Seinna Téténíustríðið

Stríð milli Rússlands og Téténíu frá 1999 til 2009

Seinna Téténíustríðið var stríð sem Rússar háðu gegn aðskilnaðarsinnum í Téténíu frá 1999 til 2000. Eiginlegum stríðsátökum lauk með sigri Rússa árið 2000 en uppreisnarhópar héldu áfram hernaði gegn rússneskum yfirráðum þar til hernaðaraðgerðum lauk árið 2009.

Seinna Téténíustríðið

Rússneskir hermenn hleypa af stórskotabyssu í Atsjkhoj-Martan þann 2. desember 2000.
DagsetningVirk átök:
7. ágúst 1999 – 30. apríl 2000[1]
(8 mánuðir og 24 dagar)
Uppreisnarástand:
1. maí 2000 – 16. apríl 2009[2]
(8 ár, 10 mánuðir og 15 dagar)
Staðsetning
Norður-Kákasus, aðallega í Téténíu
NiðurstaðaRússneskur sigur. Téténía endurinnlimuð í Rússland.
Stríðsaðilar
Téténska lýðveldið Itkería (1999–2007)
Emírdæmið Kákasus (2007–2009)
Fáni Rússlands Rússland
Sjálfstjórnarlýðveldið Téténía
Leiðtogar
Aslan Maskhadov  
Zelmíkhan Jandarbíjev  
Shamíl Basajev  
Ibn al-Khattab  
Fáni Rússlands Vladímír Pútín
Fáni Rússlands Borís Jeltsín (til 31. desember 1999)
Akhmad Kadyrov  
Ramzan Kadyrov
Fjöldi hermanna
~22.000[3]–30.000[4]
(árið 1999)
80.000 (árið 1999)[5]
Mannfall og tjón
14.113 hermenn drepnir (1999–2002)[6]
2.186 hermenn drepnir (2003–2009)[7]
Alls drepnir: 16.299
3.726 hermenn drepnir,[8]
2.364–2.572 hermenn innanríkisráðuneytisins drepnir,[9]
1.072 téténskir lögregluþjónar drepnir,[10][11]
106 útsendarar FSB og GRU drepnir[12]
Alls drepnir: 7.268–7.476[ath 1]
Óbreyttir borgarar drepnir:
Miðað er við allt að 25.000 dauðsföll og allt að 5.000 mannshvörf í Téténíu (skv. talningum AI)[13]
Dauðsföll alls:
~80.000 í Téténíu (mat GfbV),[14]
Fleiri í nágrannahéruðum,
40.000–45.000 óbreyttir borgarar drepnir (Kramer),[15]
Rúmlega 600 drepin í árásum innan Rússlands.
Dauðsföll hermanna og borgara alls: ~50.000–80.000

Stríðið hófst samhliða valdatöku Vladímírs Pútín í Rússlandi og er því stundum kallað „stríð Pútíns“ til að greina það frá fyrra Téténíustríðinu, sem er þá kallað „stríð Jeltsíns.“ Stríðið setti svip sinn á fyrstu valdaár Pútíns og framganga hans í því átti þátt í að auka vinsældir hans og treysta stöðu hans sem leiðtoga Rússlands.

Stríðinu lauk með sigri Rússa gegn aðskilnaðarsinnum. Rússar gerðu feðgana Akhmad og Ramzan Kadyrov, sem höfðu áður barist fyrir sjálfstæði Téténíu, að umboðsstjórnendum sínum í Téténíu. Þrátt fyrir að Téténía hafi formlega verið limuð inn í Rússland á ný við lok stríðsins hefur Ramzan Kadyrov síðan þá í auknum mæli gert Téténíu að einræðisstjórn sem fylgir rússneskum lögum aðeins að takmörkuðu leyti.[16]

Aðdragandi

Fyrra Téténíustríðinu hafði lokið árið 1996 og næsta ár höfðu Téténar og Rússar skrifað undir friðarsáttmála þar sem Téténska lýðveldið Itkería fékk sjálfstæði að flestu leyti. Hins vegar var áfram mikill ófriður í Téténíu og á Kákasussvæðinu. Sjálfstæðisbarátta Téténa hafði lengst af grundvallast á veraldlegri þjóðernishyggju en með eyðileggingu fyrra Téténíustríðsins náðu vígahópar stríðsherra sem aðhylltust íslamisma og wahhabisma fótfestu á svæðinu og höfðu það að yfirlýstu markmiði að reka Rússa alfarið frá héruðum Kákasus og stofna ríki byggt á sjaríalögum.[17][18]

