Averróes
Averróes (arabíska: ابوالوليد محمد بن احمد بن محمد بن رشد, Abū l-Walīd Muhammad ibn Ahmad ibn Muhammad ibn Rushd; einnig Averroes eða Averrhoës eða einfaldlega Ibn Rushd) (1126 – 11. desember 1198) var spænsk-marokkóskur heimspekingur, læknir, lögfræðingur og guðfræðingur.
Vestræn heimspeki Miðaldaheimspeki | |
---|---|
Nafn: | Averróes |
Fæddur: | um 1126 |
Látinn: | 11. desember 1198 |
Skóli/hefð: | íslam |
Helstu viðfangsefni: | íslömsk heimspeki, stærðfræði, læknisfræði |
Markverðar hugmyndir: | aristótelísk heimspeki í íslömsku samhengi |
Áhrifavaldar: | Aristóteles |
Hafði áhrif á: | Maímónídes, Tómas af Aquino |
Ásamt Avicenna er Averróes sá sem helst ber að þakka fyrir varðveislu þekkingar á mörgum af ritum fornaldar. Hann skrifaði handbók í læknisfræði og útleggingar á nær öllum ritum Aristótelesar. Hann reyndi að samræma heimspeki og íslam og taldi að heimspeki og trúarbrögð væru ekki andstæður heldur væri hægt að leita sannleikans fyrir tilstilli beggja.
Tenglar
Þetta æviágrip sem tengist sagnfræði og heimspeki er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt