Páll postuli
Páll postuli (hebreska שאול התרסי Šaʾul HaTarsi, sem merkir „Sál frá Tarsus“, forngríska Σαουλ Saoul og Σαῦλος Saulos og Παῦλος Paulos) „postuli heiðingjanna“, var, ásamt Pétri postula og Jakobi réttláta, ötulastur fyrstu kristniboðanna. Páll snerist til kristni á veginum til Damaskus þegar hann varð fyrir opinberun og Jesús Kristur upprisinn talaði við hann. Páli eru eignuð fjórtán af bréfum nýja testamentisins sem gengu meðal manna í fyrstu kristnu söfnuðunum. Bréfin eru talin elstu rit nýja testamentisins. Áhrif hans á kristna trú voru gríðarleg, einkum í Rómaveldi þar sem hann var að lokum handtekinn og hálshöggvinn að talið er árið 64 eða 67.
Tenglar
🔥 Top keywords: ForsíðaKerfissíða:Nýlegar breytingarKerfissíða:LeitCarles PuigdemontLandsbankinnForsetakosningar á Íslandi 2024Listi yfir íslensk póstnúmerHalla Hrund LogadóttirMarie AntoinetteFiann PaulListi yfir skammstafanir í íslenskuÍslandsbankiListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaSeinni heimsstyrjöldinListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaSumardagurinn fyrstiListi yfir íslensk mannanöfnÍslandIsland.isBaldur ÞórhallssonBørsenJón GnarrAlþingiHalla TómasdóttirForsetakosningar á Íslandi 2016Alþingiskosningar 2021Hjálp:EfnisyfirlitBjarni Benediktsson (f. 1970)Wikipedia:Um verkefniðKatrín JakobsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonHáskóli ÍslandsBrúðkaupsafmæliForseti ÍslandsVigdís FinnbogadóttirGylfi Þór SigurðssonÓlafur Darri ÓlafssonReykjavíkWikipedia:Samfélagsgátt