheringham764180.18Framherji

[1]

Leikmenn með meira en 500 leiki spilaða

Uppfært 9/3 2024.

SætiLeikmaðurLeikir
1 Gareth Barry653
2 James Milner634
3 Ryan Giggs632
2 James Milner634
4 Frank Lampard609
5 David James572
6 Gary Speed535
7 Emile Heskey516
8 Mark Schwarzer514
9 Jamie Carragher508
10 Phil Neville505
11 Steven Gerrard504
12 Rio Ferdinand504
13 Sol Campbell503

Markmenn

uppfært í jan. 2023

Flest skipti haldið hreinu
RöðLeikmaðurHrein mörk
1Petr Čech202
2David James169
3Mark Schwarzer151
4David Seaman140
5David de Gea138
6Nigel Martyn137
7Pepe Reina136
8Edwin van der Sar132
Tim Howard
Brad Friedel
9Peter Schmeichel128

Mörk úr aukaspyrnum

Uppfært í desember 2023.

SætiNafnMörkLeikirStaða
1David Beckham18265Miðherji
2James Ward-Prowse17300Miðherji
3Gianfranco Zola12229Framherji
Thierry Henry258Framherji
Cristiano Ronaldo222Framherji
6Laurent Robert11150Framherji
Sebastian Larsson282Miðherji
8Ian Harte10237Varnarmaður
Morten Gamst Pedersen260Miðherji
10Jamie Redknapp9295Miðherji
Nolberto Solano302Miðherji
Frank Lampard609Miðherji

Markahæstu Íslendingar í ensku úrvalsdeildinni

Uppfært 16/4 2021.

SætiLeikmaðurMörk
1Gylfi Þór Sigurðsson67
2Eiður Smári Guðjohnsen55
3Heiðar Helguson28
4Hermann Hreiðarsson14
5Jóhann Berg Guðmundsson10
6Guðni Bergsson8
7Ívar Ingimarsson4
8Grétar Rafn Steinsson4
9Brynjar Björn Gunnarsson3
10Arnar Gunnlaugsson3
11Jóhannes Karl Guðjónsson2
12Aron Einar Gunnarsson2
13Þórður Guðjónsson1
14Þorvaldur Örlygsson1
Feitletraðir leikmenn spila enn í ensku úrvalsdeildinni

Fjöldi stoðsendinga Íslendinga í Premier League

Uppfært 20/5 2021.

SætiLeikmaðurStoðsendingar
1Gylfi Þór Sigurðsson50
2Eiður Smári Guðjohnsen28
3Jóhann Berg Guðmundsson17
4Hermann Hreiðarsson15
5Heiðar Helguson9
6Grétar Rafn Steinsson8
7Guðni Bergsson4
8Aron Einar Gunnarsson3
9Jóhannes Karl Guðjónsson2
9Arnar Gunnlaugsson2
10Ívar Ingimarsson1
10Lárus Sigurðsson1
Feitletraðir leikmenn spila enn í ensku úrvalsdeildinni

Tengt efni

Enska úrvalsdeild kvenna er efsta deild kvennaknattspyrnunnar á Englandi.

Heimildir

Tilvísanir