Rínarland-Pfalz

eitt af 16 sambandslöndum Þýskalands

Rínarland-Pfalz (þýska: Rheinland-Pfalz) er níunda stærsta sambandsland Þýskalands. Það liggur í suðvestri landsins og á landamæri að Frakklandi í suðri, Lúxemborg í vestri og Belgíu í norðvestri. Auk þess er Norðurrín-Vestfalía fyrir norðan, Hessen fyrir austan, Baden-Württemberg fyrir suðaustan og Saarland fyrir suðvestan. Íbúafjöldinn er 4,1 milljón (2021) og er Rínarland-Pfalz þar með sjötta fjölmennasta sambandsland Þýskalands. Höfuðborgin er Mainz við Rínarfljót. Meðal landfræðilegra perla sambandslandsins má nefna Móseldalinn, Rínarfljót, fjalllendið Eifel og gamla keisaraborgin Speyer.

Fáni Rínarlands-PfalzSkjaldarmerki Rínarlands-Pfalz
Flagge von Hessen
Flagge von Hessen
Landeswappen Hessens
Upplýsingar
Höfuðstaður:Mainz
Stofnun:30. ágúst 1946
Flatarmál:19.854,21 km²
Mannfjöldi:4,1 milljón (2021)
Þéttleiki byggðar:202/km²
Vefsíða:rlp.de
Stjórnarfar
Forsætisráðherra:Maria Luise „Malu“ Dreyer (SPD)
Lega

Fáni og skjaldarmerki

Skjaldarmerkið er þrískipt. Neðst er gult ljón á svörtum grunni en það er merki Pfalz sem upprunnið er úr Staufen-ættinni. Til hægri er hvítt hjól á rauðum grunni, en það er merki Mainz. Til hægri er kross heilags Georgs en það var merki Trier. Skjaldarmerki þetta var formlega tekið upp 1948, tveimur árum eftir að Rheinland-Pfalz var stofnað sem sambandsland. Fáninn er eins og þýski þjóðfáninn en efst í vinstra horninu er skjaldarmerkið.

Orðsifjar

Rheinland er þýska heitið á Rínarlandi sem teygir sig norður inn í Norðurrín-Vestfalíu meðfram Rínarfljóti. Orðið Pfalz er tekið að láni frá samnefndu kjörfurstadæmi sem var við lýði á tímum þýska ríkisins en var lagt niður á Napoleonstímanum. Pfalz merkir keisarasetur.[1]

Söguágrip

  • Við lok miðalda voru aðallega þrjú héruð á núverandi svæði sambandslandsins: Biskupsstóllinn Trier, biskupsstóllinn Mainz og og Pfalz. Öll þrjú svæðin voru stjórnuð af kjörfursta í þýska ríkinu. Í Trier og Mainz voru það biskupar.
  • 1688-97 geysaði 9 ára stríðið í Evrópu, en í Þýskalandi er stríðið kallað erfðastríðið í Pfalz. Í stríðinu réðist Loðvík XIV inn í Rínarlöndin og hafði það gríðarlega eyðileggingu í för með sér.
  • 1793 lýsti Mainz yfir lýðveldi í skjóli frönsku byltingarinnar, fyrsta lýðveldið á þýskri grundu. Nokkrum árum seinna innlimaði Napoleon Trier og Pfalz Frakklandi. Eftir fall Napoleons var héraðinu skipt milli ýmissa nágrannahéraða.
  • 1918 hertóku Frakkar Rheinland eftir tap Þjóðverja í heimstyrjöldinni fyrri og héldu til 1930.
  • 1945 hertóku Bandaríkjamenn og Frakkar svæðið, sem varð hluti af franska hernámssvæðinu. 1946 stofnuðu Frakkar sambandslandið Rínarland-Pfalz.
  • 2021 urðu hamfaraflóð og meira en 100 létust í Rínarlöndum.

Borgir

Móseldalurinn er í Rínarlandi-Pfalz

Stærstu borgir Rínarlands-Pfalz (31. desember 2013):

RöðBorgÍbúafjöldiAth.
1Mainz204 þúsundHöfuðborg sambandslandsins
2Ludwigshafen162 þúsund
3Koblenz111 þúsund
4Trier107 þúsund
5Kaiserslautern97 þúsund
6Worms80 þúsund

Tilvísanir

Heimildir