Avatar

bandarísk kvikmynd frá 2009

Avatar er bandarísk vísindaskáldskapar kvikmynd frá árinu 2009.[4][5] Henni var leikstýrt og framleidd af James Cameron. Í aðalhlutverkum eru Sam Worthington, Zoe Saldana, Stephen Lang, Michelle Rodriguez og Sigourney Weaver. Myndin gerist á 22. öldinni þegar mennirnir eru að hertaka Pandora, lífvænlegt tungl gasplánetu í Alpha Century stjörnukerfinu, til þess að grafa fyrir unobtanium[6][7], efni sem leiðir rafmagn mjög vel við herbergishitastig.[8] Stækkun námunar er ógn við tilvist ættbálksins Navi, mannlega tegund sem eru frumbyggjar plánetunar. Titill kvikmyndarinnar á við erfðafræðilegan Navi líkama sem stjórnast af heila manns úr fjarlægð til að hafa samskipti við frumbyggja Pandoru.[9]

Avatar
Textinn Avatar með hvítum stöfum og bláum bláma á svörtum grunni.
Theatrical release poster
LeikstjóriJames Cameron
HandritshöfundurJames Cameron
Framleiðandi
  • James Cameron
  • Jon Landau
Leikarar
  • Sam Worthington
  • Zoe Saldana
  • Stephen Lang
  • Michelle Rodriguez
  • Sigourney Weaver
KvikmyndagerðMauro Fiore
Klipping
  • Stephen Rivkin
  • John Refoua
  • James Cameron
TónlistJames Horner
Fyrirtæki
  • Lightstorm Entertainment[1]
  • Dune Entertainment[1]
  • Ingenious Film Partners[1]
Dreifiaðili20th Century Fox[1]
Frumsýning18. desember, 2009 (Ísland)
18. desember, 2009 (Bandaríkin)
Lengd161 mínútur[2]
TungumálEnska
Ráðstöfunarfé$237 milljónir[3]

Þróun Avatars hófst 1994, þegar Cameron skrifaði 80 blaðsíðna uppkast að myndinni.[10][11] Byrja átti á myndinni eftir að lokið var við myndina Titanic og gefa átti hana út 1999,[12] en samkvæmt Cameron var nauðsynleg tækni ekki til á þeim tíma.[13] Vinna við tungumál verana byrjaði 2005 og Cameron byrjaði á handriti og umhverfi myndarinnar 2006.[14][15] Avatar hafði 237 milljón bandaríska dali í ráðstöfunarfé.[3] Aðrar áætlanir segja kostnaðinn vera $280 milljónir og $310 milljónir fyrir framleiðslu og $150 milljónir fyrir markaðssetningu.[16][17][18] Kvikmyndin notaði nýjar aðferðir til að festa hreyfingu á filmu og var gefin út fyrir hefðbundnar sýningar, 3D sýningar og í 4D fyrir Suður-Kóresk kvikmyndahús.[19]

Heimildir

Tenglar

Avatar á Internet Movie Database

  Þessi kvikmyndagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.