Þúkýdídes (gríska: Θουκυδίδης (umritað Thoukudídēs)) (uppi um 460/455 – 400 f.Kr.) var forngrískursagnaritari sem ritaði um sögu Pelópsskagastríðsins. Þúkýdídes ritaði á attísku sem var sú mállýska sem töluð var í Aþenu þaðan sem Þúkýdídes var. Þúkýdídes þykir fágaður höfundur og var grískur stíll hans talinn til fyrirmyndar þegar í fornöld. Hann þykir einnig vera einn áreiðanlegasti sagnaritari fornaldar.[1]
Þúkýdídes var sagður vera þurr á manninn, snauður af kímnigáfu og svartsýnn. Vitað er að hann dáðist mjög að Períklesi og því valdi sem hann hafði yfir borgarbúum en líkaði illa við lýðskrumara þá sem fylgdu Períklesi.
Connor, W. Robert, Thucydides (Princeton: Princeton University Press, 1984).
Dewald, Carolyn, Thucydides' War Narrative: A Structural Study (Berkeley: University of California Press, 2005).
Finley, John H., Thucydides (Ann Arbor: The University of Michigan Press, 1963).
Guðmundur J. Guðmundsson, „Grísk sagnaritun frá Hekateosi til Pólýbíosar“ hjá Sigurði A. Magnússyni, Kristjáni Árnasyni og Ástráði Eysteinssyni (ritstj.), Grikkland ár og síð (Hið íslenzka bókmenntafélag, 1991).
Hornblower, Simon (ritstj.), Greek Historiography (Oxford: Clarendon Press, 1994).