Rafmynt

Rafmynt (eða rafeyrir) er rafræn greiðslumynt sem þróuð hefur verið til greiðslumiðlunar og viðskipta á netinu.

Orðið getur vísað til nokkurra mismunandi hluta eins og:

  • Dreifðra rafmynta á við Bitcoin þar sem enginn miðlægur gagnagrunnur er til, þess í stað sammælast mismunandi tölvur um hver eigi hvaða pening t.d. með því að keppast við að leysa tímafrekar stærðfræðiformúlur, eftir á er hægt er að sanna hver sé réttmætur eigandi vegna þess að dulkóðun er notuð.[1]
  • Sýndarrafmyntar sem er notuð í tölvuleikjum á við Eve Online.
  • Ríkisgjaldmiðils sem geymdur er í gagnagrunni, frekar en sem efnislegir seðlar eða myntir.[2][3]

Samkvæmt íslenskum lögum er útgáfa rafmyntar aðeins heimil rafeyrisfyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum með viðeigandi starfsleyfi, Seðlabanka Evrópu (ECB) og stjórnvöldum.[4][3]

Tilvísanir