Aðsópsmestir meðal þessara stríðsherra voru Shamíl Basajev og Ibn al-Khattab, sem stóðu ásamt hersveitum sínum fyrir gíslatökum og hryðjuverkum í nágrannahéruðum Téténíu. Aslan Maskhadov, forseti Téténska lýðveldisins Itkeríu, lét starfsemi þessara hópa innan Téténíu að mestu óafskipta og gerði Basajev að forsætisráðherra í stjórn sinni í nokkra mánuði árið 1998 til að vinna sér hylli stuðningsmanna hans.[19] Árið 1999 var tala gísla komin upp í 2.000 manns. Sama ár gerðu skæruliðasveitir undir stjórn Basajevs (sem Maskhadov hafði þá rekið úr stjórn sinni) og al-Khattabs innrás frá Téténíu inn í rússneska sjálfsstjórnarsvæðið Dagestan, þar sem wahhabistar höfðu lögt nokkur þorp undir sig.[18]

Í ágúst 1999 sendu yfirvöld í Kreml hermenn til Dagestans til að hrekja á bak aftur innrás Basajevs og al-Khattab. Innrásarmennirnir voru hraktir burt á skömmum tíma, enda höfðu þeir litlu fylgi að fagna meðal Dagestana.[19]

Sprengjuárásirnar í Moskvu og Volgodonsk

Í september 1999 voru gerðar sprengjuárásir á íbúðablokkir í Moskvu og í Volgodonsk sem Rússar sögðu téténska íslamista standa fyrir, þótt það hafi ekki verið sannað með óyggjandi hætti.[20] Rannsóknir leiddu í ljós að árásirnar voru gerðar með sprengiefninu RDX, sem þarf sérfræðikunnáttu til að beita rétt.[19] Kenningar hafa verið settar fram um að rússneska leyniþjónustan FSB hafi staðið fyrir sprengjuárásunum til að skapa tylliástæðu fyrir frekari hernaði gegn Téténíu. Til stuðnings þessarar kenningar hefur verið bent á að tveir starfsmenn FSB hafi sést koma pokum með dufti sem líktist RDX fyrir í kjallara íbúðablokkar í Rjazan. Þeir voru handteknir en lögreglu svo skipað að láta þá lausa. Formaður FSB, Vladímír Pútín, hafði á þessum tíma nýlega verið skipaður forsætisráðherra Rússlands. Hann tók við embætti þann 15. ágúst 1999, á sama tíma og seinna Téténíustríðið var að hefjast.[21]

Einn þeirra sem hélt því fram að FSB og Pútín hefðu sviðsett sprengjuárásirnar til að leggja grunninn að endurnýjuðum hernaði í Téténíu var FSB-liðinn Aleksandr Lítvínenko, sem flúði í útlegð til Bretlands árið 2000. Lítvínenko lést árið 2006 eftir að eitrað var fyrir honum með geislavirka efninu Pólon-210.[22][23]

Gangur stríðsins

Fjöldagrafir í Téténíu í febrúar 2000.

Þann 28. september 1999 lýstu Rússar friðarsamningana frá árinu 1996 ógilda og hófu stríð gegn íslamistum í Téténíu. Rússneskir hermenn héldu inn í Téténíu úr norðri og vestri og herflugvélar hófu að varpa sprengjum á téténsku höfuðborgina Grozníj.[19]

Ólíkt fyrra Téténíustríðinu, sem hafði verið afspyrnu óvinsælt stríð, naut innrásin mikils stuðnings hjá rússneskri alþýðu, enda var nú hefndarhugur í mörgum fyrir hryðjuverkaárásirnar í Moskvu og Volgodonsk. Vladímír Pútín, sem varð helsti forsvarsmaður innrásarinnar og vígreifastur í garð Téténa, varð því gríðarlega vinsæll leiðtogi á skömmum tíma. Pútín varð síðan óvænt forseti Rússlands þegar Borís Jeltsín sagði af sér á gamlársdag árið 1999.[19]

Í febrúar árið 2000 hafði Grozníj nánast alfarið verið lögð í rúst vegna sprengjuárása Rússa. Um 400.000 manns höfðu búið þar fyrir stríðið en aðeins um 40.000 voru eftir þegar síðustu téténsku skæruliðarnir hörfuðu frá borginni í lok janúar árið 2000, aðallega konur og eldra fólk. Eftir að Rússar náðu borginni sökuðu samtök á borð við Mannréttindavaktina þá um að halda hundruðum saklausra borgara í fangabúðum þar sem þeir voru pyntaðir og konum nauðgað. Íbúar sem enn dvöldu í borginni sökuðu rússneska hermenn um að fara ránshendi um eigur þeirra, skjóta af handahófi inn í kjallara og ræna ungum konum.[24]

