Amazon.com

Amazon.com, Inc. (NASDAQAMZN) er bandarískt vefverslunarfyrirtæki með höfuðstöðvar í Seattle í Washington. Það var eitt af fyrstu fyrirtækjum til að selja vörur á Internetinu og var táknmynd í netfyrirtækjaloftbólunni árið 1999. Það skilaði fyrst hagnaði árið 2003.

Amazon.com
RekstrarformHlutafélag
Stofnað1994
StaðsetningSeattle, Washington, Bandaríkin
LykilpersónurJeff Bezos
StarfsemiVefverslun
TekjurUS$14,84 miljarðar
Hagnaður e. skattaUS$476 milljónir
Starfsfólk647,500 (2018)
Vefsíðawww.amazon.com

Fyrirtækið var stofnað árið 1994 af Jeff Bezos, og hóf rekstur árið 1995. Í byrjun seldi Amazon.com bara bækur en skömmu síðar byrjaði það að selja myndbönd, mynddiska, geisladiska, MP3, forrit, tölvuleiki, raftæki, fatnað, húsgögn, mat, leikföng og meira. Amazon markaðssetur og selur Kindle lestölvuna.

Amazon.com hefur aðgreindar netverslanir í Kanada, Bretlandi, Þýskalandi, Austurríki, Frakklandi, Kína (Joyo.com) og Japan.

Tenglar