Gúlag
Gúlag er samheiti um þrælkunarbúðir í Ráðstjórnarríkjunum, dregið af rússneskri skammstöfun á Miðstöð vinnubúða (ГУЛАГ, Главное управление лагерей). Leynilögreglan, GPÚ, síðar NKVD, enn síðar MVD, sá um að stjórna búðunum, sem voru dreifðar um öll Ráðstjórnarríkin. Fyrstu búðirnar voru settar upp 1918, skömmu eftir valdatöku bolsévíka. Gúlagfangar grófu Hvítahafskurðinn. Nokkrar bækur hafa komið út á íslensku eftir fanga í slíkum þrælkunarbúðum, en orðið varð frægt, þegar Aleksandr Solzhenitsyn lýsti Gúlaginu eins og eyjum, sem dreifðar væru um öll Ráðstjórnarríkin.
Heimildir
- Elinor Lipper og Aino Kuusinen, Konur í þrælakistum Stalíns (Reykjavík: Almenna bókafélagið, 2015).
- Valentín González, El Campesino – Bóndinn (Reykjavík: Almenna bókafélagið, 2016).
- Aatami Kuortti, Þjónusta, þrælkun, flótti (Reykjavík: Almenna bókafélagið, 2016).
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt