Dælan

Dælan (latneskt heiti: Antlia) er stjörnumerki á suðurhveli jarðar sem franski stjörnufræðingurinn, stærðfræðingurinn og kortagerðarmaðurinn Nicolas-Louis de Lacaille nefndi árið 1752.

Stjörnukort þar sem eru línur á milli stjarnanna sem mynda stjörnumerkið Dælan.
Stjörnumerkið Dælan
Mynd af gömlu loftdælu og í bakgrunni stjörnumerkið Dælan
Stjörnumerkið Dælan, hvernig maður maður sér það með berum augum
Teikning af stjörnumerkinu Dælan og tvöföldu strokk-loftdælu.
Teikning eftir Johann Bode af stjörnumerkinu Dælan og tvöföldu strokk-loftdælu.
Mynd af gömlu loftdælu og í bakgrunni stjörnumerkið Dælan
Koparstunga af stjörnumerkinu Dælan

Dælan er frekar ósýnilegt stjörnumerki, vegna þess að það er ekki svo bjart. Einungis bjartasta stjarnan, α Antliae, nægir til þess að vera í birtuflokki 4. Dælan sést ekki á Íslandi en hún sést á milli 50° N og 90° S.[1]

Saga

Á 18. öld nefndi franski stjörnumfræðingurinn Nicolas-Louis de Lacaille nokkur svæði stjörnuhiminsins á suðurhveli jarðar sem voru ónefnd. Á móti flestum stjörnumerki, sem eru nefnd eftir persónum í goðsögnum, bera stjörnumerki hans oftast tæknileg nöfn. Stjörnumerkið Dælan nefndi hann árið 1752 eftir tækið loftdæla sem var upphugsað af Otto von Guericke og þróað áfram af Robert Boyle.[2]

Stjarnfræðileg fyrirbæri

Stjörnur

Bjartasta stjarnan, α Antliae, er með 4,28 mag sýndarbirtustig og er appelsínugul stjarna í 366 ljósára fjarlægð af gerðinni K4 III.[3]

BHRNöfn, önnur hugtökmagM>Fjarlægð í ljósárumGerð
α4104Alpha Antliae4,28−0,97366K4 III
ε3765Epsilon Antliae4,51−2,16704K3 IIIa
ι4273Iota Antliae4,600,58208K0 III
θ3871Theta Antliae4,78−0,58384A7 V
η3947Eta Antliae5,222,61109F1 V
40865,342,3132A8 V
43135,43−0,63530A0 V
40495,44−3,682200B9.5 Ib/II
37705,49−1,36760K2 III CNII
41535,50−1,54840C5
40495,52
δ4118Delta Antliae5,55481
ζ13780,

3781

Zeta Antliae5,76

(6,19 / 6,96)

372
ζ23789Zeta Antliae5,93374

Tvístirni

KerfiHeildarbirtaHornbilStjörnurmag
θ4,780,1"A (HR 3871)5,30
B (HR 3871)6,18
δ5,5511,0"A (HR 4118)5,58
B (HR 4118)9,65
ζ15,768,0"A (HR 3781)6,19
B (HR 3780)6,96

Tenglar

  • Dælan á Stjörnufræðivefnum

Tilvísanir

Heimild