Pelópsskagi

Pelópsskagi (stundum nefndur Pelópsey, á forngrísku: Πελοπόννησος, Peloponnesos) er stór skagi á Suðvestur-Grikklandi, sunnan Kórintuflóa. Skaginn er suðvestur af Attíkuskaga og tengist honum um Kórinþueiðið. Fjölmargar fornminjar eru á skaganum, svo sem á borgarstæðum fornu borganna Messenu, Mýkenu, Ólympíu, Pýloss, Spörtu, Tegeu og Tiryns. Við skagann er Pelópsskagastríðið kennt.

Á myndinni sést Grikkland í gulum lit en Pelópsskagi er litaður rauður.
Gervihnattamynd af Pelópsskaga.
Arkadía á Pelópsskaga.
Leikhúsið í Epidáros í Argólis á Pelópsskaga.

Árið 1893 var grafinn Kórinþu-skipaskurðurinn í gegnum skagann sem gerði hann í raun að eyju þó hann sé ekki talinn sem slík.

Landfræði

Svæði

Gervihnattamynd af Pelópsskaga með landsvæðaskiptingu.
  • Arkadía - 100.611 íbúar
  • Argólis - 108.636 íbúar
  • Kórinþa - 144.527 íbúar (nema sveitarfélagið Agioi Þeodoroi og megnið af Loutraki-Perakkora, sem liggja austan við Kórinþueiðið)
  • Lakónía - 100.871 íbúar
  • Messenía - 180.264 íbúar
  • Akkaja - 331.316 íbúar
  • Elis - 198.763 íbúar
  • Pelópsskagaeyjur (einungis sveitarfélagið Troizinia og hluti af Poros)

Helstu borgir

Helstu borgir Pelópsskaga eru:[1]

  • Patras - 214.580 íbúar
  • Kalamata - 70.130 íbúar
  • Kórinþa - 58.280 íbúar
  • Tripoli - 46.910 íbúar
  • Argos - 42.090 íbúar
  • Pyrgos - 48.370 íbúar
  • Aigion - 49.740 íbúar
  • Sparta - 35.600 íbúar
  • Nafplion - 33.260 íbúar

Neðanmálsgreinar

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.