Eftir að innrásin í Téténíu hófst ákvað Akhmad Kadyrov, æðsti múfti (múslimaklerkur) Téténska lýðveldisins Itkeríu, að ganga til liðs við Rússa. Kadyrov hafði barist gegn Rússum í fyrra Téténíustríðinu en neitaði í þetta sinn að styðja stjórn Aslans Maskhadov forseta þar sem hann vildi ekki þurfa að berjast við hlið bókstafstrúarmanna á borð við Ibn al-Khattab. Kadyrov, sem var stríðsherra sem réði yfir eigin hersveitum, leyfði Rússum að koma sér fyrir í borginni Gúdermes á meðan þeir þjörmuðu að Grozníj.[19] Að launum fyrir hollustu sína við stjórnvöld í Kreml var Kadyrov gerður að umboðsstjórnanda Rússa í Téténíu eftir að rússneski herinn hafði náð valdi á héraðinu um mitt árið 2000.[16]

Eftirmálar

Vladímír Pútín (til vinstri) fundar með Akhmad Kadyrov, sem gekk í lið með Rússum og gerðist umboðsstjórnandi þeirra í Téténíu.
Myndir af fórnarlömbum gíslatökunnar í Beslan árið 2004.

Rússar höfðu kollvarpað stjórn Téténska lýðveldisins Ítkeríu og náð formlegri stjórn á héraðinu á fyrri hluta ársins 2000. Téténar héldu þó áfram skæruhernaði og vopnaðri andspyrnu gegn rússneskum yfirráðum í mörg ár til viðbótar. Andspyrna téténsku skæruliðanna einkenndist oft af gíslatökum og hryðjuverkaárásum gegn óbreyttum borgurum. Eitt alræmdasta atvikið í þessum kafla Téténíustríðsins varð þann 23. október 2002 þegar 40 téténskir skæruliðar réðust inn Dúbrovka-leikhúsið í Moskvu á meðan verið var að sýna söngleik og héldu fullum sal áhorfenda í gíslingu. Gíslatökumennirnir kröfðust þess að Rússar hefðu sig burt frá Téténíu innan viku, ella yrði leikhúsið sprengt í loft upp. Rússneskar sérsveitir leystu úr gíslatökunni eftir þrjá daga með því að dæla svefngasi inn í leikhúsið og frelsuðu svo gíslana á meðan téténsku skæruliðarnir lágu meðvitundarlausir. Hins vegar létust um 130 gíslar eftir að hafa andað að sér gasinu.[25]

Annar hildarleikur varð í september árið 2004 þegar téténskir uppreisnarmenn sem fylgdu Shamíl Basajev að málum réðust inn í grunnskóla í borginni Beslan í Norður-Ossetíu og tóku alla sem þar voru í gíslingu. Alls létust að minnsta kosti 339 manns, þar af um helmingurinn börn, þegar rússneskar sérsveitir réðust inn í skólann til að binda enda á gíslatökuna.[26][27]

Eftir hryðjuverkin 11. september 2001 í New York var stríð Rússa í Téténíu í auknum mæli samsamað stríðinu gegn hryðjuverkum sem Bandaríkjamenn höfðu lýst yfir.[28]

Akhmad Kadyrov, sem þá var orðinn forseti sjálfstjórnarlýðveldisins Téténíu innan Rússlands, var myrtur árið 2004 á hersýningu í Grozníj.[29] Í kjölfarið voru Rússar fljótir að upphefja son Akhmads, Ramzan Kadyrov, sem nýjan umboðsstjórnanda sinn í Téténíu. Með stuðningi Pútíns var Ramzan Kadyrov skipaður aðstoðarforsætisráðherra Téténíu strax eftir morðið. Hann varð síðan forsætisráðherra Téténíu ári síðar, aðeins 29 ára gamall.[16] Kadyrov var formlega skipaður forseti Téténíu árið 2007, stuttu eftir að hann varð þrjátíu ára gamall. Pútín veitti Kadyrov umboð til að „hreinsa til“ í Téténíu og fleytti til hans gríðarlegum fjármunum svo hann gæti barið niður aðskilnaðarsinna sem enn börðust gegn rússnesku stjórninni.[30]

Aslan Maskhadov var drepinn af rússneskum hermönnum í mars árið 2005. Hann var þá síðasti leiðtogi Téténa sem vildi ná fram samningum við Rússa til að ljúka stríðinu. Maskhadov hafnaði því að hann hefði haft neitt með gíslatökurnar í Moskvu eða Beslan að gera.[31] Shamíl Basajev var drepinn í næturáhlaupi rússneskra hermanna á skæruliðahóp hans í Ingúsetíu í júlí 2006.[32]

Rússar lýstu formlega yfir endalokum hernaðaraðgerða sinna í Téténíu þann 16. apríl árið 2009.[33]

Tilvísanir