Macintosh

Macintosh (enskur framburður: [/ˈmækɨntɒʃ/]), líka þekkt sem Mac eða Makki á íslensku, er vörumerki tölvulínu frá Apple. Nafnið kemur frá McIntosh sem er eplategund og það var uppáhalds eplið hans Jef Raskin sem vann hjá Apple 1979. Fyrsta Macintosh-tölvan kom á markaðinn þann 24. janúar 1984: Macintosh 128K.

Macintosh 128K, fyrsta Macintosh tölvan

Allar núverandi Mac-tölvur eru með Thunderbolt-tengi sem þróað var af Apple og Intel.

Núverandi vörulína

MyndNafnTegundMarkaðurLýsing
Mac miniHeimilistölvaÓdýr neytendaMac mini er ódýrasta Mac tölvan sem er í boði. Henni fylgir enginn skjár, lyklaborð né mús. Tvær útgáfur eru í boði, báðar með Core 2 Duo örgjörva.
iMacHeimilistölvaNeytendaiMac er aðal heimilstölva Apple fyrir neytendur og er með Intel Core 2 Duo.
Mac ProHeimilistölvaAtvinnuMac Pro er dýrasta tölva Apple og kemur í stað Power Mac G5.
MacBookFartölvaNeytendaMacBook er neytenda fartölva Apple. Hún notar Intel Core 2 Duo örgjörva.
MacBook ProFartölvaAtvinnuMacBook Pro er atvinnu fartölva Apple.
XserveNetþjónnEnterpriseXserve er netþjónn frá Apple.