Luka Modrić

Luka Modrić (fæddur 9. september 1985) er króatískur knattspyrnumaður sem spilar með Real Madrid og króatíska landsliðinu. Hann þykir einn besti miðherji í heimi og hefur unnið verðlaun fyrir þá stöðu í La Liga og hjá UEFA.

Upplýsingar
Fullt nafnLuka Modrić
Fæðingardagur9. september 1985 (1985-09-09) (38 ára)
Fæðingarstaður   Zadar, Króatía
Hæð1,72 m
LeikstaðaMiðjumaður
Núverandi lið
Núverandi liðReal Madrid
Númer10
Yngriflokkaferill
1996-2001
2002-2003
NK Zadar
Dinamo Zagreb
Meistaraflokksferill1
ÁrLiðLeikir (mörk)
2003-2008Dinamo Zagreb94 (26)
2003-2004→HŠK Zrinjski Mostar (lán)22 (8)
2004-2005→NK Inter Zaprešić (lán)18 (4)
2008-2012Tottenham Hotspur127 (13)
2012-Real Madrid317 (26)
Landsliðsferill
2006-Króatía162 (23)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins.

Modric fæddist í borginni Zadar við Adríahafsströnd Króatíu. Æska hans var lituð af Júgóslavíustríðinu og fjölskylda hans bjó á hótelum í nokkur ár.

Eftir að hafa vakið athygli með heimaliði borgarinnar hélt hann til Dinamo Zagreb árið 2002. Árið 2005 hóf hann að spila með aðalliðinu. Modric vann þrjá deildartitla og bikartitla með félaginu.

Árið 2008 hélt hann til Tottenham Hotspur og árið 2012 til Real Madrid. Hann hefur unnið spænsku deildina þrisvar og Meistaradeild Evrópu fimm sinnum með Real.

Modric var valinn besti leikmaðurinn á HM 2018 í Rússlandi þegar hann leiddi Króata til silfurverðlauna. FIFA valdi hann einnig sem leikmann ársins. [1]Einnig hlaut hann gullknöttinn sama ár.

Modric hefur spilað meira en 1000 leiki í öllum keppnum.

Heimild

Tilvísanir