Ingvar E. Sigurðsson

íslenskur leikari
(Endurbeint frá Ingvar Eggert Sigurðsson)

Ingvar Eggert Sigurðsson (f. 22. nóvember 1963), oft nefndur Ingvar E. Sigurðsson, er íslenskur leikari og edduverðlaunahafi. Hann hefur leikið í leikhúsi, útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hann hefur einnig starfað sem handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi.

Ingvar Eggert Sigurðsson
Ingvar Eggert Sigurðsson í júlí 2012
Upplýsingar
FæddurIngvar Eggert Sigurðsson
22. nóvember 1963 (1963-11-22) (60 ára)
Fáni Íslands Reykjavík, Ísland
Ár virkur1990 - nú
MakiEdda Arnljótsdóttir
BörnSnæfríður Ingvarsdóttir
Áslákur Ingvarsson
Sigurður Ingvarsson
Hringur Ingvarsson
Helstu hlutverk
Grjóni
í Djöflaeyjan (1996)
Óli
í Sporlaust (1998)
Páll
í Englar alheimsins (2000)
Grímur eldri
í Kaldaljós (2004)
Erlendur
í Mýrin (2006)
Edduverðlaun
Leikari/leikkona ársins í aðalhlutverki
2006 Mýrin
2004 Kaldaljós
Leikari ársins í aðalhlutverki
2000 Englar alheimsins
Leikari ársins
1998 Slurpinn & Co.

Ævi

Ingvar fæddist 22. nóvember 1963 í Reykjavík. Árið 1990 útskrifaðist hann úr Leiklistarskóla Íslands. Ári síðar var hann ráðinn til Þjóðleikhússins þar sem hann hefur farið með fjölda hlutverka.[1]

Ferill

Ferill í leikritum

Hlutverk sem Ingvar hefur leikið í Þjóðleikhúsinu eru: Pétur Gaut í Pétur Gautur, Vitju í Kæra Jelena, Tíbalt í Rómeó og Júlíu, Ingimund í Elínu Helgu Guðríði, Scullery í Stræti, Svenna í Kjaftagangi, drenginn í Stund gaupunnar, Leonardó í Blóðbrullaupi, Ormur Óðinsson í Gauragangi, Fernando Krapp í Sönnum karlmanni, Don Carlos í Don Juan, Ketil í Tröllakirkju, Prófstein í Sem yður þóknast, Sergé í Listaverkinu, Túzenbach barón í Þremur systrum og Kládíus konungur í Hamlet.

Ferill í kvikmyndum og þáttum

ÁrKvikmynd/ÞátturHlutverkAthugasemdir og verðlaun
1990Sérsveitin laugarnesvegi 25
1992IngalóSkúli
1994SkýjahöllinPabbi Alla
1995Í draumi sérhvers manns
1996DjöflaeyjanGrjóni
Sigla HiminfleyEinar
1997A Legend to RideGunnar
Perlur og svínViktor
StikkfríHilmar
1998Slurpinn & Co.Leikari ársins
Incest
SporlaustÓli
Áramótaskaupið 1998
1999Áramótaskaupið 1999
2000Englar alheimsinsPállLeikari ársins
2001VilliljósSölvi
SkrímsliDr. Svendsen
Áramótaskaupið 2001
2002FálkarLögregla
K-19: The WidowmakerGorelov
2003Second NatureFranz
StormviðriGunnar
NjálssagaNjáll
2004KaldaljósGrímur eldriLeikari ársins
2005BjólfskviðaGrendel
2006MýrinErlendurLeikari ársins
Áramótaskaupið 2006
2007ForeldrarÓskar SveinnLeikari ársins
2008Stóra planiðMagnús
Skrapp útSiggi
SveitabrúðkaupBrynjólfur prestur
Reykjavík - RotterdamSteingrímur
8Faðir
2009FangavaktinViggó
2010KóngavegurBB
Woyzeck 2010Woyzeck
BrimAnton
Courier
2011Kurteist fólkÞorsteinn
BorgríkiGunnar
2012I Against IIssac Revchenko
2013Þetta reddast!
Hross í ossKolbeinn
MálmhausKarl
PlaytimeThe Artist
2014Ævar vísindamaðurTímaferðalangurinn
Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrstSímon
One Night in IstanbulAltan
Borgríki 2Gunnar
2015Dirk Ohm - Sjónhverfingamaðurinn sem hvarfLensmann
EverestAnatoli Boukreev
ÞrestirGunnar
ÓfærðÁsgeir
2016Fyrir framan annað fólkDoktor
Sundáhrifin (L'effet aquatique)Siggi
EiðurinnHalldór
2017SvanurinnKarl
Justice LeagueMayor
2018Vargur
Undir halastjörnuSkúli
Fantastic Beasts: The Crimes of GrindelwaldGrimmson
2019Hvítur, hvítur dagurIngimundur
SuccessionMagnússon
ÞorstiLögga
2021Zack Snyder's Justice LeagueMayor
KatlaÞór
DýriðMaður í sjónvarpi
VerbúðinNautið
2022Killing EveLars
The NorthmanHe-Witch
Volaða landRagnar
2023AftureldingSkarphéðinn Karlsson

Verðlaun og tilnefningar

Edduverðlaunin

Ingvar hefur hlotið Edduverðlaunin alls fimm sinnum. Fyrst sem leikari ársins árið 1998 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Slurpurinn & Co. Árið 2000 hlaut hann aftur verðlaun sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Pál í kvikmyndinni Englar alheimsins. Þá hlaut hann verðlaun árið 2004 sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Grímur eldri í Kaldaljós. Hann hlaut sömu verðlaun fyrir hlutverk sitt sem Erlendur í kvikmyndinni Mýrin árið 2006. Árið 2007 hlaut hann verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni Foreldrar.

Gríman

Ingvar hefur hlotið Íslensku leiklistarverðlaunin (Grímuna) tvisvar sinnum. Árið 2006 hlaut hann verðlaunin sem leikari ársins í aukahlutverki fyrir leik sinn í leikritinu Pétur Gautur. Og árið 2011 sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Íslandsklukkunni

Bodil-verðlaunin

Árið 2023 hlaut Ingvar verðlaun fyrir besta aukahlutverkið í kvikmynd fyrir myndina Volaða land [2]

Tilvísanir

Tengill


Verðlaun
Fyrirrennari:
Ný verðlaun
Edduverðlaunin fyrir leikara ársins í aðalhlutverki
1999-2000
Eftirfari:
Jón Gnarr