22. nóvember

dagsetning
OktNóvemberDes
SuÞrMiFiLa
12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
2024
Allir dagar


22. nóvember er 326. dagur ársins (327. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 39 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 498 - Symmakus varð páfi.
  • 1228 - Skip fórst við Vestmannaeyjar en 18 menn björguðust.
  • 1286 - Hópur grímuklæddra manna drap Eirík klipping Danakonung að næturlagi í hlöðu þar sem hann hafði leitað sér skjóls í veiðiferð.
  • 1357 - Nóvemberuppgjörið þar sem Eiríkur Magnússon fékk enn stærri hluta Svíþjóðar fór fram.
  • 1497 - Vasco da Gama sigldi fyrir Góðrarvonarhöfða.
  • 1617 - Akmeð 1. Tyrkjasoldán lést og bróðir hans Mústafa 1. tók við.
  • 1641 - Langa þingið í Englandi samþykkti Kvörtunarskjalið mikla sem stefnt var gegn einveldistilburðum konungs.
  • 1689 - Pétur mikli kvað á um lagningu Síberíuvegarins til Kína.
  • 1699 - Danmörk, Pólsk-litháíska samveldið, Saxland og Rússland gerðu með sér Preboasjenskí-sáttmálann þar sem þau kölluðu eftir skiptingu Svíaveldis.
  • 1888 - Mikið tjón varð vegna óveðurs og stórflóðs um suðvestanvert Ísland.
  • 1907 - Í Reykjavík fengu giftar konur kosningarétt og kjörgengi til sveitarstjórnar og nýttu sér það nokkrum mánuðum síðar.
  • 1907 - Vegalög voru staðfest og kváðu þau á um að vinstri umferð væri í gildi á Íslandi. Var sú ákvörðun tekin með tilliti til kvenna, sem riðu í söðli, en þær höfðu báða fætur á vinstri hlið hestsins og hentaði vinstri umferð því betur.
  • 1909 - Björn Jónsson, ráðherra Íslands, vék bankastjórn Landsbankans úr starfi „sökum magvíslegrar, megnrar og óafsakanlegrar óreglu í starfsemi yðar í stjórn bankans og frámunarlega lélegs eftirlits með honum.“
  • 1920 - Grikkir samþykktu nær einróma í þjóðaratkvæðagreiðslu að setja Konstantín 1. aftur á konungsstól eftir lát sonar hans, Alexanders.
  • 1949 - Borgin Sumqayit í Aserbaísjan var stofnuð.
  • 1956 - Sumarólympíuleikarnir 1956 hófust í Sydney, Ástralíu.
  • 1963 - John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, var myrtur í borginni Dallas í Texas.
  • 1968 - Hvíta albúmið eða The Beatles kom út í Bretlandi.
  • 1973 - Vegna olíukreppunnar ákvað stjórnin í Noregi að loka öllum bensínstöðvum um helgar.
  • 1974 - Palestínumönnum var veitt áheyrnarstaða hjá Sameinuðu þjóðunum.
  • 1975 - Jóhann Karl 1. varð konungur Spánar eftir lát Franciscos Franco.
  • 1976 - Ísraelsher kom sér fyrir við landamærin að Líbanon.
  • 1977 - British Airways hóf reglulegt flug til New York með Concorde-þotu.
  • 1979 - Í tilefni af ári barnsins sáu börn um meginhluta dagskrár Ríkisútvarpsins.
  • 1986 - Fyrsti lottómiðinn var keyptur í Reykjavík af Steingrími Hermannssyni, þáverandi forsætisráðherra.
  • 1988 - Fyrsta frumgerð Northrop Grumman B-2 Spirit-sprengjuflugvélar var kynnt í Kaliforníu.
  • 1989 - Forseti Líbanons, René Moawad, var drepinn í sprengjutilræði.
  • 1990 - Skautafélagið Björninn var stofnað í Reykjavík.
  • 1991 - Línuskipið Eldhamar GK 13 strandaði á Hópsnesi við Grindavík. Fimm af sex manna áhöfn skipsins fórust.
  • 1994 - Leikjatölvan Sega Saturn kom út í Japan.
  • 1995 - Breski raðmorðinginn Rosemary West var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir morð á 10 konum og stúlkum.

Fædd

Dáin